09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í D-deild Alþingistíðinda. (4587)

226. mál, læknisþjónusta í héruðum

Kristján Ingólfsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir það með 1. þm. Norðurl. e., að það ber skýlaust að harma það, hversu mjög dróst, að þessi nefnd yrði fullskipuð og gæti tekið til starfa. Ég var einn af þremur flm. þessarar þáttill. fyrir hálfu öðru ári, sem afgreidd var 22. apríl í fyrra, og þessi þáltill. var ekki byggð á neinu skrumi, heldur á þeirri alkunnu þörf, sem við allir þekkjum að er víða úti um landsbyggðina fyrir úrbætur í læknaþjónustu. Þrátt fyrir það, að þessir ágætu menn hafi setzt á rökstólana, þá lít ég svo á, að enn hafi lítil breyting til batnaðar orðið víða úti um landið hvað læknamálin og heilbrigðisþjónustuna snertir.

Ég hefði kosið það, og mér hefði þótt það ágætt, að hæstv. heilbrmrh. hefði getað látið Alþ. í té einhverjar upplýsingar um það, hvað í poka áminnztrar nefndar kann að vera, hvaða úrræði hún sér. En það, sem í pokanum kann að vera, ætla ég ekki að dæma, fyrr en ég heyri eitthvað um það. Ég geri mér fullkomlega ljóst, að með lagabreytingum til batnaðar getur margháttuð úrlausn fengist, því að lagabreytingar geta einmitt fjallað um þau skipulagslegu vandræði, sem læknaþjónustan í landinu á við að stríða.

Í Austurlandskjördæmi er ástandið mjög svo alvarlegt, einkum og sér í lagi hvað syðri hlutann áhrærir. Það vita allir, sem við læknisleysi hafa átt að stríða, hversu mjög það dregur úr öryggiskennd íbúanna, hversu mjög má segja að það dragi úr byggðarfestu í hinum einstöku byggðarlögum að njóta ekki læknisþjónustu. Á nokkrum stöðum í Austurlandskjördæmi blasir nú við algert neyðarástand, ef ekki verður úr bætt á næstu vikum. Í því sambandi vil ég nefna t. d. Djúpavogslæknishérað, en læknir sá, sem þeir hafa að undanförnu haft, er nú senn á förum og ekki séð fyrir endann á því vandamáli, sem skapast við brottför hans. Djúpavogslæknishérað hefur svo sem áður verið læknislaust, og þá hefur verið gripið til þess úrræðis að láta Hornafjarðarlækni þjóna því héraði, sem er langan veg norðan við hans stóra hérað. En næsta héraði norðan við Djúpavogshérað, Fáskrúðsfjarðarhéraði, gegnir aldraður læknir, sem átti lögum samkvæmt að láta af störfum um s. l. áramót. Þá sótti hins vegar enginn um héraðið, og vegna tryggðar við sitt gamla hérað og fólk heldur hann enn þá áfram. Ef Djúpavogslæknishérað verður mannlaust, þá má búast við því, að honum verði gert að gegna nyrðri hluta þess, og ég kalla, að það sé til of mikils ætlazt af gömlum manni, sem hefur gott og mikið starf að baki og mikil ferðalög, að ætla honum að gera það, þegar fer að halla undan hvað aldur snertir fyrir honum. Það verður eflaust gripið til þess gamla úrræðis að láta eina lækninn í A.-Skaftafellssýslu þjóna syðri hluta Djúpavogshéraðs, en eins og ég segi, þá er aðeins einn læknir í allri A.-Skaftafellssýslu, en vegalengdir enda á milli í sýslunni munu sem næst 230 km fyrir utan alla króka heim til einstakra bæja. Og mannfjöldi í sýslunni fer vaxandi, einkum þó á Höfn í Hornafirði, þar sem íbúar munu nú vera rúm 900 og athafnalíf mikið, og í sveitunum, þar sem íbúar eru á sjöunda hundrað, er byggðin, eins og við vitum, mjög dreifð. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar, að þarna væri tilvalinn staður fyrir læknamiðstöð, og þegar ofan á þetta bætist, að fyrir utan heimamenn er alla tíð mikið af aðkomusjómönnum og verkafólki á Höfn, þá er þörfin fyrir tvo lækna a. m. k. þarna í sýslunni gífurlega mikil. Í gærkvöld sat hreppsnefnd Hafnarhrepps í Hornafirði á fundi og samþykkti að hefja undirbúning að byggingu sjúkraskýlis á Höfn, þar eð brýn nauðsyn ríki á eftir. Með þessari samþykkt, sem ég veit að hugur fylgir fullkomlega, hafa heimamenn þessa myndarlega athafnabyggðartags stigið stórt spor í átt til bættrar heilbrigðisþjónustu, en þarfirnar kalla jafnframt á þjónustu fleiri lækna á svæðinu.

Þarfirnar víða úti um landið kalla mjög á, að þessi nefnd, að þessir ágætu menn ljúki störfum sem allra fyrst, og ég vil beina þeim orðum til hæstv. heilbrmrh., að hann láti þá finna það, að það sé til þess ætlazt, að þeir ljúki starfi sínu sem allra fyrst, þannig, eins og hann sagði áðan, að þetta mál geti komið í frv.-formi fyrir Alþ., áður en það lýkur störfum núna. Ég held, að þetta sé eitt af þeim málum, sem allir eru sammála um að þurfi að fá jákvæða afgreiðslu sem fyrst, og ég hef ekki trú á því, að hv. Alþ. sjái eftir því fjármagni, sem fer til þess að gera heilbrigðislegt öryggi íbúanna í landinu sem traustast.