16.12.1970
Neðri deild: 34. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í B-deild Alþingistíðinda. (459)
161. mál, tollskrá o.fl.
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Ég hef ekkert við þetta frv. að athuga í sjálfu sér og ekki heldur það, að afgreiðslu þess sé hraðað. Hitt hefði mér þótt dálítið fróðlegt, ef hæstv. fjmrh. hefði getað gefið okkur svolitla skýrslu um reynsluna af þeirri tollalækkun, sem við samþykktum hér í fyrra. Þar var um að ræða miklu umfangsmeiri tollalækkun en þessa. Ef ég man rétt, þá nam hún um 500 millj. kr., og þegar það mál var afgreitt hér á þingi, voru bornar fram nokkrar efasemdir um það, að þessi tollalækkun mundi koma fram í verðlagi. M. a. var borin fram till. hér á þingi um það, að það yrði tekið upp með því sérstakt eftirlit, en hæstv. ráðh. taldi það óþarfa og taldi, að þetta mundi gerast af sjálfu sér. Því tel ég víst, að hæstv. ráðh. hafi látið fylgjast með því vandlega, að þessi tollalækkun hafi komið fram í verðlagi. Ég get einnig látið þess getið, að ég hef orðið var við það hjá almenningi, að hann telur sig ekki hafa orðið varan við þetta nema í ákaflega sjaldgæfum tilvikum. En mér finnst, að við þurfum að vita staðreyndir um þetta efni, og ég vildi því mælast til þess við hæstv. fjmrh. að hann greindi okkur frá því, hvort ríkisstj. hafi fylgzt með því, að þessar lækkanir hafi stuðlað að lækkun verðlags í verzlunum, og hvort sú lækkun hafi komið til framkvæmda eða að hve miklu leyti hún hafi komið til framkvæmda.