16.03.1971
Sameinað þing: 34. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í D-deild Alþingistíðinda. (4597)
357. mál, stofnlán fiskiskipa
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Þó að ég viðurkenni það, sem hæstv. forsrh. Sagði, að stofnlán í sambandi við byggingu fiskiskipa séu hærri en önnur stofnlán, sem nú eru fyrir hendi, þá verð ég að telja mjög miður, að ekki skyldi hafa tekizt að halda stofnlánum til byggingar fiskiskipa í sama horfi og verið hefur fram til 20. jan. Það liggur alveg ljóst fyrir, að það eru mjög mikil verkefni fram undan í sambandi við endurnýjun fiskiskipaflotans, ekki síður hinna smærri báta en stærri fiskiskipa, og tel ég togarana þar með. Og ef við gerum okkur það ljóst, að fiskiskipaflotinn er undirstaða að efnahagsafkomu þjóðarinnar og annarra atvinnugreina, sem mjög eru háðar beint og óbeint sjávarútveginum, þá tel ég, að það verði að gera allt, sem mögulegt er, til þess að fiskiskipastóllinn verði endurnýjaður eins og þörf krefur.
Við erum, ef litið er í sjómannaalmanakið, hvað bátaflotann snertir með mjög gamlan fiskiskipastól, og endurnýjun hafði lengi vel ekki átt sér stað, eins og eðlilegt var. Nokkur fjörkippur kom í þetta, þegar stofnlánin voru verulega hækkuð, og verð ég að telja það mjög vel farið. Ég óttast það nokkuð, að það dragi úr endurnýjun fiskiskipaflotans, ef ekki tekst að halda stofnlánunum eins og þau voru fram til síðustu áramóta. Það er einnig annað, sem hefur komið í ljós við byggingu fiskiskipa hér innanlands, að þau hafa í raun, því miður, orðið allverulega dýrari en menn höfðu ætlað fyrir einu til tveimur árum, þegar endurbygging flotans hófst að nýju að nokkru marki, þannig að ég tel, að einmitt þess vegna sé enn frekar þörf á því, að stofnlánin verði eins há og frekast er kostur, og hefði talið mjög nauðsynlegt, að þau yrðu ekki lækkuð frá því, sem áður var.
Það mun vera rétt, að skipasmíðastöðvarnar þurfa ekki sérstakar ráðstafanir vegna verkefnasköpunar. Þær skipasmíðastöðvar innanlands, sem ráða við að taka að sér byggingu fiskiskipa, hafa fengið nægjanlegt verkefni nokkuð fram í tímann, og má segja, að það sé út af fyrir sig mjög gott, en ef það fer ekki að verða meiri mismunur á lánum til byggingar fiskiskipa innanlands og til kaupa á nýlegum skipum erlendis frá, þá hygg ég, að það eigi eftir að fara mjög á þann veg, að menn fari heldur í að kaupa nýleg skip erlendis frá, sem Fiskveiðasjóður hefur talið lánshæf, en að skipin verði byggð innanlands.
Ég vildi láta þetta koma fram hér, af því að þegar ég frétti af þessu, að lánin hefðu lækkað, þó að ekki sé um að ræða nema 5%, þá taldi ég það mjög miður, þó að ég hins vegar viðurkenni, að þessi stofnlán séu hærri en stofnlán annarra atvinnuvega.