16.03.1971
Sameinað þing: 34. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í D-deild Alþingistíðinda. (4601)

357. mál, stofnlán fiskiskipa

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Ég vil láta það koma hér fram, að ég tel þetta mál mjög þýðingarmikið, einnig, að mér er persónulega kunnugt um það, að eftir að fréttist um þessa fyrirhuguðu breytingu, þá hafa samningar gengið til baka um innanlandssmíðaða báta.