23.03.1971
Sameinað þing: 36. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í D-deild Alþingistíðinda. (4611)
239. mál, hreinsitæki í Áburðarverksmiðjunni
Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Á mengunarráðstefnu, sem haldin var hér í Reykjavík fyrir nokkru, gerði Hörður Þormar efnafræðingur Áburðarverksmiðjuna að umtalsefni. Hann sagði, að Áburðarverksmiðjan hefði um 20 ára skeið mengað umhverfi sitt með eiturefnum, og hann taldi, að magnið væri um 500 tonn á ári. Taldi hann, að allt of mikið kæruleysi hefði verið sýnt í þessu sambandi og þarna væri um að ræða mengun, sem væri talsvert fyrir ofan það, sem leyft væri í nágrannatöndum, þar sem hann þekkti til. Þau efni, sem þarna er um að ræða, eru einkum köfnunarefnisoxíð, NO2, og N2, og N4 og það er NO2, sem veldur þessum sterka gulbrúna lit, sem er á reyknum frá verksmiðjunni og hv. alþm. kannast vafalaust við. Þetta köfnunarefnisoxíð er ekki talið valda skaða á gróðri, nema þá í mjög sterkri mengun. Hins vegar er það hættulegt mönnum og dýrum, ef um einhverja umtalsverða mengun er að ræða. Það sýrir andrúmsloftið, og geta þær sýrur haft ertandi áhrif á slímhúðir líkamans, t. d. augu og öndunarfæri, og valdið sjúkdómum í lungum, hjarta og æðakerfi. Auk þess getur köfnunarefnisoxíð bundið heimoglobinið í blóðinu.
Nú er það ekki kunnugt, hvort nokkur slík sjúkdómsáhrif hafa gert vart við sig í nágrenni Áburðarverksmiðjunnar, enda hefur það mál alls ekki verið rannsakað. En mörg slík áhrif eru þess eðlis, að menn taka ekki eftir þeim, a. m. k. ekki lengi vel. Hins vegar taldi Hörður Þormar, eins og ég sagði áðan, að mengunin frá Áburðarverksmiðjunni væri talsvert fyrir ofan þau mörk, sem eru heimiluð annars staðar. Nú er svo ástatt um þessa verksmiðju, að verið er að breyta henni og stækka hana, og þar með er verið að endurskoða allan vélakost verksmiðjunnar. Ég lít svo á, að það sé algerlega óhjákvæmilegt, að í sambandi við þessa endurskipulagningu verði sett upp hreinsitæki í verksmiðjunni, og þetta ætti raunar að vera þeim mun auðveldara fjárhagslega séð sem köfnunarefnisoxíð er verðmætt efni, og það er í sjálfu sér fjárhagsleg sóun að láta það sleppa á þennan hátt út í andrúmsloftið. Og þess vegna hef ég leyft mér að bera upp þá spurningu við hæstv. landbrh., hvort ekki sé ráðgert, að sett verði upp hreinsitæki í sambandi við þessar breytingar á verksmiðjunni.