23.03.1971
Sameinað þing: 36. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í D-deild Alþingistíðinda. (4621)

360. mál, friðlýsing Eldborgar

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég kemst ekki hjá að láta í ljós mikla undrun mína út af því, að það skuli vera fyrrv. fjmrh., sem hélt þá ræðu, sem hann nýlega var hér að halda. Það, sem ég sagði í svari mínu orðrétt, — það er skrifað hér, — var það, að menntmrn. staðfesti friðlýsingaráform Náttúruverndarráðs sex dögum eftir að rn. fékk bréf Náttúruverndarráðs, en hlaut að taka fram, — það var skylda mín að taka það fram, — að rn. hefði þá ekki yfir sérstökum fjárveitingum að ráða til þess að standa straum af hugsanlegum skaðabótum eða öðrum fjárútlátum, sem af friðlýsingunni kynnu að leiða. Ég var starfsbróðir hæstv. fyrrv. fjmrh. í stjórn Hermanns Jónassonar, en ef ég hefði látið undir höfuð leggjast að taka fram í bréfi til Náttúruverndarráðs þá setningu, sem hér stendur, þá veit ég, hvað hann hefði látið mig heyra á ráðherrafundi. Þá hefði ég fengið að heyra það, að ég gerði ráðstafanir, sem ég hefði enga heimild til að gera. Hann mundi aldrei borga það, sem ég hefði ákveðið að borga. Svo vel þekki ég hv. þm., að ég veit vel, hvað ég segi í þessu efni. Því er það alveg furðulegt, að hann skuli leyfa sér hér, þó ekki meira en 10 árum eftir að hann hverfur úr ráðherrastól, að tala eins og hann talaði. Mér finnst það alveg furðulegt.

Um efni málsins er það annars að segja, að það hefur ekki tekizt að fá neina skynsamlega vitneskju um, hvað friðlýsingin mundi kunna að kosta. Rn. hefur reynt með hjálp hinna dómbærustu manna að gera sér einhverja grein fyrir því án árangurs. Ég hefði verið fús til að bera það upp í ríkisstj. og fara þess á leit við núverandi starfsbróður minn í sæti fjmrh. að fá fjárveitingu 1971 í þessu skyni. Ég hefði verið reiðubúinn til þess, en ég hefði ekki getað fengið að vita hjá neinum dómbærum manni, um hvað ég hefði átt að biðja. Ef hv. þm. hefði getað gefið mér upplýsingar um það, þá væri ég þakklátur fyrir það, en ég veit, að hann getur það ekki. Það er þessi óvissa, sem hefur tafið málið. Óvissan um það, um hvaða peninga væri hér í raun og veru að ræða. Nú skiptir það þm. kannske engu máli, hvort upphæðin er 100 þús. eða 10 millj., en það skipti máli fyrir 10–15 árum.