23.03.1971
Sameinað þing: 36. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í D-deild Alþingistíðinda. (4624)
360. mál, friðlýsing Eldborgar
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Nú var talsvert annar tónn í hv. þm. en var áðan. Ég vænti, að allir þm. hafi veitt því athygli, að hann sagði það skýrt og skorinort í sinni fyrstu ræðu, að það, sem hér stæði á, væri það eitt, að mig vantaði skilning á því, að þjóðin hefði efni á því að friðlýsa Eldborgina. Ef ég hefði þennan skilning á því, að þjóðin hefði efni á þessu, þá væri allt í himnalagi. Það var þetta, sem mér mislíkaði við málflutning hv. þm. Ég skal gjarnan endurtaka það hér, að það, sem hefur staðið á í þessu máli, er það, að ekki hefur tekizt að fá neitt samkomulag eða neinar upplýsingar um það, um hvaða fjárhæð væri hér að ræða. Ég hef gert ítrekaðar tilraunir til að kanna það, og hv. þm. Birgir Kjaran, formaður Náttúruverndarráðs, upplýsti einnig, að Náttúruverndarráði hefði heldur ekki tekizt að kanna, um hvað hér væri að ræða. Ég eða ráðuneytisstjóri minn gerði eina slíka tilraun í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna, en án árangurs. Ég skal gjarnan gera hv. þm. þá ánægju að láta þessa fsp. — og vona ég, að ég gleðji hann með því, — láta hana verða til þess, að úrslitatilraun sé gerð til þess að fá úr því skorið, um hvað mætti semja í þessum efnum. Reynslan hefur nefnilega sýnt það, eins og í miklu, miklu stærra máli en hér er um að ræða, t. d. Grábrókarmálinu, að þegar slíkir samningar hafa fengizt, þá hefur ekki staðið á fjárveitingum. Þær fengust umyrðalaust og voru greiddar á tveimur árum, og var þá um miklu stærri fjárhæð að ræða en hér getur verið. En einhverja vitneskju þarf maður að hafa til þess að vera ekki ofurseldur ósanngjörnum hagsmunum á eftir. En ég hef ánægju af því að gleðja gamlan samstarfsmann, og ég skal gjarnan láta þessa fsp. verða til þess, að gerð verði úrslitatilraun til könnunar á málinu, og ef það er rétt, sem hér hefur verið haldið fram, að ekki sé um verulega fjárhæð að ræða, þá efast ég ekki um, að ég muni fá góðar undirtektir hjá mínum starfsbróður í fjmrn. um þetta efni eins og önnur, sem ég ræði við hann um.