23.03.1971
Sameinað þing: 36. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í D-deild Alþingistíðinda. (4631)
361. mál, læknadeild háskólans
Kristján Ingólfsson:
Herra forseti. Það er ástæða til þess að fara viðurkenningarorðum um þessa skýrslu Kjartans Jóhannssonar, sem hæstv. menntmrh. flutti hér. Hún var vel flutt, eins og von og vísa var, og eflaust byggð á allgrundvölluðum athugunum. En þó held ég, að það sé nú dálítið vafasamt, eins og hv. 1. þm. Austf. tók fram, að vitna sýknt og heilagt í nágrannalönd í þessu sambandi. Ég skal passa mig á því að fara ekki að tala allt of mikið um læknaskortinn úti á landinu, þó að hann liggi okkur mjög á hjarta, sem við hann eigum að búa, en ég vildi í sambandi við fsp. aðeins rifja upp gamla kennisetningu, sem hæstv. menntmrh. sem stjórnmálamaður, er aðhyllist borgaralega hagfræði, ætti að kannast við. Og það er lögmálið um framboð og eftirspurn. Eftir því sem fleiri læknar eru í framboði, þeim mun betra ætti að verða að fylla þau héraðslæknasæti og þjónustulæknasæti, sem eru auð.
Ég fékk ekki annað skilið af ræðu hæstv. ráðh. eða af hans svari en að hemlarnir væru enn þá fyrir í læknadeildinni, og hann taldi það upp í tölul. 2, að deildin gæti takmarkað fjölda námsmanna, ef svo bæri undir, ef fjöldinn færi fram úr því, sem deildin teldi sig ráða við. En þá kemur spurningin: Ber hinni þjóðfélagslegu nauðsyn á öllum tímum saman við þær aðstæður, sem deildin telur sig ráða við? Ég vil undirstrika það, að ég trúi því, að það sé fullur þingvilji fyrir því, að það verði sem bezt og sem fljótast bætt úr aðstöðu læknadeildarinnar.
En það var líka eitt, sem ég hjó eftir í ræðu hæstv. ráðh. Það kann að vera óviðkunnanlegt að vera að höggva eftir aukasetningum. En það var, þegar hann sagði: „Þar sem kandídatar eru taldir til lækna, eins og viðgengst víða erlendis.“ Ég vil undirstrika það, að það viðgengst líka hérlendis, því að það eru til héruð, sem ár eftir ár hafa ekki fengið annað en kandídata, sem hafa komið frá hinu bóklega námsborði og reynslutíma spítalanna út í héruðin fullir af góðum vilja, en reynslulausir, skort þá reynslu, sem einn héraðslæknir þarf að hafa, þegar hann á að standa einn og ábyrgur í lífinu frammi fyrir öðrum. Menn hafa líka rekið sig á það, og það hef ég heyrt forráðamenn læknastéttar og læknamála viðurkenna, að í sjálfu læknanáminu við Háskólann væri of mikið ýtt undir sjálft sérnámið, sem á eftir kæmi, en ekki nægjanlega mikil áherzla lögð á hinar almennu heimilislækningar, sem eru þó hin daglega þjónusta við borgara landsins.
Ég skal ekki hafa þessi orð hér fleiri. En til þess að fara ekki of mikið út í það, sem málið fjallár ekki um, vildi ég aðeins segja. Fleiri læknar hljóta samkv. þeim lögmálum, sem við þekkjum úr mannlífinu, að þýða, að betur gangi að fylla þær læknastöður, sem eru mannlausar í dag, og læknadeildin þarf á hverjum tíma að hafa hliðsjón af tvennu að mínum dómi: því bezta, sem þekkist í vísindum læknislistarinnar, og einnig hinu þjóðfélagslega ástandi, sem ríkir í landinu. Það er ekki nóg að draga dám af nágrannaþjóðum í þessum efnum.