23.03.1971
Sameinað þing: 36. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í D-deild Alþingistíðinda. (4643)
362. mál, störf íslenskra starfsmanna í Kaupmannahöfn
Dómsmrh. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Það voru aðeins nokkur orð í tilefni af síðari ræðu hv. fyrirspyrjanda. Hann sagði, að ég hefði forðazt eins og heitan eldinn að gefa nokkrar upplýsingar um, hvernig væri háttað samstarfi prestsins og fulltrúa heilbrmrn., sem í Kaupmannahöfn er starfandi, eða starfsmanns þess. Ég skal segja það alveg eins og er, að ég vék ekki að því, vegna þess að ég gat ekki neinar upplýsingar um það gefið, hafði ekki neina skýrslu um það, hvernig slíku samstarfi væri háttað.
Út af þeim upplýsingum, sem ég gaf um kostnað af prestsembættinu í Kaupmannahöfn, — ég man nú ekki alveg töluna, hef ekki tekið með mér plöggin hér upp í ræðustólinn, en hv. þm. nefndi hins vegar aðra tölu. Ég hygg, að inni í þeirri tölu, sem hann nefndi, muni vera m. a. ferðakostnaður, flutningskostnaður á búslóð þess prestsins, sem heim kom, og hins, sem út fór, og enn fremur fargjöld fyrir fjölskyldur þeirra, bæði eiginkonur þeirra og börn. Ég held, að það, sem þarna ber á milli, skýrist af því.
Þá talaði hv. þm. um það, að eðlilegast væri að fela sendiráðunum þessa fyrirgreiðstu við sjúklinga eða fólk, sem leitar sér lækninga erlendis. Það má vel vera, að það sé réttasta leiðin. Hitt er annað, að þegar prestsembættið í Kaupmannahöfn er ákveðið, þá er beinlínis gengið út frá því, að presturinn hafi slíka þjónustu með höndum. Það má vel vera, að því sé hægt að skipa á heppilegri veg, en það er a. m. k. ekki orðið enn, hvað sem síðar kann að verða.
Mér dettur í hug eitt í sambandi við þessa þjónustu við sjúklinga. Það þykir nú kannske ekki stórt mál, en það rifjaðist upp fyrir mér fyrir nokkru síðan, að einhvern tíma var ég á ferð í Kaupmannahöfn og hitti þar fólk, sem var í fylgd með sjúklingi, sem var verið að flytja þangað á spítala. Þá sagði við mig gömul vinkona mín, sem var gift og búsett í Kaupmannahöfn og hafði verið þar árum saman og orðin það roskin, að hennar börn voru komin vel á legg og hún ekki bundin af sínu heimili mikið, hún sagðist furða sig á, að það skyldi ekki hafa verið komið á einhverjum samtökum meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn, húsmæðra íslenzkra, sem eru fjöldamargar búsettar í Kaupmannahöfn, um að stofna til einhvers þjónustustarfs við Íslendinga, sem liggja þar á sjúkrahúsum. Ég sagði nú við hana, hvers vegna hún gerði þetta ekki sjálf. Hún sagði, að hún hefði kannske ekki svo góða aðstöðu til þess, en ég skal viðurkenna, að það var eiginlega nú nýlega, sem þetta rifjaðist upp fyrir mér, og ég mun nú a. m. k. koma þessu áleiðis til þeirra aðila, sem hugsanlegt væri, að beittu sér fyrir slíku. Ég fyrir mitt leyti legg mikið einmitt upp úr slíkri — ég veit ekki, hvort við eigum að nefna það þjónustu, mikið upp úr því að mynda einmitt tengsl milli sjúklinganna og slíks fólks. Í sumum tilfellum álít ég, að það græðist ýmislegt meira á því en ef þarna væri beinlínis um að ræða embættismenn, oft störfum hlaðna. Þetta er þá þjónusta eða fyrirgreiðsla, sem látin yrði í té að sjálfsögðu án nokkurrar þóknunar eða endurgjalds.
Eitt atriðið í fsp., sem ég athugaði nú reyndar ekki áðan, var um tengsl íslenzka prestsins við sendiráðið í Kaupmannahöfn. Á sínum tíma þegar sr. Jónas Gíslason fór fyrst út, 1964 minnir mig, að það hafi verið, þá mun hann hafa verið tilkynntur til danska utanrrn. sem sendiráðsprestur og fékk að því leyti vissa diplómatíska stöðu eða starfssvið, ef ég mætti nú nota það orð. Hins vegar er mér ekki fullkunnugt um, hvort enn þá hefur átt sér stað slík tilkynning eða verið fengin slík viðurkenning fyrir prestinn, sem nú starfar í Kaupmannahöfn. Ég mun hins vegar athuga, hvort svo hefur verið gert eða hvort talið yrði rétt að óska eftir því.