30.03.1971
Sameinað þing: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í D-deild Alþingistíðinda. (4652)

358. mál, samgöngur við Austurland

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Það var tvennt, sem kom fram í svörum hæstv. ráðh., sem mér finnst, að geti valdið svolitlum misskilningi. Þegar taldar eru upp allar viðkomur skipanna á Austfjarðahöfnum, þá verða menn að hafa það í huga, sem hv. fyrirspyrjandi benti raunar á, að mikið af þeim viðkomum er eingöngu til þess að taka útflutningsvörur án þess að aðrar vörur séu fluttar um leið. Þannig er því nú varið. Eins er hitt, að þegar segir í bréfi frá Eimskip, að það hafi ekki verið ákveðin innflutningshöfn á Reyðarfirði fyrr, vegna þess að Austfirðingar hafi ekki verið sammála um höfnina, þá held ég, að þetta sé nú nánast fyrirsláttur. Það hefur áreiðanlega ekki staðið á Austfirðingum að taka ákvörðun um það, hvar innflutningshöfnin ætti að vera, ef þeir hefðu átt kost á því að fá hana ákveðna.

Mér þótti vænt um, þegar þessi fsp. kom fram. Þetta er mál, sem við Austfirðingar höfum haft á oddi og reynt að vinna að að undanförnu. Í þingbyrjun flutti ég fsp. um svipað efni, og þá sagði hæstv. ráðh., að nauðsynlegt væri að ræða við skipafélögin, og gaf til kynna, að hann mundi gera það. Ég var satt að segja, eins og hv. fyrirspyrjandi, forvitinn að heyra, hvað gerzt hefði í málinu. Nú hafa svörin komið fram. Það hefur þegar verið tekin ákvörðun um, að Reyðarfjörður verði gerður að innflutningshöfn fyrir Austurland, og jafnframt upplýsir ráðh., — ég hafði nú haldið, að markið væri nokkru hærra, — að allar hafnir, sem skipin á annað borð koma á, geti fengið vöru án aukakostnaðar, ef magnið nær 20–30 tonnum. Ég vil láta það koma í ljós sem mína skoðun, að um þýðingarmikinn áfanga sé að ræða, að því er varðar innflutningshöfn á Reyðarfirði, en þó sé með því engan veginn nóg að gert.

Á árunum 1962–1968 voru þau réttindi, sem dreifbýlið hafði í sambandi við framflutninga innfluttrar vöru, þrengd smátt og smátt. Framhaldsfragtirnar voru felldar niður í áföngum og innflutningshöfnum var fækkað. Ég lít svo á, að það sé algert lágmark, að þessu verði kippt til baka og við fáum ekki verri kjör úti á landsbyggðinni en við höfðum 1962, áður en þessi óheillaþróun hófst. En hún hlýtur að hafa verið gerð annaðhvort með vitund eða a. m. k. án mótaðgerða af hálfu stjórnarvalda, því að fragtir hafa yfirleitt verið undir verðlagsákvæðum. Þetta hygg ég, að þyrfti að gerast eftir ýmsum leiðum, með því að skipafélögin tækju aftur þátt í framhaldsfragtinni að nokkru leyti, að Ríkisskip veiti afslátt, a. m. k. af öllum stærri slöttum, þegar um innfluttar vörur er að ræða, eða kannske í öllum tilfellum, og einnig að stuðla að því, að skipafélögin sjálf flytji sem allra mest beint.

Ég vil leyfa mér að láta í ljósi þá eindregnu von, að stjórnarvöld, samgrh. í þessu tilfelli, láti ekki hér staðar numið, heldur beiti áhrifum sínum til þess, að frekari lagfæringar fáist á þessum málum.