30.03.1971
Sameinað þing: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í D-deild Alþingistíðinda. (4663)

363. mál, Fræðslumyndasafn ríkisins

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég stend upp aftur til þess að ítreka hneykslun mína yfir málflutningi hæstv. ráðh. Ég má segja, að hann bæti ofan á nú í síðustu ræðu sinni, því að eftir þær upplýsingar, sem við fengum hér um þessa tilteknu kvikmynd frá hv. þm. Geir Gunnarssyni, þá er það niðurstaða hans, að það sé ekkert við þessar kvikmyndir að athuga, og hann fullyrðir raunar, að það sé ekkert athugavert við þær allar, eins og þær leggja sig. Þær eru 13 talsins. M. ö. o., hæstv. ráðh. hefur skoðað allar þessar myndir, öðruvísi getur hann ekki fullyrt þetta. (Gripið fram í.) En treystir m. ö. o. þá dómi flokksbróður síns, forstjóra Fræðslumyndasafnsins. Mér finnst hvort tveggja jafnathugavert. Það liggur sem sé ljóst fyrir, að ýmsir aðilar geta komið á framfæri þeim fróðleik, sem þeir hafa hug á að koma á framfæri við íslenzk skólabörn, í gegnum Fræðslumyndasafn ríkisins. Eftir þessu virðist mér t. d. ekkert því til fyrirstöðu, að Fræðslumyndasafnið dreifi fræðslumyndum frá stjórn Suður-Afríku um kynþáttamál. Það ætti að nægja að dómi hæstv. ráðh. og forstjóra Fræðslumyndasafnsins að skrifa utan á, að myndin sé frá Suður-Afríku.