30.03.1971
Sameinað þing: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í D-deild Alþingistíðinda. (4671)
364. mál, náttúrugripasafn
Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þann fróðleik, sem hann miðlaði þm. Það kom fram í máli hans, að ekki er um að ræða nein áþreifanleg áform um byggingu náttúrugripasafns eða þær aðgerðir aðrar, sem því ættu að vera tengdar. Það er aðeins starfandi nefnd á þessu sviði, sem á að semja álitsgerð og gera tillögur, en nefndirnar, sem starfa á vegum hæstv. menntmrh., eru nú svo margar, að á þær verður naumast komið tölu. Og þegar maður heyrir þær fregnir, að nefnd hafi verið falið að gera eitt eða annað, þá tekur maður nú ekki mikið mark á því, eins og nú er komið. En hæstv. ráðh. sagði, að það hefði engin ákvörðun verið tekin um nýbyggingu. Sem sé, það eru ekki horfur á neinum framkvæmdum á næstunni á þessu sviði, og mér finnst vera full ástæða til þess að harma það.