30.03.1971
Sameinað þing: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 831 í D-deild Alþingistíðinda. (4681)

369. mál, raforkumál Þistilfjarðarbyggða

Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp., sem hljóðar svo:

„Hefur rn. gert nokkrar ráðstafanir til að leysa raforkumál Þistilfjarðarbyggða, og hvernig þá, og hvenær hyggst það hrinda þeim fyrirætlunum í framkvæmd?“

Tilefni þessarar fsp. er það, að fyrir liggur að taka ákvörðun um, hvernig Þórshöfn á Langanesi, um 450 manna kauptún, skuli öðlast vatnsaflsraforku, en kauptúnið og nokkrir sveitabæir í næsta nágrenni hafa nú rafmagn frá dísilrafstöð. Það er, eins og allir vita, dýrt, en þó verra hitt, hve áhættusamt er að búa við slíkt í landshluta, þar sem hafís getur lokað olíuflutningaleiðum, jafnvel svo vikum skiptir. Tvær eru þær leiðir, sem helzt hafa þótt koma til greina til þess að afla Þórshöfn rafmagns frá vatnsorku, virkjun Sandár í Þistilfirði og lína frá Laxárvirkjun. Eftir því sem ég veit bezt, er það álit Orkustofnunarinnar, að hagkvæmara sé að koma Laxárrafmagni til Þórshafnar en virkja Sandá, en þá er eftir að ákveða línuleiðina, og hefur verið rætt um línu ýmist frá Raufarhöfn eða Kópaskeri. Nú er sveitarbyggðin í Þistilfirði fremur strjál og skiptist lítið í hverfi. Fellur byggðin þannig öll utan þeirra rafvæðingarmarka, sem nú er fylgt í framkvæmdum sveitarafvæðingar, 1.5 km í meðalfjarlægð milli bæja. Von Þistilfirðinga um rafmagn frá vatnsaflsstöð er því bundin því, að bæirnir og kauptúnið séu helzt tekin sem ein heild til rafvæðingar frá Sandárvirkjun eða öllu heldur um Laxárlínu frá Raufarhöfn eða Kópaskeri til Þórshafnar og hún verði ekki háspenntari en svo, að spennutengja megi við hana alla Þistilfjarðarbæi í leiðinni. Af rafmagnsfróðum mönnum er mér tjáð, að á þessu séu ekki tæknileg vandkvæði, meðan orkuþörf Þórshafnar er ekki meiri en enn er. Nú er það mikið áhugamál Þistilfjarðarbúa, að þeim sé búinn hagkvæmasti kosturinn í þessu efni og engir settir hjá, en benda þó á, að Kollavíkurbæir tveir að tölu lenda út úr dæminu, sé Laxárlínan lögð beint frá Kópaskeri. Telja þeir, að tína frá Raufarhöfn lægi betur við. Að beiðni ýmissa Þistilfjarðarbúa er því fsp. mín borin fram, ef ljósara mætti vera, hver þessara kosta verði valinn eða hvers þessir íbúar megi vænta í raforkumálum sínum á næstunni.