18.12.1970
Efri deild: 39. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (476)
161. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. (Sveinn Guðmundsson):
Herra forseti. Fjhn. skaut á skyndifundi, þar sem fram komu veigamiklar brtt. við tollskrárfrv. frá Nd. Eins og hæstv. fjmrh. tók fram, gerði fjhn. á frv. nokkrar breytingar aðallega á númeraröð og til að viðhalda skýrara orðalagi á frv. Ákvæðið um borðbúnað og fleira til hótelrekstrar, sem fjhn. hafði lagt til, að tollur yrði lækkaður á, er nú gert að heimildarákvæði, eins og hæstv. ráðh. tók fram, og náttúrlega kemur það í einn stað niður, en ætti að fyrirbyggja misnotkun, sem hugsanleg væri við þessa miklu tollalækkun. Brtt., sem var samþ. í Nd. frá hæstv. fjmrh. á þskj. 295, er til bóta fyrir iðnað á rafmagnssviði og margs konar atvinnurekstur landsmanna. Fjhn. Ed. hafði mikinn áhuga á að taka þessar breytingar inn í till. sínar, en fjmrn. þótti þær þá of kostnaðarsamar. Ég lýsi ánægju yfir breyttri afstöðu fjmrn. Fjhn. mælir eindregið með samþykkt frv. með á orðnum breytingum.