30.11.1970
Neðri deild: 25. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í B-deild Alþingistíðinda. (494)

6. mál, Lífeyrissjóður bænda

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins vekja athygli á máli, sem snertir þetta mál, og það er í sambandi við greiðslur til aldraðra bænda, sem frv. þetta gerir ráð fyrir. Þegar þetta mál var í undirbúningi var einnig á döfinni framkvæmd laganna um eftirlaun til aldraðra í verkalýðsfélögunum, og þá kom í ljós — og var raunar vitað vegna þeirra reglna, sem þar gilda — að nokkrir falla niður á milli, ef svo mætti orða það, þ. e. fá hvorki rétt samkv. þeim lögum né heldur þessum lögum, nema sérstakt tillit sé tekið til þess arna. Ég á hér við bændur, sem hafa hætt búskap fyrir lok ársins 1967 og eru komnir á mölina, en eru búnir að vinna í kaupstöðum eða kauptúnum svo skamman tíma, að þeir fá heldur ekki réttindi samkv. lögum um eftirlaun til aldraðra í öðrum stéttarfélögum. Ég átti nokkrar viðræður við menn, sem unnu að undirbúningi þessarar lagasetningar og lögðu áherzlu á, að reynt yrði að byggja einhverja. brú þarna á milli. Ég sé ekki, að það hafi enn orðið, en legg áherzlu á, að það sé gert. Hér yrði í raun og veru um óréttlæti að ræða, þegar bændur almennt væru búnir að fá þennan rétt og einnig fólk almennt í verkalýðsfélögunum. Ég held, að það væri einfaldast að smíða þessa brú á þann hátt að breyta lögunum um eftirlaun til aldraðra í stéttarfélögum, en þá verður með einhverjum hætti að sjá fyrir þeim fjármunum, sem til þess þarf. Ég vil leggja áherzlu á, að jafnframt því, sem þetta mál yrði afgreitt, þá yrði þetta atriði grandskoðað og vildi gjarnan mælast til þess, að ríkisstj. gæfi einhverjar yfirlýsingar þar um.