18.12.1970
Efri deild: 39. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (526)
6. mál, Lífeyrissjóður bænda
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Sú eina breyting, sem þetta mál hefur tekið í hv. Nd., er sú, að samþ. var þar, að lögin skyldu endurskoðuð innan tveggja ára og þá gerðar á því þær breytingar, sem nauðsynlegar þættu miðað við þá reynslu, sem þá væri fengin. Þessu tel ég rétt að skýra frá, og að öðru leyti varð engin breyting á frv. Ég vonast til, að þessi breyting sé þess eðlis, að hún breyti ekki afstöðu manna hér til málsins, og ég tel ekki þörf á því, að það fari hér aftur til nefndar.