18.12.1970
Efri deild: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (553)
176. mál, fyrirframinnheimta opinberra gjalda
Frsm. meiri hl. (Sveinn Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. til laga um fyrirframinnheimtu opinberra gjalda, 176. mál, flutt af hæstv. ríkisstj., hefur verið til umsagnar hjá fjhn. Ed. Á þskj. 282 flytur meiri hl. n. till. um breytingu og umorðun á 1. gr. Frv. þetta kveður á um, að innheimta opinberra gjalda megi hækka óákveðið á fyrri hluta árs, ef kaupgjald almennt í landinu hefur hækkað 15% eða meira. Slíkt skyldi í framkvæmd vera gert samkv. úrskurði fjmrn. að fengnum till. Efnahagsstofnunarinnar. Með brtt., sem fyrir liggur frá meiri hl. fjhn. á þskj. 282, er gert ráð fyrir að takmarka heimild til hækkunar á innheimtu fyrir fram greiddra gjalda í 57% — þó því aðeins að kaupgjald hafi hækkað meira en 15% árið áður, eins og áður var í frv. Einnig hefur orðalagi 1. gr. verið breytt og það gert skýrara. Að þessari brtt. standa allir nm. nema háttv. 4. þm. Norðurl. e., sem er andvígur frv. og skilar nál. á þskj. 283. Nál. meiri hl. á þskj. 281 er undirritað með fyrirvara af hv. 11. þm. Reykv., hv. 3. þm. Vestf. og hv. 4. þm. Reykn. Benda má á, að í brtt. meiri hl. er ekki gert ráð fyrir, að fjmrn. þurfi að afla sér umsagnar eða fá till. Efnahagsstofnunarinnar, eins og frv. gerir ráð fyrir. Í aths. við 1. gr. frv. er talið, að hér sé verið að bæta þá ágalla, sem verið hafa á því að jafna greiðslubyrði gjaldenda milli fyrri og síðari árshelmings þegar kauphækkanir fyrra árs ná 15% eða meira. Fjhn. lítur nokkuð öðrum augum á þetta mál en þeir, sem samið hafa frv. þetta. Þess vegna liggur hér fyrir brtt. við 1. gr., eins og ég hef áður getið.
Mín persónulega skoðun er sú, að kaupgjald eigi aldrei að hækka 15% eða meira á einu ári. Hið óæskilega ástand, sem skapazt hefur hér á yfirstandandi ári og reyndar oft áður, er hið óheppilegasta, og til þess eru vítin að varast þau. Ég er ekki í vafa um, að sú þróun, sem átt hefur sér stað, sé sú óhagkvæmasta, sem fyrir getur komið og megi ekki endurtaka sig undir neinum kringumstæðum. Að mínum dómi fara hér saman hagsmunir þess opinbera, launþega og vinnuveitenda. Það er ekki ætlun mín að ræða þessa þróun frekar nú, þótt full ástæða væri hins vegar til þess og þetta frv. gefi til þess kærkomið tækifæri. En ég fullyrði, að þessi stóra stökkbreyting kaupgjalds er eins óheppileg og verið getur, en ekki verður snúið til baka, og því er þetta frv. fram komið. Ég tel hins vegar ekki, að ganga eigi út frá þessu sem algildri reglu. M. a. af þeim sökum hefur meiri hl. fjhn. ekki viljað ganga eins langt og gert er ráð fyrir í frv. Með þessum orðum segi ég ekki, að laun séu óeðlilega há í dag. En hefði ekki verið skynsamlegra fyrir alla aðila að taka stökkið annaðhvort með lengri aðdraganda eða fá aðila vinnumarkaðarins til að semja um hækkun, sem dreifðist á lengri tíma, en kæmi ekki í stóru stökki, sem veldur slíkum erfiðleikum, sem raun ber vitni? Í framsögu fyrir frv. þessu sagði hæstv. fjmrh., að sú hækkun, sem frv. gerir ráð fyrir, skipti ekki miklu máli fyrir ríkissjóð, en þetta hefði úrslitaáhrif á afkomu margra sveitarfélaga.
Ég skil vel vandræði margra sveitarfélaga, þegar slíkar snöggar stökkbreytingar verða á tilkostnaði, sem er líklega í beinu samræmi við hækkun kaupgjalds auk þess, sem sveitarfélögin verða að halda uppi stórfelldum framkvæmdum yfir sumarmánuðina, t. d. gatnagerð, holræsagerð, undirbúningi lóða og öðru, sem er beinlínis ekki hægt að framkvæma á öðrum árstímum. Hins vegar verð ég að segja það, að ég skil ekki, til hvers hið stóra útþanda bankakerfi okkar er, ef það á ekki að hlaupa undir bagga með tímabundnar lánveitingar — og ætti það að gilda að jöfnu fyrir bæjarfélögin sem fyrirtæki og einstaklinga ekki sízt, þar sem fyrirgreiðslan er jafntímabundin og hjá bæjarfélögum, þótt þeir þyrftu að bíða nokkuð eftir greiðslu gjalda. Ég er þess vegna viss um, að afstaða vinnuveitenda og vinnuþiggjenda er nokkurn veginn sú sama í reynd, þegar þetta er skoðað niður í kjölinn. Afstaða meiri hl. fjhn. hefur því verið sú að draga úr verkan frv. og takmarka möguleika til innheimtu opinberra gjalda við 57% í þeim einstöku tilfellum, sem nú eru fyrir hendi.
Í þessu sambandi er vert að minna á svokallaða skattvísitölu sem sett var inn í l. um tekju- og eignarskatt fyrri hl. árs 1965 og tók gildi frá og með gjaldárinu 1966. Samkv. 10. gr. nefndra l. er skylt að hækka eða lækka álagða skatta í samræmi við skattvísitölu, sem fjmrh. skal ákvarða að fengnum till. kauplagsnefndar, hagstofustjóra og ríkisskattstjóra. Hækkun skattvísitölu frá því, að hún var tekin í lög, sem að sjálfsögðu þýðir lækkun skatta, hefur svo frá byrjun verið 40%. 1965 var skattvísitalan 100 stig, 1966 var hún 112½ stig, 1967 var hún 129 stig, 1968 var hún 129 stig aftur, 1969 129 stig, en 1970 fór hún hins vegar upp í 140 stig. Skattvísitala fyrir gjöld yfirstandandi árs, sem nefnist skattvísitala fyrir árið 1971, er enn óákveðin. Væri fróðlegt að heyra umsögn hæstv. fjmrh. um, hvað hann telur, að hún muni verða, og hvenær birting hennar verði kunngjörð. En einmitt í sambandi við skattvísitölu verður að minnast á þróun tímakaupsins. Þróun tímakaups hins almenna verkamanns í Reykjavík var sú, þegar skattvísitalan var sett við 100, að meðalkaup Dagsbrúnarmannsins var 40.21 kr., og ef það er nefnt 100, þá var hún 1966 117.27, 1967 123.l, 1968 132 og 1969 153.5, og 1. des. núna er meðalkaup verkamanna Dagsbrúnar 84.43 kr., og ætti þá stigatala tímabilsins að vera 209.5. Ef litið er á þróun kaupmáttar tímakaups Dagsbrúnarmanna í dagvinnu, þá er hækkun 15.8% frá 1965 miðað við síðasta ársfjórðung 1970. Kaupmáttur er þar með sá hæsti, sem orðið hefur á 10 ára bili. Áður hafði hann orðið hæstur á 4. ársfjórðungi 1966, 13.4%.
Eftir þær tölur, sem ég hef nú nefnt og miðað við óskertan kaupmátt, þá lætur að líkum, að skattvísitalan á nú að stórhækka. Eins og ég sagði áðan, þá væri fróðlegt að heyra álit hæstv. fjmrh. á því, hvenær von sé á endanlegri ákvörðun hans, og eins á því, á hvern hátt þær reglur eru, sem farið er eftir við ákvörðun skattvísitölu, er farið er eftir till. hinnar opinberu nefndar, sem l. kveða á um, og hvaða forsendur þessir aðilar gefa sér við útreikninginn. Á ég að sjálfsögðu við kauplagsnefnd, hagstofustjóra og ríkisskattstjóra, sem eiga að leggja fyrir hæstv. fjmrh. till. eftir fyrir fram ákveðnum reglum þar um.