18.12.1970
Efri deild: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (555)
176. mál, fyrirframinnheimta opinberra gjalda
Axel Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Það er út af fyrir sig eðlilegt, að framgangur þessa máls sé kannske ekki sérstakt áhugamál hæstv. fjmrh. Þau gjöld, sem þarna er kveðið á um, eru ákaflega lág prósenta af heildartekjum ríkissjóðs, en hins vegar verulegur hluti af tekjustofnum sveitarfélaganna eða aðaltekjustofnar þeirra. Það mun vera svo, að útsvörin eru frá 65% af heildartekjum sveitarfélaganna, eins og það mun vera hér í Reykjavíkurborg, og allt upp í 70 og yfir 70% af tekjum annarra sveitarfélaga eins og t. d. þar, sem ég er kunnugastur, í nágrannasveitarfélaginu í Kópavogi. Þar eru útsvarstekjur um 70% af öllum tekjum sveitarfélagsins. Ég þekki ekki til eða hef ekki haft spurnir af fjárhagsáætlun nema þessara tveggja sveitarfélaga, sem ég hef hér minnzt á. En samkvæmt þeim athugunum, sem liggja til grundvallar þessari fjárhagsáætlunargerð á báðum stöðum, þá kemur í ljós geysilega mikið aukinn rekstrarkostnaður miðað við s. l. ár, og þar er gert ráð fyrir í krónutölu verulegri útsvarshækkun frá s. l. ári. T. d. er það svo í Kópavogi, að þar er gert ráð fyrir 33% hækkun í krónutölu.
Ég ætla aðeins að minna hv. þdm. á, að við stöndum þar andspænis því, að að óbreyttum lögum í þessu efni getum við innheimt 48 millj. kr. á fyrstu sjö mánuðum ársins 1971, en ættum þá eftir að innheimta 80 millj. kr. eftir júlílok miðað við þá fjárhagsáætlun, sem þar hefur verið gerð. Það er sem sé rúmlega 1/3, sem sveitarfélagið getur vænzt að fá inn á fyrstu sjö mánuðum ársins, en tæplega 2/3, sem gera mætti þá ráð fyrir, að innheimtist á seinni hluta ársins. Og þess vegna er það, að óskin um breytingu á þeim lögum, sem hér liggur frammi, er fyrst og fremst komin frá sveitarfélögunum og sér í lagi sveitarfélögum hér í nágrenninu. Það er þarna, sem skórinn kreppir að, og ég vil benda á, að þetta er ekkert sérstakt vandamál þeirra, sem með sveitarstjórnarmálin fara á hverjum stað. Ég tel, að sveitarstjórnarmennirnir séu þar á alveg sama báti og aðrir þegnar sveitarfélaganna; ég vil ekki gera þarna neinn greinarmun á. Ef sveitarfélagið er í vanda, þá eru það ekki aðeins sveitarstjórnarmennirnir, heldur og allir þegnar þess, sem standa andspænis því. Það er eðlilega gerð krafa um það, að haldið sé uppi þjónustu og framkvæmdum með eðlilegum hætti árið út, þó að auðvitað verulegur hluti af verklegum framkvæmdum komi fyrst og fremst á þann tíma ársins, sem hagkvæmast er að vinna þær, en margháttuð þjónusta og framkvæmdir að öðru leyti standa yfir hjá sveitarfélögunum allt árið, og það eru kröfur uppi um það af íbúum sveitarfélaganna, að svo sé gert. Þess vegna vil ég alveg frábiðja mér það að sveitarstjórnarmenn séu þar einhver annar aðili og íbúar sveitarfélaganna í öðrum báti. Þetta er sameiginlegt vandamál þegna sveitarfélagsins allra.
Ég skal viðurkenna, að sú breyting, sem hér er lagt til að gera frá því, sem er í gildandi lögum, er til bóta, en ég tel þó, að hún hefði átt að ganga lengra. Og það hefði verið til hagræðis fyrir sveitarfélögin og íbúa þess og yfirleitt alla. Það er vitnað í það, að bankakerfið eigi að hlaupa undir bagga til þess að jafna metin í þessu. Ég get enn vitnað til míns sveitarfélags. Við þurfum verulega að leita til bankakerfisins á komandi ári til þess að geta haldið uppi þeim framkvæmdum, sem nauðsynlegar eru í því sveitarfélagi burtséð frá því, hvort þessi breyting, sem hér liggur fyrir, verður gerð á lögunum eða ekki. Og mér skilst, að það sé ekkert sérstakt vandamál í því sveitarfélagi, sem ég geri hér fyrst og fremst að umtalsefni. Mér skilst, að þannig sé það a. m. k. hér í nágrenni Reykjavíkur. Ég hef ekki fregnir annars staðar frá.
Stundum heyrir maður um áhuga á því, að tekin verði upp staðgreiðsla á þessum gjöldum, og mér skilst, að það séu margir, sem hafa áhuga á því, að slíkt komist á. Ef það væri tekið upp, þá væri slíkt vandamál sem hér um ræðir auðvitað ekki á dagskrá. En ef það er ekki sanngjarnt fyrir alla aðila að leitast við að deila útsvarsgreiðslunni sem mest og jafnast á árið, þá get ég ekki séð, að það séu rök fyrir því að taka upp staðgreiðslukerfi skatta, eins og ég hef heyrt, að svo víða sé áhugi á.
Ég skal viðurkenna það, að það er mikil nauðsyn á því að endurskoða tekjustofnalög sveitarfélaganna og endurskoða verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, en það verður vart gert, svo að það komi til verulegra framkvæmda á árinu 1971. Og þess vegna er sá vandi, sem staðið er andspænis verulega mikill, ef ekki er gengið til móts við þær till. sveitarstjórnarmanna í þessu efni, sem ég hef hér getið um. Ég trúi því ekki, að hv. þdm. skilji ekki það vandamál, sem sveitarfélögin og íbúar þeirra eiga við að etja í þessu efni, og verði því hlynntir því að gera þá breytingu, sem hér er farið fram á. Og ég endurtek, að ég hefði viljað ganga lengra; ég hefði viljað setja markið við 60%. Og þó að það væri gert, þá væri talsvert stærri hluti eftir af ógreiddum gjöldum á seinni hluta ársins. Um það, að menn hafi betri greiðslugetu á seinni hluta ársins, skal ég ekki dæma; það getur verið í einstaka tilfellum og öðrum sjálfsagt ekki. Við skulum ekki gleyma því, að síðari hlutar ársins eru oft kostnaðarsamir fyrir þá, sem hafa börn og unglinga í skóla, og jólamánuðurinn er kannske talinn einhver kostnaðarsamasti mánuðurinn fyrir fjölskyldufeður. Ég vil ekki ræða það frekar, en tel, að það sé til hagsbóta fyrir gjaldendur sveitarfélaganna að greiða sín gjöld sem jafnast yfir árið og þeir tryggja einnig á þann hátt sem eðlilegastar og jafnastar framkvæmdir, hvort heldur er í verklegum efnum eða í þjónustustarfsemi.