18.12.1970
Efri deild: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (556)

176. mál, fyrirframinnheimta opinberra gjalda

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Þetta frv. virðist vera eitt af óhreinu börnunum hæstv. fjmrh.; hann hefur ekki tíma til þess að fylgjast með afgreiðslu þess hér. Kannske heldur ekki áhuga á því. Hann sagði það við 1. umr., að sér væri það ekki kappsmál að knýja þetta mál fram, nema full samstaða væri um það hér í d., og vegna þessara ummæla og afstöðu fjmrh. hefur þetta frv. fengið mjög óvenjulega meðferð — vil ég segja. Það hefur verið afgr. hér á hlaupum innan um önnur stórmál. Þegar í ljós kom, að áhugi í hv. fjhn. var vægast sagt takmarkaður á framgangi málsins, þá litum við nm. svo til, að málið væri þar með úr sögunni. Og hæstv. fjmrh. var látinn vita um þessa afstöðu nm., að það væri a. m. k. ekki neinn sérstakur áhugi á því að samþykkja frv., en síðan kom það þó aftur til okkar með þeim ummælum, að líklega væri það rétt að láta þetta ná fram að ganga. Þá var það, sem við fulltrúar Framsfl. nánast utan fundar gerðum það upp í háttv. fjhn., að ætti þetta mál fram að ganga, þá væri það skárra, þegar gerð hefði verið sú breyting á því, sem felst í brtt. á þskj. 282 og form. hv. fjhn. sýndi okkur, heldur en upphaflega frv., sem satt að segja var óskapnaður og illskiljanlegt — og auk þess lagt undir einhverja stofnun úti í bæ, sem ég a. m. k. fyrir mitt leyti kem ekki auga á, að eigi að hafa úrslitavald um það, hvaða útsvarsfyrirframgreiðslu sveitarfélögin innheimti. Ég tel alveg nægilega mikið af ráðum þangað sótt, þótt þessu væri sleppt.

Eins og till. er nú orðuð eða lagagreinin, er þó hægt að skilja, hvað við er átt. Efni hennar er það, að ef kaupgjald hefur almennt hækkað um 15% eða meira á fyrra ári, þá megi hækka þann hundraðshluta, sem sveitarfélög hafa leyfi til að ákveða samkv. 47. gr. tekjustofnalaganna, að innheimtur sé á fyrstu 6 mánuðum ársins með tveimur gjalddögum. En þessi ákvörðun er lögð á vald fjmrn. Það, sem mér finnst fyrst og fremst óaðgengilegt við þetta lagaákvæði, er það, að með því slær Alþ. því föstu, að allar launahækkanir, sem nema meira en 15%, hljóti að þýða skattahækkun. En ég vil fyrir mitt leyti ekki slá þessu föstu. Ég vil, að sérstakar reglur gildi fyrir þær launahækkanir, sem fram fara til þess að jafna metin fyrir launþegann, þ. e. til að bæta honum upp þau efnahagslegu áföll, sem hann hefur orðið fyrir. Og þess er skemmst að minnast, að launþegar hafa orðið fyrir verulegum efnahagslegum áföllum, þegar gengið var fellt tvisvar sinnum með árs millibili og launin voru mjög lítið hækkuð vegna þeirra verðhækkana, sem af gengisfellingum leiddi. Slík efnahagsáföll ætti samkvæmt mínum dómi að vera unnt að leiðrétta fyrir launþega án þess, að kúfurinn eða jafnvel allt sé tekið með hækkuðum tekjusköttum, hvort sem það heitir nú tekjuskattur til ríkissjóðs eða útsvar til sveitarfélaga. Hins vegar geta svo verið aðrar kauphækkanir á ferðinni, sem eðlilegt megi telja, að hið opinbera fái nokkurn hluta af. Og þegar þannig hagar til, þá má segja, að ekki sé óeðlilegt, að sveitarfélag njóti þeirrar auknu gjaldheimtu og hafi einhvers konar heimild til þess að innheimta þá örlítið meira kannske. En ég vil ekki viðurkenna það, að jafnan þegar laun hækka um 15%, þá sé það alveg sjálfsagt, að skattar þessir, sem hér um ræðir, hækki að einhverju marki svo verulega, að það þurfi að gera lagalegar ráðstafanir til þess, að sveitarfélögin fái hluta af þeim tekjuhækkunum.

Ég sé, að hæstv. fjmrh. er kominn á fundinn. Ég fagna því, að . . (Fjmrh.: Ég var því miður við umr. í Nd.) Ég geri ekki þá kröfu til hæstv. fjmrh., að hann sé á tveim stöðum í einu, en æskilegt væri raunar, að þingstörfum mætti haga þannig, að hæstv. ráðh. ynnist tóm til þess að fylgjast með afgreiðslu sinna mála, og oft er það nú gert. En nú liggur mikið við að ljúka þingi, og ég lái hæstv. fjmrh. ekki þetta. En ég vil af því tilefni, að hann er nú kominn hér til okkar góðu heilli, undirstrika og taka undir þær fsp., sem hv. 7. landsk. þm. setti hér fram áðan um það, hvenær vænta megi upplýsinga um skattvísitölu þá, sem gilda muni á næsta ári, því að það er auðvitað verulegt atriði, þegar menn reyna að gera sér grein fyrir því, hvernig tekjuskattarnir verði á næsta ári. Og það hefur bein áhrif á þann mismun, sem ég var að reyna að gera hér grein fyrir, að samkvæmt mínu mati ætti að gera á launahækkunum.

Ég viðurkenni það, sem hv. 4. þm. Reykn. benti hér á, að vissulega hafa sveitarfélögin talsverða þörf fyrir aukið fjármagn til starfsemi sinnar, þegar verðbólgan geisar eins og raun ber vitni. En það er bara ekkert nýtt vandamál, eins og hér hefur verið bent á. Ég veit ekki, hvort verðbólgan hefur farið hraðar nú um skeið eða hvort hún fer hraðar á næsta ári en hún hefur gert. Við búum við verðstöðvun og þar af leiðandi enga hækkun á vísitölu a. m. k. eitthvað fram eftir næsta ári, og ég get ekki fallizt á, að þetta eitt út af fyrir sig réttlæti það, að þessi ákvæði verði lögfest.

Samkvæmt 47. gr. tekjustofnalaganna þá á engin fyrirframgreiðsla að eiga sér stað fyrr en 1. febr. á næsta ári. Hæstv. forsrh. mælti fyrir till. hér áðan þess efnis, að þing skyldi koma saman eigi síðar en 25. jan. eða fyrr, ef þurfa þætti, eins og mig minnir, að hann segði í till. Ég sé þess vegna ekki þörfina á því að knýja þetta frv. fram hér nú í báðum deildum á þessum dagparti, sem eftir er, þangað til fresta skal þingi. Ég held, að það væri rétt að fresta þessu máli. Það getur þá orðið 1. mál framhaldsþingsins, ef mönnum sýnist þá enn svo rík þörf á lagasetningu í þessu skyni. Að vísu segir í 47. gr. áðurnefndra l. — það skal ég taka fram til þess að halla ekki réttu máli — að tilkynningar um fyrirframgreiðslu gjalddaga skuli birtar 15. jan., og verður það þá að sjálfsögðu ekki hægt í þessu tilfelli, en vafalaust mætti komast fram hjá því ákvæði á einhvern hátt t. d. með einhverju bráðabirgðaákvæði hér, sem allir gætu þá fellt sig við og skamma stund tæki að samþykkja, ef vilji væri fyrir hendi. Ég held, að þetta mál ætti að athuga betur.

Hv. 4. þm. Reykn. benti á það alveg réttilega, að hér á hv. Alþ. virðist vera áhugi á því, að staðgreiðsla skatta komist á, og a. m. k. hef ég fyrir mitt leyti oft lýst þeirri skoðun minni, að það væri æskilegt. En staðgreiðslukerfi skatta skil ég þannig, að maður eigi að greiða skattinn, um leið og tekjurnar myndast. En það er auðvitað annars eðlis en það, sem hér er farið fram á. Hér er farið fram á það, að maður greiði hærri skattaprósentu af sköttum fyrra árs alveg án tillits til þess, hvað miklar tekjur maður hefur á því tímabili. Hér er aðeins talað um það, ef almenn hækkun er 15%, en auðvitað getur hækkunin verið minni í sumum tilvikum en 15%. En því verða allir að hlíta, svo að ég fyrir mitt leyti a. m. k. jafna þessu ekki fyllilega saman. Ég er enn þá þeirrar skoðunar, að æskilegt væri, að við gætum búið við staðgreiðslukerfi skatta, þó að á því séu vissulega mörg vandkvæði, eins og hæstv. fjmrh. hefur gert okkur glögga grein fyrir.

Þá vil ég líka benda á það í sambandi við sveitarfélögin, að aðalframkvæmdatímabil þeirra er á miðju ári og eftir það. Það tímabil, sem nú fer í hönd, þ. e. fyrstu 5 mánuðir árs hvers, er það tímabil, sem minnstar framkvæmdir fara fram. En í ár . . . Já, já, lagafrv. miðar við það, að þetta gerist á 6 mánuðum. Er það ekki? 1. febrúar, 1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní. Þá eru nú samkvæmt mínum reikningi liðnir 5 mánuðir af árinu, þegar 1. júní er kominn. Ég held, að það sé nú svo. Og 1. júní eru í mörgum tilfellum framkvæmdir lítt eða ekki hafnar. Þær framkvæmdir, sem sveitarfélögin standa aðallega í, þ. e. byggingarframkvæmdir, gatnagerð og holræsagerð, sem við allir þekkjum, og þá ekki sízt hv. 4. þm. Reykn., sem er sjálfur sveitarstjórnarmaður. Þetta var þá um hagsmuni sveitarfélagsins. Ég viðurkenni, að þeir eru nokkrir; það skal ég sízt draga í efa. Það er betra fyrir sveitarfélag að fá tekjurnar fyrr. Ég skal fyllilega kannast við það. Ég hef sjálfur starfað svolítið að sveitarstjórnarmálum, og ég veit þetta. En spurningin er bara, hvort það réttlætir þetta.

Í öðru lagi hafa menn svo viljað leggja áherzlu á það, að það væri miklu betra fyrir gjaldendurna sjálfa, að það væri tekið svona af þeim frekar en þeir fengju í hendur peninga, sem þeir svo yrðu að standa skil á. En ég náttúrlega verð að benda á það í þessu sambandi, að það er engum bannað að greiða meira en 50% af fyrra árs sköttum, ef þeir vilja. Þannig að þetta ákvæði virðist mér eitthvað í anda þess, sem hv. stjórnarsinnar oft hafa viljað tala um við okkur framsóknarmenn, að við vildum endilega hafa vit fyrir öllum, en það væri langsamlega réttast, að fólk hefði vit fyrir sér sjálft. Í þessu tilfelli vil ég, að fólkið hafi vit fyrir sér sjálft og fái að ráða því sjálft, hvort það sér ástæðu til þess að greiða meira af sköttunum til þess að fá útsvarið frádregið, því að það er það, sem keppt er að fyrst og fremst, og svo hitt, að ekki falli allt í gjalddaga í einu. En ef við hækkum þessa prósentu, þá þýðir það það, að verði greiðslufall, þá er allt útsvarið fallið í gjalddaga.

Og ég endurtek það, að ég sé ekki ástæðu til þess að knýja þetta mál hér fram, eins og nú hagar til. Við höfum ekki sent frv. til umsagnar nokkurs aðila. Við gerðum það ekki vegna þess, að við bjuggumst jafnvel við því, að frv. yrði tekið aftur, þegar ljóst yrði, hvaða undirtektir það fengi. En ég álít, að það væri mjög svo eðlilegt, að um frv. sem þetta, sem fjallar um greiðslubyrði alls almennings og allra fyrirtækja í landinu, fengi Alþ. umsögn þeirra aðila eða forsvarsmanna þeirra aðila, sem þetta mál snertir, og ég segi það hiklaust, að umsagnir hafa verið sendar frá deildum þingsins af minna tilefni en þessu. Ég skal ekki fara að halda hér lengri ræðu nú, en ég vonast til þess, að þetta mál verði endurskoðað og ætla ekki að segja fleiri orð að svo stöddu.