22.02.1971
Neðri deild: 51. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (598)

182. mál, Háskóli Íslands

Gunnar Gíslason:

Herra forseti. Þetta frv. til laga um breytingu á lögum um Háskóla Íslands var flutt í hv. Ed. í sambandi við tvö önnur frv., sem voru flutt þar til breytingar á lyfsölulögum. Þetta mál var raunar til meðferðar hjá heilbr.- og félmn. Ed. eins og hin frv. bæði, en fór til menntmn. þessarar hv. d. Eins og sést á nál. á þskj. 378, þá mælir n. einróma með því, að frv. þetta sé samþ., en efni þess er það, að ráðinn verði sérstakur maður til eftirlits með lyfjabúðum fyrir heilbrigðisstjórnina, en áður hafði þetta starf á hendi kennari í lyfjafræði lyfsala. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta mál. Þetta frv. var ásamt hinum frv. tveimur afgreitt samhljóða frá hv. Ed., og menntmn. þessarar hv. d. leggur til, að frv. verði samþ., eins og það liggur fyrir.