03.02.1971
Efri deild: 44. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

189. mál, lyfsölulög

Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Af nál. nr. 327 kemur fram, að heilbr.- og félmn. hefur fjallað um frv. og leggur einróma til, að það verði samþ. óbreytt. Hér er um nokkra takmörkun á skráningu sérlyfja að ræða, sem er flutt af hæstv. ríkisstj. vegna beiðni lyfjaskrárnefndar vegna sérnotkunar á þessum lyfjum.

Að svo mæltu legg ég til, að frv. sé vísað til 3. umr.