27.10.1970
Neðri deild: 6. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 763 í B-deild Alþingistíðinda. (623)
23. mál, framleiðnisjóður landbúnaðarins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Framleiðnisjóður landbúnaðarins var stofnaður með lögum nr. 8917. desember 1966. Var það gert með því að ákveða 50 millj. kr. framlag, sem þyrfti að greiðast á þremur árum. 20 millj. voru greiddar strax sem óafturkræfur styrkur til mjólkurbúa og síðan 10 millj. á ári, samtals 50 millj. Á s. l. ári rann þetta út, gildistíminn var liðinn og þess vegna þykir rétt að flytja frv., sem kveður svo á, að framhald skuli verða á um fjárveitingar til framleiðnisjóðs, 50 millj. kr., 10 millj. kr. á ári. Samkv. þessu frv., 1. gr., er gert ráð fyrir, að á árunum 1972–1976 verði þessi upphæð innt af hendi með jöfnum greiðslum. En verði svo, að ekki verði tekin á fjárlög næsta árs greiðsla, verður sjóðurinn vanmegnugur til þess að inna sitt hlutverk af hendi á árinu 1971. Það þótti ekki rétt að flytja frv. þannig að gera ráð fyrir fjárveitingu á árinu 1971, þar sem ekki er gert ráð fyrir því í því fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir, að 10 millj. kr. skuli varið til framleiðnisjóðs. En fjvn. er að starfi, og það væri vitanlega mjög æskilegt, ef hæstv. fjmrh. og fjvn. treystu sér til að gera till. um það, að fjárveitingin byrjaði á árinu 1971 og er þá hægt í meðförum þingsins að breyta þessu frv. í samræmi við það.
Það er enginn vafi á því, að framleiðnisjóður landbúnaðarins hefur mikilvægu verkefni að gegna, þ. e. að stuðla að aukinni framleiðni með því að gera kleift að bæta tæknibúnað í mjólkurbúum, frystihúsum, sláturhúsum og víðar og svara stöðugt vaxandi kröfum, sem gerðar eru á hendur þessara stofnana bæði í heilbrigðislegu og tæknilegu tilliti. Stjórn framleiðnisjóðs hefur notað það fjármagn, sem hún hefur haft yfir að ráða í þessu skyni. Það hafa verið veitt lán og það hafa verið veittir nokkrir styrkir til heimilistanka, til þess að hægt sé að flytja alla mjólkina í tönkum og hætta því að nota brúsana eins og gert var í gamla daga. Með þessu er tvennt unnið. Það verða stórum aukin þægindi og það verður miklu meira hreinlæti og öryggi í meðferð mjólkurinnar með þessu móti. Þess vegna er að því stefnt að koma þessu kerfi upp sem víðast og flytja mjólkina frá heimilunum til búsins á tönkum og svo aftur frá mjólkurbúunum á sölustað með sams konar tækjum. Þannig er hægt að tryggja fyllsta hreinlæti og beztu meðferð mjólkurinnar, sem hugsazt getur. Þá hefur fé einnig verið veitt til tækniútbúnaðar sláturhúsa, sem vissulega gerist þörf, því að alltaf eru gerðar auknar kröfur til sláturhúsanna um meðferð kjötsins. Og það er metnaðarmál og nauðsynjamál að stuðla að stöðugt auknum framförum í þessu. Það hefur miðað vel í áttina hvað þetta snertir, tæknibúnaður og hreinlæti eru stöðugt aukin og bætt meðferð á kjöti. Þá var veittur styrkur til djúpfrystingarstöðvar, sem sett var upp á Hvanneyri og sem talin er nauðsynleg og eðlileg miðað við tækni tímans, einnig til endurskipulagningar ræktunarsambanda, sömuleiðis til rannsókna á vinnutilhögun í gripa- og mjólkurhúsum. Þannig hefur verið ráðstafað 26 millj. og 170 þús. kr. í þessu skyni auk 20 millj., sem eru óafturkræfur styrkur til mjólkurbúa, sem var veittur á árinu 1966.
Ég tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta. Hv. þm. er kunnugt um þessi lög, kunnugt um tilgang þeirra og að mestu kunnugt um, hvað gert hefur verið. Og verði haldið áfram að veita fé til sjóðsins eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., þá verður verkefnið í næstu framtíð eitthvað svipað og verið hefur. Ég endurtek, að ég tel æskilegt, að fjárveiting til sjóðsins byrji á árinu 1971 og bið hv. n., sem fær málið til meðferðar, að taka það til athugunar.
Herra forseti. Ég vil svo að lokinni þessari umr. leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.