03.03.1971
Efri deild: 56. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (656)

23. mál, framleiðnisjóður landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Því miður var þetta nú ekki alveg rétt skilið hjá hv. þm., þegar hann sagði: Ja, ég skil það þá þannig, að það sé einskis að vænta á þessu ári. Það var ekki það, sem ég sagði. Ég skýrði frá viðtali mínu við formann Stéttarsambands bænda og framkvæmdastjóra framleiðsluráðsins og sagði, að meiningin væri að útvega fé til þess, að hægt væri að vinna að uppbyggingu þeirra sláturhúsa í ár, sem tilbúin væru vegna undirbúnings. Og þá finnst mér, að hv. 1. þm. Vesturl. eigi ekki að segja, að það sé einskis að vænta. Það var ekki meira en þetta, sem ég vildi taka fram.