18.02.1971
Efri deild: 50. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (670)
13. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er flutt til staðfestingar á brbl. nr. 73 frá 1. júní 1970, en þau voru breyting á l. nr. 4 frá 28. febr. 1966, um útflutningsgjald sjávarafurða. Umrædd brbl. voru á sínum tíma sett vegna hins erfiða fjárhags, sem Tryggingasjóður fiskiskipa var kominn í um þessar mundir og hafði reyndar búið við erfiða aðstöðu um lengri tíma. Aðalbreytingin, sem í brbl. fólst, er hækkunin, sem átti sér stað á magngjaldinu, en það var hækkað úr 1360 kr. í 1500 kr. á tonn. Þá var gjald samkv. 2. tölul. 2. gr. hækkað úr 3% í 4% og skyldi ákvæði það taka gildi frá 1. jan. 1971, og frá sama tíma var heimilað að draga frá fob-verðmæti saltsíldar vegna umbúðakostnaðar 300 kr. fyrir hver 100 kg innihalds. Þá er með frv. því, sem hér liggur fyrir, gert ráð fyrir þeirri breytingu frá áður gildandi lagaákvæðum, að útflutningsgjald af óverkuðum saltfiski lækki og verði magngjald eins og af freðfiski þannig, að í stað 7% gjalds af fob-verðmæti komi 1500 kr. magngjald. Þegar útflutningsgjöldin voru ákveðin með l. nr. 79 31. des. 1968 að afstaðinni gengisbreytingu, var talið, að höfð hefði verið hliðsjón af því, að saltfiskframleiðslan byggi við hagstæðari rekstrargrundvöll miðað við gildandi söluverð en freðfiskurinn. Nú er hins vegar talið, að þessi mismunur sé ekki lengur fyrir hendi og því eðlilegt að jafna þessi gjöld. Til viðbótar þessu er um breytingu að ræða frá því, sem var í brbl. og fyrri ákvæðum, að útflutningsgjald af söltuðum grásleppuhrognum verði nú 6% af fob-verði í stað magngjaldsins áður. Stjórn tryggingasjóðsins telur, að útflutningsgjald af söltuðum grásleppuhrognum hafi verið óeðlilega lágt miðað við þau útgjöld, sem sjóðurinn hefur vegna þeirra báta, sem grásleppuveiðarnar stunda.
Eins og fram kemur í nál. frá sjútvn., hefur n. athugað mál þetta og sent það til umsagnar. Það hefur komið fram, að þær breytingar, sem hér er lagt til, að gerðar verði á frv. því, sem fyrir liggur, eiga rætur sínar að rekja til samkomulags, sem gert var milli aðila, og á þeim forsendum hefur verðlagsráð sjávarútvegsins lagt þau gjöld, sem í frv. felast, að viðbættu því, sem fram kemur í brtt. n. á þskj. 365 og 375, til grundvallar við verðákvörðun á fiski, sem einróma var ákveðin af hendi verðlagsráðsins fyrir síðustu áramót. Í brtt. n., eins og fram kemur á þskj. 365 og 375, er lagt til í fyrsta lagi, að magngjaldið hækki úr 1500 kr., eins og það er í frv., í 1900 kr. Þá leggur n. til, að saltsíld falli undir 6% gjaldaflokkinn í stað 8%, og umbúðafrádrátturinn verði 500 kr. miðað við 100 kg innihalds í stað 300 kr., og að dómi n. er hér um hliðstæða leiðréttingu að ræða og lagt er til um saltfiskinn. Að lokum er, eins og fram kemur á þskj. 375, lagt til, að l. taki gildi þegar, en ákvæði l. gildi hins vegar frá 1. jan. 1971.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um mál þetta, en vænti þess, að till. n. verði samþykktar og frv., þannig breyttu, vísað til 3. umr.