12.11.1970
Neðri deild: 17. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (69)

101. mál, atvinnuöryggi

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég þarf ekki mikið að lengja þessar umr., sem nú hafa farið fram. Ég vil aðeins segja það, að margur hefði getað sparað sér stóryrðin hér í ræðustólnum og ekki minnkað af. Það eru nokkuð stór orð að tala um glæpsamlegt athæfi ríkisstj. í þessu sambandi, og þetta hefði hv. 9. þm. Reykv. vel getað sparað sér. Ræða hv. 9. þm. Reykv. var hótun á hótun ofan. Þeir ráða því náttúrlega sjálfir, hvaða hátterni þeir temja sér og skal ég ekki víkja frekar að því.

Ég vil hins vegar segja það, að hann talar um það, að lögfylgjum verði ríkisstj. að taka. Lögfylgjum er ríkisstj. reiðubúin að taka af sínum gerðum, bæði í þessu máli og öllum öðrum, en um leið og hv. þm. segir, að lögfylgjum verði ríkisvaldið að taka, þá segir hann: „Staðfesting dómstóla gagnar hér ekki neitt.“ Ég hef heyrt talað um lögfylgjur í einhverri annarri merkingu og skilið þær í einhverri annarri merkingu en hv. þm.

Það er rétt, að það var talað í viðræðunefnd ríkisstj. við aðila vinnumarkaðarins, og þá út af fyrir sig fulltrúa launþeganna, um ályktun miðstjórnar Alþýðusambandsins frá 11. okt., þar sem farið var fram á yfirlýsingu um, að engum lögþvingunum yrði beitt. Við ræddum þetta efnislega þá og ég sagði: „Hvað eru lögþvinganir? — Hvað eru lögþvinganir? Ef lög eru sett af Alþ., sem óneitanlega bæta hag launþega miðað við þá samningsaðstöðu, sem þeir hala sjálfir skapað sér fyrir nokkru, — og sleppum alveg, hvaða rök kynnu að liggja til þess, en það þyrfti þó að setja lög til þess, — tvímælalaust og með skilningi allra þannig að bæta hag þeirra, — er þetta þá lögþvingun?“ Ég sagði við fulltrúana, að ég skildi ekki slíkt, að það væri lögþvingun, og við gátum því ekki af ýmsum ástæðum gefið þá yfirlýsingu fyrirfram, sem óskað var eftir, og skiptir ekki máli að rekja það frekar.

Hannibal Valdimarsson, hv. 9. þm. Reykv., minnti á kjarabaráttu sjómanna, sem framundan er. Ég vil aðeins af þessu gefna tilefni segja það, að ég tel, að sjómenn mundu standa ótvírætt betur að vígi í sinni kjarabaráttu, sem framundan er, einmitt að þeim ráðstöfunum lögfestum, sem hér er um að ræða, tvímælalaust. Það er alveg óyggjandi, að það styrkir og bætir aðstöðu útvegsins eins og annarra atvinnugreina, þær ráðstafanir, sem hér eru gerðar og munu leiða til atvinnuöryggis í landinu. Það er mergurinn málsins.

Vegna þess að hv. 9. þm. Reykv. var með í höndunum hér bréf Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og rýndi í það og vitnaði í sitthvað úr því, en fann ekki það, sem hann var að leita að, þá ætlaði ég að lesa bréfið upp í heild, því að hann sagði, að það kæmi fram í þessu bréfi, að þessir aðilar teldu rofin grið á sér. Það var það, sem hann vildi, að stæði í þessu bréfi, en það er bara ekki í bréfinu. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa þetta bréf, en það hljóðar svo:

„Á fundi stjórnar B. S. R. B. í gær var rætt um frv. til laga um ráðstafanir til stöðugs verðlags og atvinnuöryggis, og að loknum umr. var samþ. eftirfarandi till.: Vegna frv. ríkisstj. um ráðstafanir til stöðugs verðlags og atvinnuöryggis ályktar stjórn B. S. R. B.: Almenningur er löngu þreyttur á síendurteknum bráðabirgðaráðstöfunum í dýrtíðarmálum. Stjórn B. S. R. B. skorar því á Alþ. að grípa nú til nýrra úrræða til þess að stöðva verðbólguþróunina. Stjórnin telur þær aðgerðir, sem frv. gerir ráð fyrir, alls ófullnægjandi til þess að leysa sjálfan vandann, að stöðva verðbólguna. Aðgerðirnar eru með sama marki brenndar og allar dýrtíðarráðstafanir frá lokum síðari heimsstyrjaldar, þær eru bráðabirgðaúrræði. Þær eru algerlega á kostnað launþega, en árangurslausar sem frambúðarlausn. Stjórn B. S. R. B. gerir það að till. sinni, að allar peningalegar tilfærslur, skuldir og innistæður, laun og vextir, verði tengdar réttri vísitölu, en gengið gefið að mestu leyti frjálst. Takmarkaðar skammtímaráðstafanir auka aðeins á misréttið í þjóðfélaginu og viðhalda jafnvægisleysi efnahagslífsins. Aðeins með samræmdum heildaraðgerðum er von til að ráða niðurlögum verðbólgunnar, en hún er þjóðarböl. Í stað endurtekinna bráðabirgðaráðstafana verða að koma aðgerðir, sem koma á jafnvægi, jafnvel þótt þær skaði stundarhagsmuni einhverra.“

Þannig lýkur þessu bréfi. Það, sem felst í þessu bréfi, er það, að B. S. R. B. vill, að nú þegar sé gripið til einhverra úrræða, varanlegra úrræða, en ekki bráðabirgðaúrræða eða skammtímaráðstafana, eins og þeir segja. Augljóst mál er, að það mundi taka sinn tíma. Hitt er svo annað mál, og það hafa ýmsir vikið að því, að það væri eðlilegt, að sá verðstöðvunartími, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, eða 9 mánuðir, verði notaður bæði af stjórn og stjórnarandstöðu, aðilum vinnumarkaðarins og öðrum, sem hér eiga hlut að máli, til þess að finna varanlegri úrræði eða viðnám eða aðgerðir, þegar þessum tímabundnu ráðstöfunum lýkur. Stjórn B. S. R. B. gerir það að sinni till., eins og stendur í bréfinu, að allar peningalegar tilfærslur, skuldir og innstæður, laun og vextir, verði tengdar réttri vísitölu og gengið gefið að mestu leyti frjálst. Það er ábending um allveigamiklar aðgerðir, og það er auðvitað sjálfsagt að reyna að gera sér grein fyrir, hvað í þessu felst og hvað meint er með þessu og hvort hér kunni að vera fólgið eitthvert lausnarorð til varanlegra ráðstafana. Mér þykir ekki nema vænt um að fá ábendingar eins og þessar frá B. S. R. B., en ég sé ekki og finn hvergi, að þeir segi í þessu bréfi, að það hafi verið rofin nein gríð á þeim, sem samsvari því, að það hafi verið skertur einhver samningsréttur þeirra, sem hér hefur aðallega verið talað um.

Þá kem ég að því, sem aðallega hefur verið rætt um og nær eingöngu var í ræðu hv. 9. þm. Reykv., að það væri í sjálfu sér ekki frv. efnislega, verðstöðvun eða hvernig hún væri, eða peningalegar ráðstafanir í sambandi við þetta, sem skipti máli, það væri allt saman aukaatriði, nema bara að hinn helgi samningsréttur væri skertur. Það væri kippt grundvellinum undan samningunum í vor með þessum ráðstöfunum. Þetta skil ég ekki, og ég hef þess vegna sagt hér áður, að ég telji mótmæli, sem á þessum forsendum eru reist, bæði af hálfu Alþýðusambandsstjórnarinnar og Dagsbrúnar, sem þá lágu fyrir, á misskilningi byggð. Ég tel ekki, að grundvellinum sé kippt undan samningunum, og ég tel ekki, að í þessum ráðstöfunum felist neinar árásir á launþega, láglaunamenn eða aðra. Skoðun mín er sú, að grundvöllurinn undir samningunum í vor hafi verið sá að tryggja kaupmátt launanna. Megináherzlan var lögð á, eins og hv. 9. þm. Reykv. sagði, að tryggja verðlagsbætur á kaup, en hvað er að tryggja verðlagsbætur á kaup, nema það að kaupmátturinn haldist, að kaupmáttur launanna skerðist ekki? Það var grundvöllur þessara launasamninga. Því hefur hv. 9. þm. Reykv. sjálfur lýst hér yfir, og það hefur komið fram í ræðum hv. 4. þm. Austf. og reyndar fleiri, að þetta sé meginkjarni málsins. Hv. 4. þm. Austf. sagði einmitt, að þegar 6 vísitölustigin, sem við höfum rætt hér um, sem ég ætla ekki að gera nú að neinu deiluefni, hurfu burt með brbl. 1956, þá hafi það verið aðalatriðið og ráðið afstöðu launafólksins, hvernig málið kæmi út kaupmáttarlega, og þarna erum við alveg á sama máli. Það er kjarni málsins, hvernig málið kemur kaupmáttarlega út. Við höfum lagt fram gögn í viðræðum við fulltrúa launþeganna, sem að beztu manna yfirsýn, — það hefur í raun og veru hvorki verið gagnrýnt né vefengt, að rétt væri, — hníga að því, að kaupmáttargildið minnki ekki, haldist með þeim ráðstöfunum, sem nú eru, miðað við það, sem ella hefði verið. Það var gert ráð fyrir, eins og hv. 4. þm. Austf. sagði, að kaupmáttaraukningin væri, eins og hann nefndi það, 14–17% og við teljum líka, að kaupmáttaraukningin með þessum ráðstöfunum verði 14–17%, eftir því hvort miðað er við maí eða júní, sem ég hef áður sagt, að menn geti kannske deilt um, frá hvaða tíma bæri að telja og sem ekki skiptir máli í þessu sambandi, en það munar atvinnuvegina anzi miklu, hvort þeir eiga að borga kauphækkun, sem er almennt talin núna 26.5%, eða eftir þeim útreikningum, sem fyrir lágu, mundi sennilega vera nálægt 40% og þó ekki með auknum kaupmætti á næsta sumri. M. ö. o. gefur næstum því 40% hækkun í kaupi að krónutali launþeganum ekki meiri kaupmátt en 26.5% gerir með þessum ráðstöfunum. En það lítur hins vegar allt öðru vísi út fyrir atvinnurekstrinum, sem á að borga í öðru tilfellinu 26.5% hækkun launa frá því, sem var í maí í vor, eða upp undir 40% og það er að þessu, sem þessar ráðstafanir stefna, að atvinnuörygginu, því að hitt rekur í strand. Útflutningsatvinnuvegirnir þola ekki þessa miklu kauphækkun, hvorki í sjávarútvegi eða iðnaði, sem er að færa sig þar upp á skaftið. Það er þess vegna ekki aðeins það, að kaupmáttargildið verður jafnmikið hjá launamönnum eftir þessar ráðstafanir, heldur kemur til viðbótar, sem launþeginn hafði ekki með samningunum í vor, atvinnuöryggið, sem hann fær með þessum ráðstöfunum. Það getur hann reiknað sér til tekna, og sumir launþegar, veit ég a. m. k., telja það ekki minna virði en krónutöluna í kaupinu, þegar verið er að semja um hana eða prósentuhækkunina.

Auðvitað þykir mér sárt, að slíkar samþykktir hafa verið gerðar, eins og vitnað hefur verið til hér og mér hafa borizt frá Alþýðusambandinu og öðrum starfsmannasamtökum, en ég get ekki sagt við þau annað en það, sem ég hef nú verið að túlka, að ég tel þessar ályktanir byggðar á misskilningi, og ég er að vona, að þessir aðilar, sem hér eiga hlut að máli, og allur almenningur í landinu átti sig á því, að þessar ályktanir eru ekki á réttum forsendum reistar. Komi til þess, að menn vilji rjúfa samninga og telji sér það heimilt vegna þessara aðgerða, þá vísa ég á bug ásökunum um það, að ríkisstj. eigi þar sök. Þar verða menn að horfa í eigið brjóst, þeir sem að því standa.