27.10.1970
Efri deild: 6. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 833 í B-deild Alþingistíðinda. (799)

14. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta var lagt fyrir síðasta Alþ., en náði þá ekki fram að ganga, enda nokkuð síðla þess þings flutt. Er frv. því hér með endurflutt, en frv. er árangur af starfi n. sem skipuð var samkv. þál., er samþykkt var á Alþ. 31. marz 1965 og hljóðaði svo:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa 7 manna n. til að endurskoða l. nr. 77 28. apríl 1962, um aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, og gera tillögur um breytingar, eftir því sem henni þykir ástæða til. Formaður skal skipaður án tilnefningar, en aðrir nm. samkv. tilnefningu Fiskifélags Íslands, Alþýðusambands Íslands, Sjómannasambands Íslands, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Landssambands ísl. útvegsmanna og Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda, einn frá hverjum aðila. N. skal sérstaklega gera sér far um að kynna sér skoðanir útvegsmanna og sjómanna í einstökum landshlutum varðandi málið og reynslu þeirra af starfsemi hlutatryggingasjóðs og aflatryggingasjóðs.“

N. tók til starfa sumarið 1965 og er starfi hennar lýst í aths. við frv. N. skilar áliti í desember 1969. Frv. er samhljóða frv., er n. afhenti með áliti sínu, með þeirri breyt. þó, að lagt er til, að framlag ríkissjóðs verði fjórðungur á móti útflutningsgjaldi í stað þess að vera jafnt tekjum af útflutningsgjaldi, eins og n. lagði til.

Samkv. gildandi lögum er framlagið helmingur á móti útflutningsgjaldi. Enn fremur hafa verið gerðar breytingar á frv. nefndarinnar og frv. því, er lagt var fram á síðasta Alþ., til samræmis við ákvæði laga, sem samþ. voru á s. l. vori, l. nr. 68 frá 12. mal 1970, svo og brbl. nr. 74 frá 1. júní 1970. Verður nánar vikið að þessum frv. hér á eftir.

Frv. þetta hefur ekki að geyma neinar stórvægilegar breytingar á skipulagi þessara mála. Mörg ákvæði frv. eru aðeins staðfesting á framkvæmd undanfarinna ára. Lítillar óánægju hefur orðið vart með gildandi lög hjá þeim aðilum, sem mestra hagsmuna hafa af þeim að gæta. Hefur reynslan sýnt, að nauðsynlegt er að hafa ákvæði laganna það rúm, að þau skilgreini ekki í smáatriðum einstök framkvæmdaatriði. Ekki má gleyma því, að reglugerðir kveða nánar á um framkvæmd laganna i einstökum smærri atriðum.

Ekki er ástæða til að fara ítarlega út í einstök ákvæði frv. Þó má nefna, að lagt er til, að báðar deildir bátaflotans verði sameinaðar í eina deild. Sjóðsstjórninni er gefin heimild til að meta úthald og skerða bætur eða bæta við, ef um frávik er að ræða frá eðlilegu almennu úthaldi eða meðalúthaldi. Enn fremur að höfð skuli m. a. hliðsjón af útgerðarkostnaði og a. m. k. að hluta við ákvörðun svonefnds meðalveiðimagns, sem bætur reiknast út frá. Þá er sjóðsstjórninni heimilað að hækka bætur á haustúthaldi við sérstakar aðstæður, sem hún verður að meta, til að stuðla að því, að útgerðin leggist ekki niður á haustin. Lagt er til, að lágmarksupphæð bóta verði takmörkuð nokkuð. Er hér um að ræða staðfestingu á þeirri hámarksupphæð bóta, sem sjóðsstjórnin hefur markað og telur eðlilegar. Ákvæði eru um bætur vegna skerðingar á veiðiréttindum, þegar tiltekin, takmörkuð veiðisvæði eru friðuð vegna hrygningar nytjafiska. Er hér um nýmæli að ræða, sem á rétt á sér eftir setningu landhelgislaganna frá 1969. Með þeim lögum voru botnvörpuveiðiheimildir auknar til mikilla muna, og í ljós hefur komið, að með þeim eru m. a. opnuð svæði, sem nauðsynlegt hefur reynzt að friða tímabundið vegna hrygningar nytjafiska.

Það getur borið við, að skyndilega þurfi að friða tiltekin svæði tiltekinn tíma af umræddum sökum. Geta svona ráðstafanir í einstökum tilfellum valdið takmörkuðum hópi báta miklu fjárhagstjóni, en slíkar ráðstafanir eru yfirleitt gerðar í þágu heildarhagsmuna. Þykir rétt, að opnuð sé leið til þess að bæta að vissu marki það fjárhagstjón, sem af slíku hlýzt. Er því hér lagt til að veita sjóðsstjórninni heimild til að greiða bætur, en ekki er um skyldu að ræða.

Skal þá aðeins vikið að þeirri breyt., sem gerð var á frv. n., þ. e. lækkun ríkissjóðsframlagsins. Með l. nr. 5 1968, um ráðstafanir til lækkunar ríkisútgjalda, var ákveðið, að framlag ríkissjóðs skyldi vera þriðjungur á móti útflutningsgjaldi á því ári í stað helmings. Með l. nr. 74 frá 1969 var mótframlag ríkissjóðs lækkað í fjórðung útflutningsgjalds og tók það ákvæði til ársins 1969. Ríkissjóðsframlagið hefur þannig verið lækkað hlutfallslega tvö undanfarin ár. Í fjárlögum ársins 1970 er miðað við, að mótframlag ríkissjóðs verði áfram 1/4 hluti útflutningsgjaldsins, eins og frv. þetta gerir ráð fyrir. Með afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1970 var því í raun tekin ákvörðun um þessa lækkun á framlagi ríkissjóðs. Er frv. því í samræmi við þá stefnu, sem undanfarin ár hefur verið fylgt í þessu efni.

Gengisbreytingin í nóvember 1968 olli verulegri hækkun á útflutningsgjaldi, sem er mikilvægur tekjustofn sjóðsins. Tekjur aflatryggingasjóðs af útflutningsgjaldi jukust um 36 millj. kr. árið 1969 frá árinu næst á undan, og var eignaaukning sjóðsins á árinu 1969 mjög veruleg. Af þessum sökum hefur verið talið rétt að lækka fjárveitingu ríkissjóðs til aflatryggingasjóðs. Er sú ráðstöfun gerð í því trausti, að aflatryggingasjóður muni að öllu leyti geta við fjárhagsskuldbindingar staðið í framtíðinni, þrátt fyrir umrædda lækkun ríkissjóðsframlagsins.

Sé miðað við tekjur sjóðsins á árinu 1969, er lækkun sú á ríkissjóðsframlagi, sem frv. gerir ráð fyrir, í raun töluvert innan við fimmtung heildartekna sjóðsins. Þótt rétt sé í góðæri að safna í sjóði til mögru áranna, hefur ekki verið talið rétt, að sú söfnun væri framkvæmd með framlögum úr ríkissjóði, heldur með tekjum af hinu aukna framleiðsluverðmæti góðu áranna.

Í II. kafla frv. þessa eru felld inn ákvæði l. nr. 74 frá 28. maí 1969 um greiðslu fæðiskostnaðar bátasjómanna, en þau voru sett í framhaldi af kjarasamningum útvegsmanna og bátasjómanna veturinn 1969. Á s. l. vori voru enn gerðar breytingar á þessum lögum með samþykkt laga nr. 68 frá 12. maí 1970 og hefur II. kafla frv. verið breytt til samræmis við þessi nýju lög. Lög nr. 74/1969 kváðu á um greiðslu áhafnadeildar aflatryggingasjóðs á hluta af fæðiskostnaði áhafna á fiskibátum, bæði vegna ársins 1969 og framtíðarinnar. Gert var ráð fyrir því, að tekjur deildarinnar nægðu fyrir útgjöldum hennar, en vegna undanfarinna erfiðleika í sjávarútvegi og þeirra nýju kvaða, er á deildina voru lagðar með þessum l., hafði hún þegar safnað miklum skuldum og halli fyrirsjáanlegur að óbreyttu. Var árlegur halli á sjóðnum áætlaður rúml. 28 millj. kr., auk þeirra skulda, sem þegar hafði þá verið til stofnað. Vegna erfiðs fjárhags áhafnadeildarinnar bar því brýna nauðsyn til að auka tekjur hennar, enda gerði bætt afkoma sjávarútvegsins á því ári kleift að bæta úr þessu, og var það gert með brbl., eins og fyrr er frá greint, nr. 74 frá 1. júní 1970. Tekjur sjóðsins af útflutningsgjaldi voru hækkaðar um 50%, þ. e. gjaldið hækkaði úr 1% í 1,5%. Hefur frv. verið breytt til samræmis við ákvæði umræddra brbl. Með þeirri breyt. yrði árlegur halli jafnaður og nokkurt fé til ráðstöfunar upp í skuldir fyrri ára.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.