13.11.1970
Neðri deild: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (83)
101. mál, atvinnuöryggi
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Herra forseti. Að vanda hefur verið lögð dagskrá á borð þm. Á dagskrá Nd. í dag er eitt mál, „stöðugt verðlag og atvinnuöryggi“. Ég gæti trúað því, að ef þessi dagskrá væri borin út um bæinn og menn litu á hana fljótlega, þá risi fagnaðaralda um allan bæ, því að þá héldu menn, að stjórnarliðið hefði nú, eftir þessa 11 eða 12 ára setu loksins tekið sig á og tekið það fyrir fyrst og eitt mála, sem átti að vera höfuðmálið í byrjun samstarfs þessara flokka. Það yrði áreiðanlega mikill léttir fyrir marga, ef þessu yrði komið á, t. d. fyrir þá, sem vinna við atvinnuvegina og hafa búið í stöðugri óvissu árum saman um langt árabil með allt verðlag á öllum rekstrargjöldum, fyrir neytendur, fyrir húsmæðurnar, sem fara út í búðir daglega hér í bænum og mega á hverjum degi búast við því að sjá nýja verðmiða á vörunum ellegar strikað yfir verðið á gamla miðanum og annað hærra sett í staðinn, þá líklega kæmi þetta sér betur fyrir sparifjáreigendur, og sjálfsagt mundi einhverjum létta, ef drægi úr því óskaplega annríki, sem verið hefur um langt skeið og aldrei meira en nú á síðustu tímum, á viðreisnartímunum, hjá öllu því fólki, hundruðum og þúsundum manna, sem situr við það með sveittan skallann að reikna út sífelldar breytingar á kauptöxtum í hundruðum liða hjá hinum ýmsu starfsstéttum og verðlagi á þúsundum vöruflokka og einstakra vara. Það er víst ekki vafi á því, að það mundi létta á þessu fólki, ef það á nú loksins að verða að veruleika, sem þessir stjórnarflokkar lofuðu í byrjun síns samstarfs, að koma á stöðugu verðlagi og tryggja grundvöll atvinnuveganna, en því hefur þá fylgt, sem hér er kallað atvinnuöryggi og má líta á kannske á fleiri vegu. Og það mundi þá létta á víðar. Menn þyrftu kannske ekki að fara eins hratt í það að búa til nýja mynt, og þá kannske yrði þeirri hættu bægt frá, að dálkarnir í tölvunum og heilunum yrðu of fáir fyrir viðreisnarkrónurnar. Það væri því ekki furða, þó að mönnum létti, ef þeir þættust sjá fram á þetta og væru svo fljótfærir að taka þetta alvarlega.
Það er ómögulegt að skoða þetta frv. og þann málatilbúnað, sem nú er uppi hafður hér, án þess að líta aðeins til baka og meta hann í samhengi við það, sem á undan hefur gengið. Auðvitað skyggir það strax á, sem hér var rækilega upplýst áðan af hv. 4. þm. Austf. með upplestri hans úr gerðum verðlagsnefndar, að á undanförnum vikum hefur verðlag stöðugt þokazt upp og alveg eins og ekki síður á því tímabili eða þeim tíma, sem liðinn er frá því, að hæstv. ríkisstj. boðaði verðstöðvun. En hvað sem því liður, þá má, ef nokkuð er skyggnzt aftur í tímann, auðvitað öllum vera ljóst, að lítið er að byggja á verðstöðvunum, sem þessi hæstv. ríkisstj. og stjórnarflokkar beita sér fyrir á svipuðum tíma og nú, m. ö. o. þegar dregur að því, að enn á að ganga til kosninga, því að þessir tilburðir eru sem sagt ekkert nýir.
Samstarf þessara flokka byrjaði á því, að Sjálfstfl. studdi minnihlutastjórn Alþfl., sem mynduð var 1958. Þá hafði vinstri stjórnin farið frá völdum. Hún hafði beðizt lausnar, vegna þess að hún taldi sig ekki geta framkvæmt þá stefnu, sem hún hafði heitið að berjast fyrir og standa og falla með. Þá var mynduð minnihlutastjórn Alþfl., og Sjálfstfl. studdi þá stjórn, og það var byrjun á því samstarfi þessara tveggja flokka, sem staðið hefur síðan. Þá var gerð verðstöðvun, og Alþfl., sem aldrei hefur nú verið sérstaklega stór, kom þá fram fyrir þjóðina, fram fyrir hv. kjósendur og rétti upp. hendurnar eins og lítið barn og sagði: „Ég er svona stór, ég get stöðvað verðið einn, gert það, sem ekki var hægt, þó að við værum þrír saman hérna fyrir nokkrum mánuðum. Ég get stöðvað verðið. Og auðvitað leið svo ekki langt fram yfir kosningar, áður en það kom í ljós, að hér var um hreina blekkingu að ræða. Stöðvunin var aðeins stundarfró, og skriðan fór af stað aftur af fullum krafti. Tvær gengisfellingar dundu þá yfir með stuttu millibili með öllum þeim afleiðingum, sem þeim fylgja og öllum eru kunnar.
Til þess að gera langa sögu stutta vil ég aðeins aftur víkja að því, að þegar síðast átti að kjósa, var alveg nákvæmlega sami leikur leikinn, og ég er ekki búinn að gleyma því, sem ég las þá í „blaði allra landsmanna“. Þá var minnkandi afli, og það hafði orðið verðfall á íslenzkum vörum erlendis. En í „blaði allra landsmanna“ mátti lesa það, að þeim ógnum, sem af slíkri þróun stöfuðu, hefði verið bægt frá, fullkomlega bægt frá, í krafti þeirrar ágætu stjórnarstefnu, sem hér hefði ráðið í landinu á undanförnum árum. Þetta var auðvitað fyrir kosningar. Síðan var kosið og blekkingin tókst þannig, að stjórnin hélt meiri hl. Síðan leið sumarið með sumarfríum og siglingum, en þegar þing kom saman að hausti, var það eitt fyrsta málið, sem kom fyrir þingið, að gera neyðarráðstafanir í efnahagsmálum. Og þær ráðstafanir voru fyrst og fremst fólgnar í því að seilast inn á matborð heimilanna og ná með þeim hætti nokkrum hundruðum millj. kr. inn í ríkissjóðinn með því að fella niður niðurgreiðslur af brýnustu matvælum og annað af því tagi. Þessi aðför mætti harðri andstöðu hér á Alþ., eins og hv. þm. muna, og það var kannske orðin nokkur tvísýna á því, hvort ríkisstj. þyrði að halda áfram með aðgerðir í þessari mynd, þegar það gerðist, að Bretar felldu gengi síns gjaldmiðils nokkuð. Ríkisstj. fór þá að dæmi þeirra og felldi gengi íslenzku krónunnar, en miklu meira en Bretar gengi pundsins. Ég ætla ekki að fara að eyða tíma í það að rekja þessa sögu neitt nákvæmlega. Hv. þm. og aðrir, sem fylgdust með þeim málum þá, muna hana og kunna hana, og þeir muna þær marghljóða yfirlýsingar, sem þá voru gefnar af hæstv. ríkisstj. og t. d. af hæstv. viðskmrh., fyrst um það, að gengislækkun kæmi ekki til greina, hún væri ekki lausnin, og síðan örfáum vikum seinna um það, að gengislækkun væri einmitt rétta leiðin og allra helzt sú gengislækkun, sem þarna var framkvæmd, vegna þess að hún hefði verið undirbúin svo vel og allir útreikningar væru í svo góðu lagi, að slík ágætis gengislækkun hafði aldrei áður komið til framkvæmda, a. m. k. ekki á þessu landi.
Þessi gengisfelling var gerð að hausti eins og oftar, og það var varla hægt að bíða með það þangað til þing kom saman aftur eftir þinghléið um jól og áramót að leggja fram ný frv. um nýjar vandræðaráðstafanir til viðbótar við þá aðgerð, sem í gengislækkuninni fólst. Svo vel stóðust þeir útreikningar, sem talsmenn hæstv. ríkisstj. höfðu fyrir fáum vikum sagt hv. þm. og þjóðinni, að væru með öllu óyggjandi og aldrei hefðu aðrir slíkir legið fyrir, þegar gengislækkun hefði verið gerð. Og það leið enginn mánuður svo á þeim vetri, vetrinum 1967–1968, að ekki kæmu fram mánaðarlega ný vandræðafrv. í ýmsum myndum til viðbótar við þá hina vel útreiknuðu gengislækkun.
Og við höfum séð meiri gengislækkanir og stærri, síðan þetta var. Og við síðustu gengislækkun, má segja, að það hafi verið náð merkum áfanga í þeirri sorgarsögu að lækka gengi íslenzkrar krónu, því að það er þá, sem það gerist við síðustu gengisfellingu, að sú króna, sem fyrir 40 árum jafngilti einni vinnustund, svona lauslega reiknað, var ekki lengur orðin einnar mínútu virði, heldur væri nær að segja það, að nú þurfi 100 kr. á móti einni fyrir 40 árum, þegar metið er á móti vinnu.
Þessi saga, þó að hún sé ekki rakin hér nema í örfáum orðum, gerir að engu þær vonir, sem menn ella kynnu að binda við þetta stöðvunarfrv. í höndum núv. ríkisstj. Og vegna þess, að það eru ekki nema örfáir dagar síðan hæstv. forsrh. lýsti yfir því hér á Alþ., að stjórnarstefnan yrði óbreytt, þá er engin minnsta ástæða til þess að ætla, að annað fari á eftir heldur en það, sem hv. þm. og allir landsmenn þekkja allt of vel. Þó að þetta frv. verði samþ. og með bráðabirgðaráðstöfunum verði stöðvað verðlag þangað til í haust, þá er óvissan, a. m. k. við sömu forustu, alger um það, hvað við taki. Það eina, sem mælir með því nú að mínum dómi að gera bráðabirgðaverðstöðun, líkt og hér er farið fram á, að slepptum þeim aðgerðum, sem snerta gerða samninga og gilda, það er, að það eru kosningar fram undan í vor, og þá er möguleiki til þess fyrir þjóðina að skipta um forustu og knýja fram breytta stefnu. Með því eina móti getur gagn orðið að því að stöðva verðlag til bráðabirgða, en annars alls ekki, því að eins og sýnt hefur sig áður við verðstöðvanir þessara hv. stjórnarflokka, sem nú fara með völd, þá hefur verðbólgan aukizt og magnazt margfaldlega að þeim loknum hverju sinni. Það hefur verið margsýnt fram á það hér, að aldrei að undanteknum hæsta toppnum á stríðsárunum hefur verðbólguþróunin orðið eins ör og á stjórnartíma þessarar stjórnar, sem settist á stjórnarstóla til þess að stöðva verðbólguna, til þess að koma á jafnvægi í peningamálunum.
Efni þessa frv. hefur áður verið margsinnis rakið hér í umr., og síðast áðan vék hv. 4. þm. Reykv. að því í einstökum atriðum. Frv., eins og það er nú, felur það í sér að ógilda viss atriði í þeim samningum, sem verkalýðssamtökin og atvinnurekendur hafa nýlega með sér gert. En það er álit margra, að unnt hefði verið að ná sama marki og þetta frv. stefnir að, þ. e. stöðvun til bráðabirgða, án þess að grípa til þessara ráðstafana, sem enginn getur sagt um nú, hvaða afleiðingar kunna að hafa og er ég þó með þeim orðum á engan hátt að gefa það í skyn, að stéttasamtökin taki til neinna ólöglegra aðgerða. Skyndistöðvun verðlags er því aðeins réttlætanleg, eins og ég sagði, ef nota á tímann til þess að undirbúa breytta stefnu, annars er hún gagnslaus. Þetta frv. er eins og hér hefur oft verið bent á, enn ein sönnunin og ekki sú sízta fyrir úrræðaleysi og uppgjöf þessarar ríkisstj., uppgjöf við málefnin, þó að ekki kenni neinnar uppgjafar við það að sitja í stjórnarstólunum. Nú er boðið upp á þetta, þessi bráðabirgðaúrræði, eftir þriggja kjörtímabila setu í ríkisstj. Þetta er í sjálfu sér aumkunarvert, og þetta áréttar það og undirstrikar, eins og fram kom hér áðan í ræðu hv. 4. þm. Reykv., að það var óforsvaranlegt annað en skjóta málinu undir dóm þjóðarinnar nú í haust. Þetta sáu ráðamenn Sjálfstfl., að því er virtist. Þeir létu það hins vegar ráða úrslitum að fá að sitja áfram kyrrir í stjórnarstólum þennan vetur, létu undan þrýstingi frá Alþfl., sem treysti sér ekki til þess að fara í kosningar þá. Og þetta, að Sjálfstfl. skyldi gera þetta vitandi vits, að hann var að gera rangt, er auðvitað stórlega vítavert. Það bar að kjósa í haust og raunar miklu, miklu fyrr, því að það má segja, að það hafi ekki örlað á því allan þann tíma, sem þessi meiri hl., sem nú fer með völd, hafi nálgazt það að koma í framkvæmd þeim meginstefnumálum, sem hann eða stjórnin setti fram í byrjun þessa samstarfstímabils, en þau voru, eins og allir muna, m. a. stöðvun dýrtíðarinnar, og ég hef áður vikið að, hvernig það hefur tekizt. Hækkun dýrtíðar nú er u. þ. b. 250 á móti 150, áður en þessir komu til valda. Allir vita, hvernig til hefur tekizt um það fyrirheit að draga úr skuldasöfnun erlendis, en hún hefur margfaldazt. Þá hef ég líka vikið að því, að á þessu tímabili hefur sá áfangi náðst, að krónan jafngildir orðið einseyringi miðað við um 1930.
Það er ekki hægt annað að segja en þetta eru ákaflega ömurlegar staðreyndir, og þessi þróun segir til sín í öllu þjóðlífinu. Það mætti spyrja, hvort hæstv. ríkisstj. búist við því, að það þurfi nokkuð sérstakt að gera fyrir atvinnuvegina svona undir áramótin, útflutningsatvinnuvegina, sjávarútveginn. Það má mikið vera, ef það telst ekki nauðsyn, og það veit alþjóð. Margar tölur liggja fyrir um það, að kaupmáttur launa er lítill, og það hefur ekki lengi verið jafnerfitt fyrir fjölskylduna að láta endana ná saman, þegar kaupa á í matinn og kaupa allra brýnustu nauðsynjar. Það atvinnuleysi, sem hér gaus upp eins og drepsótt á valdatíma þessa stjórnarmeirihluta rétt að loknu hinu mesta góðæri, sem yfir Ísland hefur gengið, hvað snertir útflutningsframleiðsluna, er enn þá ekki kveðið niður. Það er enn þá viðvarandi á svæðum. Atvinnuleysi var hér óþekkt í áratugi, og ég álít, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki snúizt við þeim málum af þeirri hörku, sem eðlilegt var, heldur láti sér þvert á móti fremur hægt um að kveða þá vofu niður, og ég álít það mjög vítavert, að hún skuli ekki hafa unnið að því af festu, að atvinnuleysi sé algerlega úr sögunni, því að auðvitað er það óskaplegasta verðmætasóunin, sem til er, þegar vinnandi hendur hafa ekki verk að vinna. Þetta og ótal margt fleira hlýtur að skoðast, þegar hæstv. ríkisstj. leggur nú fram enn eitt frv. um skyndistöðvun verðlags. Það er ekki hægt að líta fram hjá þessum hlutum.
Það kom fram hér við 2. umr. þessa máls, að stjórnarandstæðingar voru reiðubúnir til þess að taka þátt í skyndistöðvun verðlagsins, en þó ekki á þeim grundvelli að brjóta um leið niður gerða og gilda samninga. En ég legg áherzlu á það enn þá og aftur, að skyndistöðvun verður því aðeins gagnleg, að hléið sé notað til þess að undirbúa aðrar ráðstafanir, undirbúa breytta stefnu. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa báðir margsinnis lýst yfir því, hvernig þeir vildu taka á málunum, og ég ætla ekki að fara að fara út í það, t. d. varðandi Framsfl., heldur læt ég nægja að vísa til þeirra þingmála sem hafa verið lögð fram af hálfu flokksins og flokksmanna á þessu þingi og raunar áður.
Mér þótti eins og líklega fleiri þm. töluvert skrýtin ræða hæstv. viðskmrh. áðan, þegar hann í fundarbyrjun eiginlega vakti upp umr. um þetta mál nú að nýju við 3. umr. Hann talaði um stjórnarskrárbrot, en sennilega hefur hann nú bara meint það, sem hefur verið gagnrýnt, að setja hér lög, sem brytu í bága og gerðu ógilda nýlega gerða kjarasamninga. Og hann fór mörgum orðum um það, að raddir utan úr bæ ættu nú ekki að hafa áhrif hér á hv. Alþ. Mér þótti þetta nú koma úr hörðustu átt einmitt hjá þessum hæstv. ráðh. Ég man ekki betur en hann væri einn ráðh. í vinstri stjórninni, og eitt af því, sem henni hefur mest verið legið á hálsi fyrir, var það, að hún vildi hafa samband og samstarf við vinnustéttirnar um þær ráðstafanir, sem hún gerði. En ég veit ekki betur en þessi hæstv. ráðh. hafi þá verið í stjórn og þar með gerzt sekur um það, sem hann nú telur mjög vítavert, að hlusta eftir röddum utan úr bæ, en raddir utan úr bæ eru auðvitað ekki annað en raddir fólksins, og það er eðlilegt, að á það sé hlustað, þó að Alþ. að síðustu taki sínar ákvarðanir. Og ég man nú ekki betur en í fyrra hefði þessi hæstv. ráðh. einna sterkust orð um þá óhæfu, sem hann taldi, að átt hefði sér stað, þegar kom til uppþots með íslenzkum námsmönnum í Stokkhólmi. Íslenzkir námsmenn erlendis höfðu uppi mikla sókn í fyrra, og sums staðar gekk nú nokkuð langt að dómi hæstv. ráðh. og fleiri. Og það man ég alveg fyrir víst, að hæstv. ráðh. hafði þau orð hér, að þessar aðgerðir hlytu að spilla fyrir námsmönnum erlendis. Og jafn víst er hitt, að örfáum dögum seinna, áður en vikan var liðin, kom yfirlýsing frá þessum sama hæstv. ráðh. um það, að öll atriði varðandi kjör námsmanna í framhaldsnámi og sérstaklega námsmanna erlendis yrðu tekin til rækilegrar skoðunar. Og ég gat a. m. k. ekki varizt því, að þetta bæri keim af því, að hæstv. ráðh. hefði hlustað á „raddir utan úr bæ“. En í sambandi við þetta mál í heild og þessa ræðu hæstv. ráðh., þá er bezt að rifja það upp, hvaða raddir það eru, sem hér er um að ræða, og ég vil láta þær koma hér fram og fá þær inn í þingtíðindin. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa punkta úr því bréfi, sem miðstjórn Alþýðusambands Íslands sendi ríkisstj. og sendi fjhn. þessarar d. afrit af. (Gripið fram í: Það er búið að lesa það.) Það lítur ekki út fyrir það, að hæstv. viðskmrh. hafi fylgzt vel með því. Það lítur ekki út fyrir það. Hvort honum kemur að gagni þessi lestur, get ég hins vegar ekki ábyrgzt, en hann hefur, eins og sumir hv. stjórnarliðar, og nú hefur nýlega komið fram, metið það meira að fara í símann heldur en vera við umr. um alvarlegt mál. En hér segir svo:
„Vegna fram komins frv. ríkisstj. um ráðstafanir til stöðugs verðlags og atvinnuöryggis ályktar miðstjórn Alþýðusambands Íslands eftirfarandi:
l. Hún mótmælir eindregið þeim ákvæðum frv., sem fela í sér skerðingu á launum samkv. samningum verkalýðsfélaganna frá 19. júní s. l. og síðar með þeim hætti, að umsömdum vísitölugrundvelli er breytt til kaupskerðingar um 1 stig, 2 vísitölustig felld niður í sama tilgangi og verðlagsbætur miðaðar við tíma, sem launafólki er um sinn mun óhagstæðara en samningar kveða á um.
2. Hún telur, að með þessum hætti sé grundvelli samninganna frá 19. júní s. l. og síðar kippt brott og þeir því úr gildi fallnir, hvað öll kaupgjaldsákvæði áhrærir, verði þessi lög lögfest.
3. Hún hvetur því öll sambandsfélög til að tilkynna viðsemjendum sínum, að þau muni krefjast nýrra kjarasamninga, komi skerðingarákvæði frv. til framkvæmda.
4. Hún vísar til samþykktar sinnar frá 11. okt. s. l. og staðhæfir, að unnt sé eftir þeim leiðum, sem þar er bent á, að stöðva verðbólguþróunina, án þess að grípa þurfi til lögþvingaðra breytinga á gerðum og gildum kjarasamningum verkalýðsfélaganna.
5. Hún telur, að frjáls samningsréttur verkalýðshreyfingarinnar sé þverbrotinn með framangreindum ákvæðum, ef að lögum verða, og tvísýnt sé um framtíð hans, ef slíkri aðför að honum er ekki mætt með fyllstu samstöðu af hálfu verkalýðssamtakanna. Einnig telur miðstjórnin, að nái ógilding lögmætra samninga nú fram að ganga, leiði það óhjákvæmilega til þess, að ekki verði unnt að gera kjarasamninga nema til fárra mánaða í senn, til stöðugrar óvissu fyrir báða aðila vinnumarkaðarins.“
Þetta var það bréf, sem sent var hæstv. forsrh. og þar með ríkisstj., og ég hygg, að það hafi fyrst og fremst verið þetta bréf, sem hæstv. viðskmrh. átti við áðan, þegar hann var að tala um raddir utan úr bæ og með augljósri fyrirlitningu eða a. m. k. vandlætingu. En hver skrifar þetta bréf? Það er ekki Alþb. eða Framsfl. eða einhver sérstök samtök stjórnarandstæðinga. Nei, það er miðstjórn Alþýðusambands Íslands, sem skrifar þetta bréf, og ég veit ekki betur en sú miðstjórn sé blönduð stjórn og þar sitji saman bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar. Og hvernig er orðið samræmið á stjórnarheimilinu, þegar annars vegar hæstv. ráðh. flytja mál sitt á þann hátt, sem hæstv. viðskmrh. gerði hér áðan í ræðustóli á hv. Alþ., og svo menn í trúnaðarstöðum úr sömu herbúðum senda inn erindi eins og það, sem ég hef nýlokið að lesa. Ég veit það vel, og það vitum við öll, að hæstv. ríkisstj. hefur hér öruggan þingmeirihluta, það er enginn að draga það í efa, og hennar er valdið. En ég held þó, að hæstv. ríkisstj. ætti að gera sér það ljóst, sem hún hlýtur raunar þegar að hafa gert, að hér eru ekki nein gamanmál á ferðum, og ég held, að hún ætti, hvort sem það er vegna þrýstings utan úr bæ eða af öðrum ástæðum, að endurskoða afstöðu sína í þessu máli og reyna til enn frekari þrautar að ná samstöðu um aðgerðir. Ég álít þetta skyldu hæstv. ríkisstj. Og ég álít það enn frekar skyldu hennar, þegar það er haft í huga, að hún lét undir höfuð leggjast í haust að vísa þessum málum og öðrum vandamálum til kjósenda, að leggja þau undir þeirra dóm, eftir að hún hefur, hvað snertir verðlagsmálin, árangurslaust allan þennan tíma reynt að leysa þau, og hefur ekki samkv. yfirlýsingu hæstv. forsrh. komið auga á neinar leiðir til þess að gera það, aðrar en þær, sem hún er búin að reyna árangurslaust í þrjú kjörtímabil. Með allt þetta í huga held ég, að það væri fyllilega þess vert fyrir hæstv. ríkisstj. að íhuga betur afstöðu sína í þessu máli en hún nú þegar hefur gert og reyna á það alveg til þrautar, hvort ekki sé hægt að ná samstöðu um þetta mál.