13.11.1970
Neðri deild: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í B-deild Alþingistíðinda. (85)
101. mál, atvinnuöryggi
Bragi Sigurjónsson:
Herra forseti. Ég hef hlustað með athygli á umr. þingheims í gær og dag um þetta frv., sem hér liggur fyrir. Því miður gat ég ekki hlustað á 1. umr., ég var ekki staddur þá í þinginu, en mig langaði aðeins að láta koma hér fram skilning minn á frv. og á umr., sem hér hafa farið fram.
Mér skilst, að enginn þm. sé á móti því, að reynt sé að stöðva víxlhækkanir verðlags og kaupgjalds. Um það eru allir sammála, sem hér hafa tekið til máls. Hitt er deilt um, hvernig að þessu skuli farið. Þó skilst mér, að það séu ekki verulega deildar skoðanir um það, að ríkissjóður skuli taka á sig nokkurn hluta, atvinnurekendur nokkurn hluta gegnum launaskattinn, en það er deilt um, hvað það sé mikið, sem af launþegum sé tekið. Sumir segja 3 stig, aðrir segja 2 stig. Nú þykist ég heyra á umr. þeirra verkalýðsforingja, sem hér hafa talað, að þeim sé fyrst og fremst sárt um, að ekki sé greidd full vísitala á kaup, eins og samið hafi verið um hér í vor. Þessa afstöðu þeirra skil ég vel, en þó finnst mér, að mestu máli skipti, hvað launþeginn fær út úr málinu, þegar að lokum er komið. Og þar er spurningin þessi: Er það rétt, sem ríkisstj. hefur haldið fram og þeir, sem reiknað hafa dæmið út fyrir hana? Er það rétt, að þau 2 vísitölustig, ég tek fyrst og fremst þau 2 vísitölustig, eins og það er orðað, held ég, í einu dagblaðinu, „deyi út“ á þessu verðstöðvunartímabili, verði þannig, að launþeginn í raun og veru, þegar allt kemur til alls, tapi ekki á málinu, en vinni við það meira atvinnuöryggi? Þetta er skilningur stjórnarflokkanna á þessu, og þess vegna fylgjum við málinu. Við teljum, að launþeginn hafi af þessu gagn, ekki tjón. Ég segi ekki, að hann hafi af þessu beinan hag, en hann hefur þó vissulega hag af því, að eitthvað sé gert til tryggingar kaupmætti launa, og það er verið að reyna með frv. En mestur hagurinn er þetta, að ef okkur tekst að stöðva eða draga a. m. k. verulega úr víxlhækkunum verðlags og kaupgjalds, þá er atvinnuöryggi meira í landinu en annars. Og nú vil ég spyrja hv. 2. landsk. þm. og hv. 9. þm. Reykv., af því að þeir eru valdamenn í verkalýðshreyfingunni og hafa vissulega sýnt það um mörg undanfarin ár, að þeir eru menn, sem treysta má á fyrir hag launþeganna að ýmsu leyti: Eruð þið ekki of kappsamir hér, þegar þið eruð að tala um það, að það megi ekki skerða þennan vísitölurétt? Eigum við ekki fyrst og fremst að líta á kaupmátt launa? Viljið þið taka á ykkur þá ábyrgð að etja verkalýðnum gegn þessu, sem hér er verið að reyna að gera? Viljið þið taka á ykkur þá ábyrgð og eiga kannske von á því, að þið berið þá nokkra ábyrgð á því, að kaupgjald og verðlag hækki meira en ella og verði til þess að skapa hér minna atvinnuöryggi? Hér var talað um það áðan, að frestun á 2 vísitölustigum þýddi það, að það væri verið að ógilda kjarasamningana frá í vor. Voru ekki kjarasamningarnir eitthvað annað og meira en eingöngu vísitölusamningar? Jú, þeir voru samningar um verulegar grunnkaupshækkanir. Það er ekki verið að ógilda neitt af þeim. Þess vegna finnst mér það ákaflega einkennileg fullyrðing, þegar það er verið að tala um að ógilda kjarasamningana. Það er kannske verið að breyta þeim að einhverju leyti, en í mínum augum er það að svo óverulegu leyti, að það, sem vinnst á móti, er mikilsverðara.
Hér var í fyrravetur oft verið að brýna okkur Alþfl.-menn á því, þegar við vorum að samþykkja hækkaðan söluskatt, að við vildum seilast inn á borð fátæku fjölskyldnanna, barnamannanna, því að söluskatturinn legðist á alla jafnt, en hví viðurkennið þið þá ekki nú, góðu herrar, sem voruð að deila á okkur í fyrra fyrir þetta, að með þessu, sem er verið að leggja til, þá er verið að rétta að þeim, sem eru með stóru fjölskyldurnar, bæði verulega hækkaðar fjölskyldubætur og með niðurgreiðslu búvörunnar, mjólkur og fleira, þá er einmitt verið að létta verulega undir með stóru fjölskyldunum, barnmörgu fjölskyldunum, og þetta er í mínum augum afar mikils virði? Ég hef talað við ýmsa einmitt úr þessum stéttum eða hópum þjóðfélagsins, og þeir segja: „Það er verið að rétta hag okkar með þessu, það er verið að bæta hag okkar, við höfum áreiðanlega betra upp úr þessu en ef allt væri óbreytt.“
Ég ætla hér ekki að taka upp hanzkann fyrir hæstv. forsrh., hann er maður til þess að gera það sjálfur, en það hefur verið talað um það, að hann hafi óvarlega talað áður en þetta frv. kom fram, og síðan hafi orðið ýmsar hækkanir, sem annars hefðu kannske ekki orðið, og einn hv. þm. las upp samþykktir frá verðlagsráði um ýmsar hækkanir undanfarið, rétt áður en frv. kom fram. Ég hjó einmitt eftir því, að ýmsar þær hækkanir voru samþ. ýmist með samhljóða atkv. eða þeir, sem greiddu ekki atkv. með, treystu sér ekki til að greiða atkv. gegn hækkununum mörgum hverjum, heldur sátu hjá. Þetta sagði sína sögu, fannst mér. Enginn þurfti að búast við því, eftir svo stórfelldar og skyndilegar kauphækkanir eins og voru í vor, að ekki hlytu að koma fram hækkanir á vöruverði, flutningsgjöldum, í iðnaðinum, í útveginum, hjá landbúnaðinum. Þetta vissu allir. Það þurfti enginn að undrast það, þó að verðhækkanir færu af stað. Það er alltaf háskalegt, þegar kaupgjald hækkar mjög skyndilega og í stórum þrepum. Það er áreiðanlega miklu hagfelldara, ef hægt væri að taka upp þau vinnubrögð að hækka kaup minna hverju sinni, en oftar, heldur en í stórum stökkum, eins og gert var í vor. Þar um hygg ég, að við getum verið alveg sammála hv. 2. landsk. þm. og 9. þm. Reykv., og að þessu álít ég, að allir þurfi að vinna.
En ég endurtek spurningu mína, sem mig langaði til þess að kæmi fram: Viljið þið, hv. 2. landsk. og 9. þm. Reykv., standa að því, að þetta frv. nái ekki fram að ganga? Teljið þið svo mikilsverð þessi 2 vísitölustig, að þið viljið hætta á það, að frv. nái ekki fram að ganga, að kaupmáttur launa haldist ekki líkur og nú er og að atvinnuöryggið haldist ekki betur en ella, en svo verður, ef þetta frv. nær ekki fram að ganga? Mér finnst, að ábyrgð ykkar hljóti að vera æði mikil, ef þið viljið standa gegn þessu og etja verkalýðshreyfingunni móti aðgerðunum. Þið hafið mikil völd, ég skal ekki neita því, en með vald þarf vel að fara.