15.03.1971
Neðri deild: 61. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (913)

73. mál, útvarpslög

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Þar sem ég geri ráð fyrir því, að umræðum um þetta mál ljúki ekki nú og athugun þurfi aðeins að fara fram vegna breytinga við atkvgr. við 2. umr., þá vildi ég mega vekja athygli á því við þá n., sem fjallar um þetta mál, hvort ekki er ástæða til þess, að því verði beint til Ríkisútvarpsins að breytingar verði gerðar á innheimtu afnotagjalda útvarps og sjónvarps, en framkvæmd þessara mála er þannig í dag, að þeir aðilar, sem útvarpstæki eiga í íbúð sinni og greiða af því afnotagjald, þurfa einnig að greiða afnotagjöld af tæki, sem þeir hafa í bifreið sinni og í sambandi við sjónvörpin er framkvæmdin þannig, að þar sem tvö sjónvarpstæki eru á heimili er innheimt gjald af báðum þeim tækjum. Hins vegar, ef um er að ræða tvö útvarpstæki á sama heimili, þá er það ekki gert. Þegar frv. er skoðað, þá er hér um að ræða heimildarákvæði fyrir ráðherra að staðfesta reglugerð, þar sem heimilt er að innheimta þessi afnotagjöld með þessum hætti, þannig að það er hægt að fella það niður, en ég vildi mega vekja athygli á þessu og beina því til n., hvort og þá með hvaða hætti hægt væri að gera á þessu breytingar.