22.03.1971
Efri deild: 71. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (923)

73. mál, útvarpslög

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég get mjög vel skilið aths. hv. 1. þm. Norðurl. v., Ólafs Jóhannessonar, varðandi þann mismunandi tíma, sem deildirnar tvær fá til þess að athuga þetta mikilvæga mál. Hins vegar er ég honum ekki sammála um það, að rétt hefði verið hjá ríkisstj. að leggja málið fyrir hv. Ed. nú í upphafi þessa þings, vegna þess að menntmn. Nd. hafði þá hafið athugun á málinu, athugun hennar var í miðjum klíðum og hætta hefði verið á því, að það verk, sem hún var þegar búin að vinna, hefði verið talið unnið til ónýtis, ef málið hefði verið lagt fyrir aðra deild. Auk þess hefði e. t. v. mátt skilja það sem einhvers konar vantraust á meðferð málsins í fyrra, ef ríkisstj. hefði lagt málið fyrir aðra deild en þá, sem hafði þegar hafið athugun á því, og ég vildi með engu móti gefa neitt tilefni til slíks, það átti menntmn. Nd. engan veginn skilið, því hún hefur tekið mjög vel og vandlega á málinu. En um hitt er ég hv. þm. alveg sammála, að athugun málsins í hv. Nd. hefur tekið óeðlilega langan tíma. Ég hef fylgzt með störfum hv. menntmn. Nd. að málinu og margsinnis óskað þess, að hún hraðaði afgreiðslu þess, en eins og kom fram hjá hv. þm., þá komu upp mörg ágreiningsefni í sambandi við málið, meira að segja mjög mikilvæg ágreiningsefni, svo að nefndinni tókst ekki að hraða störfum sínum meira en þetta. En síðustu orð mín skulu vera þau að taka undir það, sem er alveg rétt hjá hv. þm., að einmitt þær breytingar, sem hv. Nd. hefur gert á málinu og ítarleg athugun, sem þar hefur farið fram, ætti að geta létt þessari hv. d. að taka tiltölulega fljótlega afstöðu til málsins og þess vegna ætti henni að duga minni tími en hv. Nd. En almennt skoðað er ég þm. sammála um það, að það ætti að skipta tíma til athugunar á málum miklu jafnar á milli deilda heldur en hér hefur því miður átt sér stað.