22.03.1971
Efri deild: 71. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (924)

73. mál, útvarpslög

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég get tekið undir það með hæstv. ráðh., að Ed. muni komast af með styttri tíma til athugunar á málinu en Nd. hefur þurft. En hins vegar get ég ekki lagt mikið upp úr þeirri röksemd, sem hann vildi bera hér fram, að það hafi verið hætta á því, að hið góða starf hv. Nd. hefði farið til ónýtis, ef málið hefði ekki verið lagt fyrir hana einnig á þessu þingi. Mér virðist, að reynslan sýni, að það ágæta starf, sem hv. menntmn. Nd. hefur unnið í þessu máli á s. l. þingi, hafi ekki orðið til þess að flýta málinu ýkjamikið á þessu þingi, þannig að ég sé nú ekki, að þessi rök hafi mikið upp á sig, en svo skal ég láta útrætt um þetta.