18.03.1971
Efri deild: 68. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í B-deild Alþingistíðinda. (939)

238. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Svo sem kunnugt er, varð samkomulag um það milli aðila, sjómanna annars vegar og útgerðarmanna hins vegar, að óska þess, að sú breyting, sem frv. þetta felur í sér, verði gerð á lögunum nr. 79 frá 31. des. 1968, um ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenzkrar krónu. Sú breyting, sem hér um ræðir, er á ákvæði 4. gr. laganna og felur í sér, að greiðsla af afla í Stofnfjársjóð fiskiskipa, þegar afli er seldur erlendis, verði 16% í stað 22% af heildarverðmæti aflans eins og er í gildandi lögum. Um þessa breytingu var fullt samkomulag milli aðila og í samræmi við það gaf ríkisstj. yfirlýsingu um, að hún mundi belta sér fyrir því að fá umræddu lagaákvæði breytt. Sjútvn. leggur einróma til, að frv. þetta verði samþ. óbreytt og að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.