26.03.1971
Neðri deild: 70. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í B-deild Alþingistíðinda. (952)
238. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Í brtt. hv. þm. kemur það fram, að þeir hafa tekið á sig sjálfa að meta, hvað eftir ætti að standa í sambandi við ekki aðeins þau lög, sem um er að ræða, heldur og þá samninga, sem í kjölfar þeirra fóru á sínum tíma milli útvegsmanna og sjómanna. Það fer ekki á milli mála, að þegar þessi lög voru sett, náðu sjómenn mjög þýðingarmiklum hlutum fram í sínum samningum, þ. á m. lífeyrissjóði og greiðslu hluta af fæðiskostnaði. Þetta hefur ekki enn þá verið metið af aðildarsamtökunum, sem um þetta sömdu á sínum tíma. Ég hef litla trú á því, að þessir hv. þm. hafi kunnað að meta þetta rétt, tel hins vegar nauðsynlegt, að samtökin sjálf geri það í sínum næstu samningum og segi þess vegna nei.