16.11.1970
Efri deild: 16. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

101. mál, atvinnuöryggi

Björn Jónsson:

Herra forseti. Þeir hlutir gerðust á s. l. vori eða snemma sumars, að verkalýðssamtökin á Íslandi gerðu nýja kjarasamninga, eftir að sú þróun hafði farið fram um tveggja ára skeið, að sókn bæði atvinnurekenda og ríkisvaldsins á hendur launakjörunum hafði borið þann árangur, að kjörin höfðu verið stórkostlega skert. Það hafði í raun og veru verið tveggja ára undanhald af hálfu verkalýðshreyfingarinnar í sambandi við kjaramálin, og bæði árin 1968 og 1969 hafði verið samið um beinar kauplækkanir, sem fyrst og fremst urðu með niðurfellingu á hluta af verðlagsbótum. Raunveruleg launakjör verkamanna hafa varla rýrnað minna en um nálægt 20% á þessu tveggja ára tímabili, a. m. k. ef meðtalin er sú kjaraskerðing, sem fólst í samdrætti atvinnu og atvinnuleysi á þessu tímabili, en beinar og útreiknanlegar kauplækkanir eftir þeirri viðmiðun, sem menn gjarnan gera sér um vísitölu, urðu nálægt 14%. Það hafði gerzt einnig á þessu tímabili, að þjóðartekjur höfðu af ýmsum ástæðum, aflabresti og verðfalli, lækkað allverulega, en hitt var óumdeilt, að launakjör a. m. k. hinna lægst launuðu hafa rýrnað meir en þjóðartekjunum nam. Og það er hald mitt, að slíkt hefði raunverulega hvergi getað gerzt í velferðarríkjum Vestur-Evrópu nema hér á Íslandi, að byrðum af ytri áföllum væri svo gersamlega velt yfir á bök hinna lægst launuðu í þjóðfélaginu, því að það er reynslan, a. m. k. á Norðurlöndum, að þegar þjóðartekjur vaxa, hækka launatekjur almennings nokkru meira, og sé um samdrátt að ræða, þá er á sama hátt leitazt við af öllum mætti að firra hina lægst launuðu afleiðingunum af þeirri lækkun þjóðartekna og leggja það heldur á breiðari bökin.

Ég tel, að höfuðsök stjórnvalda á þessu tímabili hafi fyrst og fremst verið fólgin í þessu, að launakjör hinna lægst launuðu rýrnuðu meir en meðaltalslækkun þjóðartekna. Þegar þessa er gætt, hlaut það að verða höfuðtakmark verkalýðssamtakanna í sambandi við samningsgerðina á s. l. vori, þegar allar forsendur fyrir kjaraskerðingunum, sem höfðu orðið á undanförnum árum, voru brostnar, að full verðtrygging launa kæmi til framkvæmda og í öðru lagi grunnkaupshækkanir, sem skiluðu til fulls þeirri skerðingu, sem orðin var á launum.

Eins og ég sagði voru allar forsendur kaupskerðingarinnar, sem urðu 1968 og í ársbyrjun 1969, brostnar. Öll fyrirtæki í landinu og aðalatvinnuvegirnir högnuðust mjög mikið á árinu 1969 og komu ákaflega vel út, skiluðu stórfelldum gróða. Verðlag á sjávarafurðum og á okkar útflutningsvörum fór síhækkandi og var orðið um það leyti sem samningar fóru fram, nálægt því hæsta, sem verðlag hafði komizt á árinu 1966, sem var eitt mesta góðærisár, sem yfir þjóðina hefur gengið, og í sjávarútvegi voru aflabrögð góð. Það var vitanlegt, að forsendurnar fyrir því, að samningarnir á s. l. vori skiluðu því, sem þeir áttu að skila til launþeganna í varanlegum kjarabótum, án þess að það yrði útflutningsatvinnuvegunum ofraun, voru í fyrsta lagi, að ríkt aðhald yrði um verðmyndunina og í öðru lagi, að verðlag á útflutningi héldist hagstætt. Þ. e. a. s. þarna má skilja á milli, að annars vegar voru þeir hlutir, sem eru okkur að meira eða minna leyti sjálfráðir, og á ég þar við aðhaldið um verðmyndunina, og hins vegar hlutir, sem komu utan frá og eru okkur ekki eins sjálfráðir. En þegar þessir samningar voru gerðir, voru spár ráðunauta ríkisstj. og hagspekinga ákaflega misjafnar um það, hvernig útlitið væri í verðlagsmálum okkar útflutnings. Sumir héldu því fram, að verðlag mundi fara hækkandi, og öll teikn væru til þess á lofti, en aðrir töldu, að verðlagið væri þegar orðið svo hátt, að það væri valt að treysta á það, að það héldist og það mundi jafnvel geta lækkað. Reynslan síðan hefur svo skorið algerlega úr um það, að verðlagið hefur farið hækkandi og er nú orðið miklu hærra en nokkur þorði að vona, þegar samningarnir voru gerðir, þ. e. a. s. að því leyti, sem hlutirnir voru okkur ósjálfráðir, fór allt á hinn bezta veg. Í septembermánuði núna var áætlað, að meðaltalshækkun á sjávarafurðum væri nálægt 16% frá árinu 1969, en mun í reyndinni verða miklu meira vegna þess að verðlag hefur hækkað stórkostlega á sjávarafurðum frá því í septembermánuði og er nú orðið miklu hærra en það var, þegar það komst hæst 1966. Ég held t. d., að þegar samningar voru gerðir, hafi verðið á fiskblokk í Bandaríkjunum verið 26 eða 27 cent, en mun nú vera komið í 36 eða 37 cent pundið. Og þetta verð er eitt af því þýðingarmesta, þegar verðlag á okkar útflutningsafurðum er athugað. Á fyrra helmingi þessa árs var verðmætisauki vegna hækkaðs verðlags og vaxandi og ágætra aflabragða um 40%, og það er óhætt að fullyrða það, að síðari hluti ársins mun fara fram úr öllum áætlunum og skila okkur meiri afla á land og til útflutnings en nokkur dæmi eru áður um. Þessu samfara hefur verið hagstæð gjaldeyrisafkoma og góð afkoma ríkissjóðs, er víst óhætt að segja, því að stöðugt er að finnast þar nýtt fjármagn, eins og síðast kom fram hér í ræðu hæstv. fjmrh. En það er ekki lengra síðan en líklega tveir mánuðir eða nálægt því, kannske varla það, þegar við í Alþýðusambandinu vorum í viðræðum við ríkisstj., að þar var ekki til nokkur peningur til nokkurra nýrra niðurgreiðslna að sögn þessa hæstv. ráðh., en nú er ekki aðeins, að gert er ráð fyrir því, að úr ríkissjóði komi 341 millj. í niðurgreiðslur, án þess að nokkrum sköttum sé breytt, heldur hefur hann nú um helgina fundið nýjar lindir í ríkissjóði til þess að bæta á hann a. m. k. sem svarar 1.5 vísitölustigi eða eitthvað á þriðja hundrað millj., ef þar væri um ársútgjöld að ræða. En það er nú kannske ekki meiningin, að þær niðurgreiðslur standi nema skamman tíma, þótt það yrði ekki ljóst af ræðu hæstv. ráðh., en allar götur er þar um eitthvert, verulegt nýtt fjármagn að ræða, sem hann hefur komið auga á núna frá því á föstudaginn, og get ég ekki annað en óskað honum til hamingju og okkur öllum með það og vona, að frekari leit hans að fjármagni úr ríkissjóði beri sams konar árangur næstu daga og helzt sem lengst.

Sannleikurinn er sá, að það hefur verið viðurkennd staðreynd allt frá s. l. vori og hefur raunar enn verið staðfest af talsmönnum ríkisstj. í þessum umr., að það hafi aldrei verið önnur eins skilyrði til þess að bæta raunverulegan hag launþega, hvað allar ytri aðstæður áhrærir. Hitt er svo annað mál, að kauphækkanir á s. l. vori voru vissulega miklar og snöggar og að því leyti ekki að öllu leyti æskilegar. Svo mikil kauphækkun í einu vetfangi hlaut að gera mjög verulegar kröfur til stjórnvalda og yfirleitt allra þeirra, sem hafa einhver áhrif á verðmyndun í landinu, ef það átti ekki að bjóða ýmsum hættum heim, m. a. vegna gagnverkana verðlags og launa, og sú hætta gat vissulega verið fyrir hendi, að þessar verkanir yrðu svo miklar, að atvinnuvegirnir og þá sérstaklega útflutningsatvinnuvegirnir, sem búa við verðlag, sem við fáum ekkert við ráðið, gætu vart staðið undir þeim með góðu móti. Og í þessu efni reið fyrst og fremst á stjórnvöldum.

Það, sem hér kom sérstaklega til greina að gera, var það, sem ég vil nefna fyrst, kerfisbreytingar, þannig að verðhækkunarautomatið, sem við höfum búið okkur til hér á mörgum árum, væri að einhverju leyti rofið, og þar gæti ekki allt gengið sjálfrátt eins og verið hafði, og þar hefði ég sérstaklega viljað nefna landbúnaðinn, sem hér í þessum efnum er þungur á metunum, og ég er sannfærður um, að það mætti mjög breyta þeim tengslum, sem eru á milli verðlags landbúnaðarafurða og kaupgjalds sameinaðs verkafólks með grundvallarkerfisbreytingum, sem fyrst og fremst væru fólgnar í því, að bændum væru greiddir beinir styrkir, en það væri ekki látið fara gegnum ótal milliliði, sem veldur því, að það mikla fé, sem lagt er til landbúnaðarins með beinum og óbeinum hætti, kemur illa eða ekki til skila til bændanna sjálfra. Þar hefði verið hægt að spara stórkostlegar upphæðir og lækka verð landbúnaðarafurða með fullu samkomulagi við bændastéttina, ef eftir því hefði verið leitað um kerfisbreytingar í þeim efnum. Það er svo ekki að spyrja að því, að automatið hafi verið í fullum gangi, hvað varðaði embættismannastéttina. Þeir fengu fyrirhafnarlaust á silfurdiski, eftir að verkalýðsfélögin höfðu gert sína samninga, um 15% kauphækkun eða svipað og verkamenn fengu almennt, kannske örlítið minna en meðaltalshækkuninni nam, en nú hefur síðan staðið yfir samfelldur undirbúningur undir það, að þeir stæðu ekki við það, sem verkamenn og aðrir láglaunamenn fengu í kauphækkanir, heldur jafnvel 30–40% meiri hækkanir. Þessum samningum er að vísu, eins og kom hér fram í umr. fyrir nokkrum dögum, haldið algerlega leyndum, og undrar mig það í sjálfu sér ekki, að það þyki henta á sama tíma og verið er að gera sérstakar ráðstafanir með l., sem hér eru til umr., til þess að lækka launin hjá þeim lægst launuðu.

Í öðru lagi hlaut það svo að verða eitt aðalatriðið í sambandi við verðlagsþróunina, að öflugar ráðstafanir væru gerðar af hendi verðlagsyfirvalda og verðlagseftirlits til þess að hindra það, að kauphækkanirnar rynnu algerlega út í verðlagið innanlands, og í þriðja lagi gát á þjónustu hins opinbera, að það svið verðmyndunarkerfisins, sem opinberir aðilar, ríki og bæir, ráða yfir, gengi a. m. k. ekki fram fyrir aðra í hækkunum og reyndi að hindra þær, eftir því sem frekast mátti verða. Og loks komu svo að sjálfsögðu til greina aðgerðir, sem að sumu leyti hefðu getað verið svipaðar og þær, sem nú eru fyrirhugaðar, þ. e. a. s. greiðslugetu ríkissjóðs yrði beint að því, eftir því sem frekast var unnt, að lækka verðlag á einstökum vörutegundum og hindra þannig hækkun framfærslukostnaðar.

En í raun og veru, þegar þessi fjögur atriði eru athuguð, kemur í ljós, að ekkert af þessu hefur verið gert. Það hafa engar kerfisbreytingar verið gerðar, sem væru til hindrunar því, að það, sem ég kalla automatið, væri í fullum gangi. Og það hefur m. a. leitt til þess, að nú að undanförnu hefur það orðið í stöðugt ríkara mæli allt frá síðari hluta sumars, að mikill hluti af landbúnaðarvörum, kjöt, rjómi og smjör hafa verið algerar munaðarvörur, a. m. k. á borðum venjulegs fólks. Og það hefur ekki aðeins reynzt neytendum þungt í skauti, heldur hefur það í raun og veru ógnað líka afkomu og efnahag bændastéttarinnar. Um breytingar á tengslum launa opinberra starfsmanna og verkafólks hefur ekki verið að ræða, nema síður væri. Eina breytingin, sem á því hefur verið gerð frá s. l. vori, var það, að nú eru vísitölubætur greiddar á öll laun, hversu há, sem þau eru. Áður hafði það verið miklum takmörkunum háð, og þeir hæst launuðu þess vegna ekki fengið nákvæmlega sömu kauphækkanir, en þessu var kippt í liðinn af hæstv. ríkisstj. strax eftir samninga almennu félaganna á s. l. vori.

Nú skal það játað, að upp á síðkastið hefur það verið fyrir áhrif ríkisstj., að 4.2%, sem komu til framkvæmda í kaupi 1. sept., hafa ekki verið látin ganga inn í verðlagið. Þetta er góðra gjalda vert, svo langt sem það hefur náð, en það sannar hins vegar í raun og veru, að ríkisstj. og verðlagsyfirvöldin hafa ekki staðið hér í ístaðinu, eins og möguleikar voru á á tímabilinu, þangað til þessi kauphækkun kom til framkvæmda, því að auðvitað er það svo, að hafi það verið mögulegt nú að undanförnu að leggja þessa 4.2% kauphækkun á atvinnurekendur, líka þá, sem framleiða fyrir innlendan markað, þá var það auðvitað ekki síður hægt, meðan kaupið var lægra, þ. e. a. s. strax eftir samningana. Ef það hefði verið gert strax, þótt ekki hefði verið nema að þessum hluta kauphækkunar, sem svaraði 4.2% eða milli þriðjungs og fjórðungs, við skulum segja fjórðungi af kauphækkun, þá væri við talsvert mikið annan vanda að etja, eða a. m. k. þegar gert er ráð fyrir gagnverkunum, þá væri nú við vanda að etja í sambandi við vísitöluna, sem væri 2–3 stigum minni en nú er að fást við, og mundi það gera hátt í það að svara til þess, sem ætlunin er með þessu frv. að skerða almenn launakjör um, þ. e. a. s. ef þetta atriði hefði strax komið til framkvæmda eftir samningana, þá væri raunverulega grundvöllurinn brostinn fyrir því, að kjarasamningunum þyrfti að rifta.

En í upphafi lifði ríkisstj. í þeirri kenningu, að ekkert mætti taka af gróðanum, og beitti sér fyrir því með oddaaðstöðu sinni í verðlagsnefnd að því leyti, sem hún hefur vald á þessum málum, að t. d. olíufélögin, farmskipafélögin og verzlunin héldu ekki að fullu sínum stórfellda gróða frá árinu 1969, heldur væri beinlínis aukið við hann í mörgum tilfellum. Það er sannað mál, að olíuverðið, svo mikilsvert sem það er, bæði fyrir útveginn og líka fyrir mikinn hluta af launþegum beinlínis, gæti verið lægra. Olíufélögin hefðu getað komizt af með verulega lægra verð en þeim hefur verið ákveðið, ef gert hefði verið ráð fyrir því, að þau kæmu aðeins hallalaus út, en skiluðu ekki, eins og þau gerðu á s. l. ári, mjög stórfelldum gróða. Ég ætla ekki að fara að brjóta hér neinn trúnað um afkomu fyrirtækja, en ég hlýt þó að segja það, að þessi gróði var mjög stórfelldur á s. l. ári, og hygg ég, að enginn vefengi það. En allar verðlagsákvarðanir, sem hafa verið teknar varðandi olíufélögin, hafa verið byggðar á því, að afkoman yrði eins á þessu ári, þ. e. a. s. þau héldu áfram að taka sinn stórkostlega og algjörlega óþarfa gróða áfram. Og raunverulega er það sama að segja um farmskipafélögin. En það er kunnugt, að stærsta farmskipafélagið, sem er opinbert fyrirtæki og enga launung hefur á sínum reikningum, græddi nokkuð á annað hundrað millj. á s. l. ári, og önnur farmskipafélög hafa ekki farið frekar varhluta af hagnaðinum.

Eitt af þeim fyrstu málum, sem ríkisstj. og fulltrúar hennar urðu að taka afstöðu til eftir samninga, var verzlunin, hvort kaupsýslan ætti að bera það hækkaða kaupgjald að einhverju leyti eða ekki, sem um hafði verið samið, og þar var mönnum svo brátt, að þetta mál var tekið fyrir í verðlagsnefnd, áður en samningar höfðu verið undirritaðir, því að kaupsýslumenn heimtuðu tryggingu fyrir því, áður en þeir skrifuðu undir samningana, að þeir þyrftu ekki að borga einn einasta eyri af kauphækkununum, heldur yrði almenningur látinn borga þá sjálfur. Og það var látið undan þessu alveg fullkomlega með þeim afleiðingum, að hagur verzlunarinnar var í raun og veru ekki skertur um eitt einasta %-stig í sambandi við kaupið, heldur raunverulega hlutur hennar aukinn mjög verulega, því að eins og menn vita að undanförnu, þá hafa verðhækkanir orðið nokkrar á erlendum innflutningi, sömuleiðis mjög verulega miklar á farmgjöldum, og fleira hefur þar komið til, sem hefur hækkað álagningargrundvöll verzlunarinnar, þannig að aðeins með óbreyttri prósentuálagningu er hlutur hennar betri en áður, og síðan var það, eins og ég segi, fyrir forgöngu ríkisstj. afráðið, að það skyldi hækkuð álagning verzlunarinnar um 12.l% til þess að bera uppi hækkað kaup verzlunarfólksins.

Ég minnist hér á þessi þrjú atriði, vegna þess að ég tel þau vera höfuðatriðin í sambandi við alla afgreiðslu á verðlagsmálum af hálfu verðlagsnefndar á þessu tímabili, frá því að samningarnir voru gerðir. En ég legg þunga áherzlu á það, að með þeirri ákvörðun, að kaupgjaldið 1. sept. kæmi ekki inn í innanlandsverðlagið, þá er það fullkomlega viðurkennt, að það hafi verið illa haldið á málinu frá því, að samningarnir voru gerðir. Og við hefðum við miklu minni vanda og kannske engan vanda, að því leyti, að það hefði þurft að ráðast gegn launakjörum verkafólks, að stríða, ef þetta hefði verið gert strax, en í grg. með frv. er þetta útlistað með ákaflega dularfullum hætti, og ætla ég ekki að gera það að umtalsefni sérstaklega nú, þó að ástæða væri til, eins og reyndar ýmislegt fleira í þessari grg., þar sem ægir saman staðlausum stöfum og ónákvæmni, t. d. er reikningsleg ónákvæmni svo mikil, að 1 stig í launaskatti er áætlað þar 238 millj., en 1½ stig ekki nema 327, og annað og fleira er eftir þessu í þessari grg., og undrar mig sannarlega ekki, að einstakir ráðunautar ríkisstj. taki það gjarnan fyrst fram, þegar þeir ræða um þetta frv., að þeir hafi ekki samið þessa grg. Loks er svo þess að gæta í sambandi við meðferð verðlagsmálanna, að á ýmsum sviðum hafa opinberir aðilar beinlínis gengið fyrir um stórfelldar og miklar hækkanir á vöruverði og þjónustu, og mætti þar t. d. nefna Póst og síma, sjúkrasamlögin, strætisvagna og sitt hvað fleira.

Niðurstaðan af þeirri meðferð, sem viðhöfð hefur verið í sambandi við verðþróunina, frá því að samningarnir voru gerðir, verður sú, að þær áætlanir sem gerðar voru af hálfu stjórnvalda um það bil, sem samningarnir voru gerðir, voru byggðar á þeim grundvelli, að öll kauphækkunin rynni út í verðlagið að fullu og öllu, en þær hafa ekki staðizt. Hækkanirnar hafa orðið meiri en ráð var fyrir gert út frá þessari forsendu. Þetta frv. finnst mér færa heim sanninn um það, að þessa stefnu, að veita kauphækkunum viðstöðulaust og án eiginlega nokkurs eftirlits út í verðlagið, hefur rekið í strand. Jafnvel hæstv. ríkisstj. hefur orðið auðsætt, að þessi stefna hlaut að leiða til stöðvunar í atvinnulífinu, til atvinnuleysis og margvíslegs öngþveitis og vandræða, ef ekki væri með einhverjum hætti spyrnt við fótum. Og þessari niðurstöðu, sem flutningur þessa frv. gefur tilefni til, er ég vissulega alveg sammála.

En ríkisstj. eru ljósar fleiri hættur í þessum efnum. Henni er það ljóst, að við henni sjálfri blasir nokkur veruleg hætta, ef öllum lýðum verður þetta fullljóst núna fyrir kosningar. Og þess vegna er staðið að þessu frv. fyrst og fremst með þeim hætti, að vandanum er ýtt á undan sér um sinn. Engar kerfisbreytingar, sem duga til langframa, eru gerðar í verðmyndunarkerfinu. Hér er aðeins um að ræða stöðvun á skaðvænlegustu afleiðingum þess um stundar sakir. Í kerfinu sjálfu er allt á sínum stað, tilbúið til þess að fara í gang, þegar svokölluðu verðstöðvunartímabili lýkur, og þá jafnvel af meiri hraða og krafti en áður. Og vissulega fer ekki hjá því, að menn minnist nú reynslunnar frá fyrri verðstöðvunum þessarar hæstv. ríkisstj. eða þeirra flokka, sem að henni standa, bæði frá 1959 eða 1967, þegar endirinn á slíkum verðstöðvunartilraunum af hálfu hennar varð sá einn að hrófa upp uppbótakerfi, sem síðan endaði í stórfelldri gengisfellingu.

Það er kannske ekki alveg úr vegi í þessu sambandi að minnast á svokallað verðgæzlufrv., sem sýnt var hér á Alþ. í fyrra, en náði þar að vísu ekki fram að ganga, vegna þess að einn af hæstv. ráðh. ríkisstj. snerist öndverður gegn því hér í þessari hv. d., en hæstv. forsrh. hefur látið það í ljós í sambandi við umr. um þetta frv., m. a. í sjónvarpsviðtali, sem ég hlýddi á og horfði á, að sennilegt væri, að verðgæzlufrv. yrði flutt aftur á þessu þingi og þá í tengslum við verðstöðvun. Ég átti nú eiginlega hálfpartinn von á því, að þegar þetta frv. um verðstöðvun kæmi fram, þá fylgdi þetta sem eins konar fylgifrv., verðgæzlufrv. frá því í fyrra. En það hefur nú ekki orðið. En margt þykir mér nú benda til þess, að engin hugarfarsbreyting hafi átt sér stað varðandi afstöðu til þessa frv. og að það liggi eiginlega í hlutarins eðli, að verði það ekki samþ. nú á þessu þingi, muni núv. stjórnarflokkar a. m. k. taka það upp, ef þeir hafa aðstöðu til eftir kosningar að koma því í framkvæmd, og kynni þá að vera, að það væri vel hægt að gera það bara með brbl. En um þetta vitnar t. d. nýgerð samþykkt kaupmannasamtakanna, að ég held, frekar en sambands heildsalanna, þar sem lögð er áherzla á það, að þegar þessu verðstöðvunartímabili ljúki, fái þeir að ráða öllu um verzlunarálagningu og verðmyndunina, sem tengd er verzluninni.

En svo að ég víki þá beint að efni þessa frv., þá er það helzt þar að segja, að eins og segir í grg. með frv., er tilgangurinn með því fyrst og fremst sá að eyða 7.5%-stigum verðlagsbóta, sem ýmist áttu að koma til framkvæmda núna 1. des. eða síðar á tímabilinu fram að 1. sept. Og þessu takmarki hyggjast þeir, sem að frv. standa, ná með ýmsum krókaleiðum, sem sýnilega er reynt að gera sem allra flóknastar og torskildastar, svo að kjarna aðgerðanna sé leynt, eftir því sem verða má, og almenningur geti sem minnst gert sér ljóst, hver hann raunverulega er. Í meginatriðum má þó segja, að um tvenns konar aðgerðir sé að ræða. Það er í fyrsta lagi bein skerðing á launakjörum, eins og þau voru ákveðin með samningunum 19. júní, og í öðru lagi að um er að ræða framlag úr ríkissjóði, sem samkv. frv. eru 341 millj. kr., sem verja á til aukinna fjölskyldubóta og niðurgreiðslna, og í þessu sambandi álagning sérstaks launaskatts, sem er 327 millj., og allar tölur eru hér miðaðar við ársinnheimtu, eða samtals 668 millj., sem verja eigi á ársgrundvelli til aukningar fjölskyldubóta og niðurgreiðslna. En hin beina skerðing á launakjörunum, eins og þau voru ákveðin með samningunum frá 19. júní, er í fyrsta lagi, að vísitölugrundvellinum, sem þar var gert ráð fyrir, er breytt um rösklega 1 stig vegna áfengis og tóbaks. Í grg. með frv. er gert ráð fyrir, að sú breyting að taka áfengi og tóbak út úr grundvellinum, þýði skerðingu upp á 0.6. Hæstv. fjmrh. lýsir nú yfir, að þetta séu 0.7, og er það aðeins í stíl við aðra nákvæmni, sem viðhöfð er í meðferð talna í sambandi við þetta frv. Og ennfremur kemur hér til hækkun tryggingabóta, sem fyrirsjáanleg er um 30%, á iðgjöldum til almannatrygginga, sem fyrirsjáanleg er um áramót um 0.4%. Hvorugt þetta skal koma inn í vísitölugrundvöllinn, sem samið var um á s. l. vori. Þetta atriði varðandi tóbakið og áfengið hefur nú þegar tekið breytingum, þannig að það er 0.7 stig, og varðandi það síðara er það að segja, að mér þykir vera miklar líkur á því, að iðgjöld muni hækka miklu meira en þarna er gert ráð fyrir. Hér er aðeins gert ráð fyrir hækkun í beinu samhengi við þær hækkanir, sem þegar hafa orðið á bótum trygginganna, ellilífeyri og örorkubótum, en a. m. k. annar stjórnarflokkurinn hefur lýst því yfir, að hann muni beita sér fyrir því, að bætur verði hækkaðar um 20–25% frá næstu áramótum, og ef það yrði gert, er hér auðvitað um næstum því helmingi meiri hækkun að ræða, þannig að bein skerðing vísitölugrundvallarins verður þá orðin nokkuð á annað stig, þegar þetta hvort tveggja er komið til framkvæmda.

Hér skiptir það auðvitað í þessu sambandi engu máli, hvaða skoðun menn hafi á því, hvort áfengi og tóbak eigi að vera inni í vísitölugrundvellinum. Það, sem skiptir máli í þessu sambandi, er það, eins og hv. þm. Helgi Bergs sagði hér áðan, að launamenn tapa nákvæmlega jafnmiklu á þessari breytingu eins og einhverri annarri breytingu. Það hefði ekki skipt neinu máli í þessu sambandi, hvort tekin væri út einhver nauðsynjavara, launþegar hefðu tapað jafnmiklu í launum sínum fyrir það, því að auðvitað fá þeir eins bæturnar, sem ekki neyta áfengis eða tóbaks og eiga kröfu á þeim samkv. gerðum samningum. Um þetta atriði er að öðru leyti að segja það, að verkalýðsfélögin og verkalýðssamtökin hafa aldrei skoðað þetta vísitölukerfi sem neina heilaga bók, sem ekki mætti breyta stafkrók í og hafa alltaf verið reiðubúin til þess að skoða það við samningsgerðir, hvernig vísitalan skyldi vera, og það er engan veginn þeirra skoðun, að þar sé allt eins og bezt verður á kosið. En þegar einu sinni er búið að semja um ákveðinn grundvöll, þá vill verkalýðshreyfingin hins vegar, að það standi alveg eins og önnur atriði, sem hún semur um, og sem hafa áhrif á kaupgjald og kjör hennar skjólstæðinga.

Varðandi þennan þátt frv., sem lýtur að beinum skerðingum á launum samkv. samningum, er svo í öðru lagi um það að ræða, að viðmiðunartíma verðlagsbótanna er breytt, þ. e. a. s. á þann veg, að þær vörur, sem niðurgreiddar eru úr ríkissjóði, ber að miða við 1. des., 1. marz o. s. frv., þ. e. a. s. daginn, sem breytingar geta komið til greina, en ekki 1. næsta mánaðar á undan. Og þetta er auðvitað gert í alveg ákveðnum tilgangi, sem sé þeim að firra launagreiðendur því að greiða umsamin laun núna 1. des. En það er augljóst, að þá ættu launþegar kröfu á samkv. samningunum rösklega 4% hækkun, og skiptir það í því efni engu máli, hvort einhverjar niðurgreiðslur verða auknar 1. des., eins og hæstv. fjmrh. var að boða. Eftir samningunum ber launþegum kaup samkv. verðlaginu eins og það var 1. nóv., og hvorki hæstv. fjmrh. né nokkur annar getur breytt því með nokkrum hætti öðrum en þeim, sem að nokkru leyti er farið inn á í frv., að veita fjölskyldubætur yfir nóvembermánuð. Með þeim hætti er hægt að ná aftur fyrir sig í verðlagið og lækka kaupið, eins og það ákveðst eftir samningum 1. des. En auknar bætur, hvort sem þær eru 1½ stig eða 2 stig, skipta í þessu sambandi engu máli, þannig að það er alveg sama, hvaða tilfæringum er beitt í því efni, eftir samningum, eins og þeir voru undirritaðir 19. júní, þá eiga launþegar rétt á rösklega 4% kauphækkun núna 1. des. Í þessu sambandi verða menn auðvitað að gæta að því, að vísitalan getur verkað á tvo vegu. Hún er mælikvarði á kaupið, og sá mælikvarði getur bæði hækkað og lækkað eftir atvikum. Í því tilfelli, að við búum við stöðugt hækkandi verðlag, þá verða launþegar fyrir nokkrum skaða vegna þess biðtíma, sem þá skapast, eins og hér hefur verið bent á. En sé hins vegar um það að ræða, að verðlækkanir væru hugsanlegar, þá hafa þeir af þessu nokkurn hagnað og eiga að sjálfsögðu fullan rétt á að njóta hans, vegna þess að reynslan hefur nú yfirleitt verið sú, að við höfum búið við verðhækkanir, en ekki verðlækkanir. En komi það fyrir, virðist það vera nokkuð hart, að launþegar séu látnir gjalda þess, þegar við það er miðað, að þeir hafa venjulega orðið að bíða eftir bótunum.

Svo er loks gert ráð fyrir því í frv. og beinlínis tekið fram, að það sé skylt að fella niður með öllu 2 vísitölustig, að sjálfsögðu frá og með gildistöku l., en þau öðlast þegar gildi, eins og segir í 8. gr., en í 1. mgr. 5. gr. segir:

„Verðlagsuppbót, sem svarar til tveggja stiga hækkunar kaupgreiðsluvísitölu, skal þó eigi koma til framkvæmda fyrr en 1. sept. 1971.“

Ég held, að það sé alveg ástæðulaust fyrir hæstv. fjmrh. að vera að gera ríkisstj. nokkuð upp um þetta efni og fullyrða það, að hér sé aðeins um heimild að ræða. Það er alveg augljóst hverjum, sem læs er, að hér er ekki um neitt heimildarákvæði að ræða, heldur algera ákvörðun. Nú ber að sjálfsögðu að fagna því, að hæstv. ríkisstj. hefur þegar hafið undanhald, eftir að henni eru ljós mótmæli verkalýðssamtakanna gegn þessu frv., og hún hyggst nú ekki láta þetta atriði skerðingarinnar koma til framkvæmda 1. des., heldur einhvern tíma síðar, sem ekki er þó að neinu leyti ljóst, hvenær á að verða, hvort það á að verða 1. marz eða 1. júní. Það er nú ekki beint sennilegt, að það verði 1. júní. Þá er skammt til kosninga, og ætli hún fari þá að lækka kaupið um 2 stig. Mér þykir það ekki beint trúlegt, þannig að líklegast er, að þetta ákvæði eigi að koma inn 1. marz. Þetta er nokkur bót, svo langt sem það nær, en ég held, að þeir, sem við lögin eiga að búa, geri þá kröfu að fá þetta alveg ákveðið fram, annaðhvort hvaða mánaðardag þetta á að koma inn, þannig að menn viti raunverulega, hvað þeir eru að samþykkja, eða þá, fallið sé að fullu og öllu frá því, og breytir það málinu að sjálfsögðu nokkuð, þó að ég telji, að það sé ekki nein grundvallarbreyting.

Varðandi síðari atriði, ef við sleppum í bili ræðum um skerðingarákvæði frv., þ. e. a. s. auknar greiðslur úr ríkissjóði og launaskatt, sem varið er til niðurgreiðslna, þá vil ég segja það um fjölskyldubæturnar og niðurgreiðslurnar, að ég tel þær á ýmsan hátt eðlilega, æskilega og sjálfsagða ráðstöfun, og þær mundu út fyrir sig einar ekki sæta andstöðu almennings eða verkalýðshreyfingarinnar. Þó vil ég taka það skýrt fram, að það er auðsætt, að ef launþegarnir eru skoðaðir sem ein heild, þá er hér um beinan skaða að ræða fyrir launþegastéttina sem heild, skaða, sem svarar a. m. k. eftir þeim útreikningum, sem gerðir eru í aths. við frv., um 1½ stigi, þó að það sé ekki skaði miðað við vísitölugrundvöll. Og þetta byggist á því, að varðandi niðurgreiðslurnar og fjölskyldubæturnar, eins og að þeim er staðið, þá hefur hvert stig í vísitölunni gildi upp á 167 millj., en raungildi þess, sem felst í launaskattinum, þ. e. a. s. það raunverulega gildi, sem vísitalan hefur í kaupi til launþeganna í heild, er 238 millj., þannig að miðað við ársgrundvöll lækka fjölskyldubætur og niðurgreiðslur, sem eru um 858 millj. samkv. útreikningi, sem gerður er í aths., um 5.1 stig, en ef gildi launaskattsins yrði sett inn í dæmið, sem er auðvitað það rétta, ef við skoðum launþegastéttina sem eina hagsmunaheild órjúfanlega, þá ætti það aðeins að lækka launin um 3.6 stig, og mismunurinn er, eins og ég sagði áðan, rétt nákvæmlega 1½ stig. En það breytir því ekki, að miðað við ástandið, eins og það er, hygg ég, að þetta hefði ekki sætt neinu ámæli eða neinni andstöðu nema kannske síður væri, jafnvel þó að launastéttin sem heild yrði að taka á sig þarna raunverulega nokkrar byrðar, þ. e. a. s. eins og frv. er að frátalinni þeirri breytingu, sem er á framkvæmdinni, sem hæstv. fjmrh. boðaði hér, þá er það auðsætt, að launafólkið ber a. m. k. raunverulega kaupskerðingu upp á 4.5% frá borði vegna ákvæða frv., eitthvað minna á fyrsta tímabilinu, samkv. þeirri breytingu, sem nú hefur verið boðuð, en að lokum yrði niðurstaðan þessi. Og hér er um það að ræða, þau 2 vísitölustig, sem eru felld niður, sem eiga að koma til framkvæmda einhvern tíma á tímabilinu fram að 1. sept., og ennfremur þá skerðingu grundvallarins, sem leiðir af breytingunum um áfengi og tóbak, sem er á annað stig, og svo sá óbeini skaði, sem felst fyrir launastéttirnar í niðurgreiðslunum.

Hæstv. ríkisstj. klifar mjög á því, og það var margendurtekið hér í stuttri framsöguræðu hæstv. fjmrh., að mikil vá væri fyrir dyrum, ef ekkert væri að gert, og í öllum viðmiðunum, sem gerðar eru, er þetta lagt til grundvallar, annars vegar engar aðgerðir, hins vegar þessar aðgerðir, þ. e. a. s. þetta nákvæmlega kemur til greina og ekkert annað. Það er kjörorðið, sem sífellt er endurtekið í sambandi við allar umr. um þetta frv. Mér finnst þetta svara til þess, að ríkisstj. hæstv. lýsti því yfir, að hún hafi engar skyldur gagnvart efnahags-, verðlags- eða kjaramálum, ef til grundvallar aðgerðunum er ekki lögð mjög tilfinnanleg kaupskerðing þeirra lægst launuðu og rifting frjálsra verkfallssamninga.

Um þetta frv. hefur verið fjallað að undanförnu, bæði af atvinnurekendum og af verkalýðshreyfingunni, og afstaða atvinnurekenda er auðsæ. Ef hún er ekki beinlínis fagnandi, þá er hún a. m. k. mjög jákvæð, enda er það í raun og veru sízt að undra, því að byrði þeirra, ef byrði skyldi kalla í sambandi við eyðingu þessara 7.5 vísitölustiga, er vissulega ákaflega léttbær. Hins vegar liggur afstaða verkalýðshreyfingarinnar nú einnig ljós fyrir. Ályktanir um frv. hafa verið gerðar af miðstjórn Alþýðusambandsins, stjórn Dagsbrúnar, stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, stjórn Hlífar í Hafnarfirði, stjórn Einingar í Eyjafirði og sjálfsagt fleiri félögum, og allar ályktanirnar eru mjög á einn veg, þ. e. a. s. eindregið er mótmælt í fyrsta lagi launaskerðingunni, sem frv. hefur í för með sér, og hins vegar þeirri árás, sem í frv. felst, á samningsrétt verkalýðsfélaganna. Þessi afstaða hefur af talsmönnum ríkisstj. á opinberum vettvangi verið kölluð ábyrgðarleysi, sprottið af persónulegri og pólitískri valdastreitu einstakra forustumanna. Ég held, að í þessum fullyrðingum sé nú heldur grunnt kafað, og það megi ekki gleymast fyrir þeim, sem þannig tala, að ég held, að um þetta hafi engar pólitískar deilur verið innan þessara samtaka, a. m. k. er mér það vel kunnugt, að í miðstjórn Alþýðusambandsins var ályktunin gerð með öllum atkv., ekki aðeins shlj. atkv., heldur öllum atkv., og þar á meðal voru a. m. k. tveir fulltrúar úr miðstjórninni, sem eru ákveðnir fylgismenn og forustumenn í Alþfl. Ég minni líka á ummæli formanns Iðju í Reykjavík, sem er einn af foringjum sjálfstæðismanna hér í höfuðborginni, þar sem hann tekur ekki grynnra í árinni en aðrir um fordæmingu sína á meginatriðum þessa frv. Auðvitað eru meginástæður andstöðunnar gegn þessu frv. í fyrsta lagi kaupskerðingarákvæði mitt í mesta góðæri og velferðartíma þjóðarbúsins og í öðru lagi, og það jafnvel frekar en það fyrsta, er það skoðun þeirra, að með samþykkt frv. sé frjáls samningsréttur þverbrotinn og allri gerð gildra kjarasamninga raskað. Í þriðja lagi er það almenn skoðun í verkalýðshreyfingunni, að það sé unnt á grundvelli gerðra samninga að leysa þann vanda, sem nú blasir við, a. m. k. til bráðabirgða og jafnvel til nokkurrar frambúðar, án þess að þeir séu skertir. Og í fjórða lagi er ástæðan sú, að verkalýðshreyfingin telur, að riftun samninga með þessum hætti, sem hér er gert, leiði í öllu falli, hvað sem öllum kjaraskerðingum liði og deilum um tölur og talnaleiki, til óvissu og stöðugra deilna á vinnumarkaðinum. Ég held, að þessi afstaða geti ekki komið hæstv. ríkisstj. á óvart. Ég held, að henni sé jafnljóst og öllum öðrum, sem fylgdust með kjarasamningunum á s. l. vori, að þeir samningar hefðu aldrei verið gerðir í því formi, sem þeir voru, ef krafan um fulla vísitölu hefði ekki náð fram að ganga með þeim hætti, sem um var samið. Þetta var óumdeilanlega sjálfur grundvöllur samninganna, og mér er meira að segja ekki grunlaust um það, að hæstv. ríkisstj. hafi átt verulegan þátt í því á bak við tjöldin, að við þessari kröfu var orðið af atvinnurekendum, eftir að deilan hafði staðið heldur lengi, óþægilega lengi að hennar dómi. Var vinnuveitendum kannske sagt, að síðar kæmu ráð til þess að svíkja þennan höfuðgrundvöll samninganna? Ég hef alveg fulla ástæðu til þess að spyrja um það.

Í viðræðum fulltrúa Alþýðusambandsins og ríkisstj. var það alltaf skýrt tekið fram af okkur, sem í þeim viðræðum stóðum, að við teldum, að það kæmi ekki til nokkurra greina, að lögþvinganir um breytingar á samningunum yrðu þolaðar. Og í ályktun Alþýðusambandsins frá 11. okt. er það skýrt tekið fram, að það sé skilyrði fyrir áframhaldandi viðræðum, að yfirlýsing sé gefin um það, að engum slíkum lögþvingunum sé beitt. En þrátt fyrir þetta lætur hæstv. ríkisstj. nú og talsmenn hennar eins og hún hafi hvorki heyrt né séð viðvaranir, sem henni voru vissulega gefnar í tæka tíð um þetta efni, og lætur eins og sér kæmi mjög á óvart sú andstaða, sem meginefni frv. sætir af hálfu samtakanna. Um þetta vil ég aðeins segja, að verkalýðshreyfingin hefur alveg fullkomlega gegnt þeirri skyldu sinni að vara ríkisstj. við, og ekki veldur sá, er varar, heldur frekar sá, sem allar viðvaranir hefur að engu. Ég játa það, að fyrir mér er það í raun og veru miklu stærra atriði heldur en nokkur %-stig í beinum launum, hvort við búum hér í landi við frjálsan samningsrétt eða ekki, því að ég tel, að frjáls samningsréttur sé í raun og veru einn af hyrningarsteinunum undir lýðræði okkar og verði ekki frá því skilinn, enda er það svo, að fátt skilur í rauninni greinilegar á milli einræðisríkja, hvort sem þau eru rauð eða brún, og lýðfrjálsra ríkja heldur en meðferð þessa réttar. Annars vegar búa launamenn og almenningur við laun, sem eru ákveðin í hæstu stöðvum stjórnvalda, hins vegar við meira eða minna ófullkomið atvinnulýðræði, sem hefur það sem fyrsta boðorð, að launamenn séu sjálfir ákvörðunaraðilar um kaup sitt og kjör, og ég vil bæta því við, að í þjóðfélagi okkar er yfirleitt ríkjandi virðing fyrir öllum fjármálalegum gerðum, hvers konar samningum um fjármálaleg efni, og það er yfirleitt hafið yfir allan vafa, að slíkum gerðum verði ekki rift með lagasetningu, enda er hér komið nærri einmitt því grundvallaratriði mannréttinda samkv. stjskr. okkar, þar sem er verndun eignarréttarins, og ætti sá réttur vissulega einnig að ná til þeirrar eignar, sem venjulega er sú eina, sem vinnandi menn eiga að nokkru marki, og það er vinnuaflið. Og það er einkennilegt, kannske einkennileg örlög, að jafnvel í þessu frv., sem gengur svo mjög á þennan rétt, sem raun er á, þá örlar á þessari virðingu, þ. e. a. s. í ákvæðum 6. gr. frv. um húsaleigusamninga og í aths. um þá samninga á bls. 10 í aths. En þar segir, að þar sem það hafi verið og sé mikil og algeng venja, að húsaleiga sé reiknuð eftir vísitölu byggingarkostnaðar eða öðrum vísitöluútreikningi, þá þyki rétt að ákveða það, að húsaleiga megi hækka samkv. þessari vísitölu eins og hún er í nóvembermánuði, þ. e. a. s. til loka þess tíma, sem einhver hækkunartilefni eru í sambandi við þessa vísitölu. Í raun og veru er þetta viðurkenning á því, að vísitöluákvæðin varðandi þessa samninga skuli standa, og eins og ég sagði kemur þarna auðvitað fram sú almenna virðing, sem menn hafa hér á landi fyrir gerðum samningum um fjármálaleg efni manna í milli.

Varðandi hins vegar samningsréttinn er allt afsakað hér með fordæmum, að þau séu svo og svo mörg, sem séu algerlega hliðstæð. Ég held nú raunar, að það séu engin fordæmi, sem séu alveg hliðstæð ákvæðum þessa frv. En séu einhver fordæmi fyrir þessari skerðingu á samningsréttinum, þá vil ég segja, að það eru vond fordæmi, sem okkur ber að forðast að líkja eftir. En hér kemur það til, að það er einnig fordæmi fyrir því gagnstæða, þ. e. a. s. fyrir því, að kjarasamningar séu úr gildi, ef grundvelli þeirra er raskað, og þessi fordæmi eru meira að segja til úr tíð núv. hæstv. ríkisstj., og það er hún, sem hefur staðið að því að gefa slík fordæmi. Í lögum um ráðstafanir vegna breytingar gengis íslenzkrar krónu frá 19. des. 1968 var ákveðin veruleg röskun á samningum um hlutaskipti sjómanna, sem fólst í því, að 27% afla voru tekin af óskiptu til útgerðarinnar. Í þessum lögum segir í ákvæðum til bráðabirgða:

„Kjarasamningum milli útvegsmanna og sjómanna, sem samkv. ákvæðum þeirra var ætlað að gilda til ársloka 1969, er heimilt að segja upp án fyrirvara eftir gildistöku þessara laga.“

Hér í þessum lögum var það vissulega fullkomlega viðurkennt, að það væri eðlilegt og réttmætt, að að lögþvinguðum grundvallarbreytingum á kjarasamningum gerðum fengju þeir, sem breytingin tók til, tækifæri til þess að gera nýjan samning, að sjómenn í þessu tilviki væru óbundnir af samningi um kjör sín, samningi, sem hafði verið breytt með löggjöf. Þetta er í eðli sínu ákaflega líkt því, sem hér er að gerast. Hlutaskiptin eru grundvöllur undir kjarasamningum sjómanna, ekki með alveg óskyldum hætti og verðlagsbæturnar eru grundvöllur að samningum okkar, sem erum í Alþýðusambandi Íslands. Og þarna er sem sagt tekinn af allur vafi um það, að slík grundvallarbreyting, sem þarna átti sér stað á kjörum sjómanna, hlyti að leiða til þess, að samningar væru þá úr gildi, þ. e. a. s. það væri heimilt að segja þeim upp án nokkurs fyrirvara, þegar l. tóku gildi. Og ég hefði talið það, að það hefði verið algert lágmark venjulegs siðgæðis í skiptum við verkalýðshreyfinguna, að eitthvert slíkt ákvæði hefði verið í þessum l., eins og lögfest var í hliðstæðu tilfelli í des. 1968 með þessum l. um breytingar á gengi íslenzkrar krónu, hvað varðaði sjómannastéttina. Ég vil ekkert fullyrða um stjórnlagalegt gildi löggjafar eins og þeirrar, sem hér er á ferðinni, löggjafar um riftun fjármálalegrar gerðar, sem í alla staði var staðið löglega að, og ég ætla mér ekki hér að upphefja neina þrætu um það efni, enda er ég ekki til þess fallinn. En hitt er mér alveg ljóst, að venjulegt lagaskyn og réttlætiskennd, sem flestum er að meira eða minna leyti í blóð borin, segir óbreyttum og ólögfróðum manni, að enginn siðferðilegur réttur geti staðið að baki lögþvingunum, sem bindur þolendur slíkrar löggjafar, eftir að grundvöllurinn, sem samningar voru byggðir á, er farinn veg allrar veraldar fyrir tilverknað þriðja aðila. Og ef þann siðferðilega rétt skortir, sem með einhverjum hætti skírskotar til réttlætiskenndar, er næsta öruggt, að löggjöfin kemur fyrir ekki, hún verður bókstafurinn einber, þegar út í lifið er komið. Fyrir því er líka nokkuð mikil reynsla, að löggjöf um kjaramál stenzt illa hér á landi, og er það raunar auðskilið í landi, þar sem sú grundvallarhugsun er ríkjandi, að þau mál eigi að útkljá með frjálsri samningsgerð. Og dæmin um þetta eru deginum ljósari, svo að ég ætla ekki að fara að tefja mál mitt með því að rifja þau upp.

Svo aðeins vildi ég minnast hér á eitt atriði, sem er alveg nýtt af nálinni og snertir þetta. Það er varðandi brbl. í farmannadeilunni, sem sett voru á s. l. sumri. Með l. var skipaður gerðardómur, sem átti að kveða upp dóm um kaup og kjör yfirmanna á grundvelli þessara brbl. Og þessi dómur kvað upp sinn úrskurð og úrskurðaði yfirmönnum á farskipum mjög ríflega það, sem almennt verkafólk hafði fengið í launahækkunum. En farmenn undu ekki þeim málalokum og sögðu upp skipsrúmum sínum og hófu óformlegt verkfall hinn 1. okt. s. l. Treystust atvinnurekendur nú til þess að hunza þetta óformlega og í raun og veru ólöglega verkfall, eða gripu þeir til aðgerða eins og þeirra t. d. að siga lögreglunni á farmennina eða sækja þá að lögum? Nei, því fór víðs fjarri. Atvinnurekendur settust að samningaborðinu með farmönnum, eins og ekkert hefði í skorizt og eins og verkfallið hefði borið að fyllilega samkv. vinnulöggjöfinni, og endirinn varð sá, að það var samið um tvisvar til þrisvar sinnum meiri kauphækkun en almennu verkalýðsfélögin hlutu og miklu meiri kauphækkanir en fallizt hefði verið á af hendi farmannanna, þegar deilan var á sínu upphaflega stigi, áður en til nokkurrar lögþvingunar kom. Og það er næsta öruggt að þau mál hefðu skilað sér með þeim hætti, að farskipafélögin hefðu getað sloppið með miklu minni kauphækkun en þau í reyndinni gerðu, ef aldrei hefði verið beitt neinum lögþvingunum í sambandi við það mál. Ef þessi deila, sem er alveg ný af nálinni, sýnir það ekki og sannar, hversu vonlaust verk er að skipa kjaramálum hér á landi með lögum án samráðs og samvinnu við verkalýðssamtökin, þá veit ég ekki, hvað þarf til þess að sanna slíkt fyrir núv. hæstv. ríkisstj., sem hér stendur að verki. Er það ekki næsta líklegt, eins og málum er nú komið, að hér fari líkt um þessi lög, og mun þá vissulega flestum finnast, að verr sé af stað farið en heima setið?

Það atvik gerðist, þegar n. þessarar hv. d. og Nd. voru að ræða um þetta mál og athuga það lítillega saman nú fyrir helgina, þá sagði einn aðalráðunautur hæstv. ríkisstj., forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar, þegar skerðingarákvæði frv. bar á góma, að hér væri ekki fyrst og fremst um fjárhagsatriði að ræða, heldur, að mér skildist, a. m. k. þá almennu, sálfræðilegu nauðsyn, að allir tækju á sig eitthvað í sambandi við þessar aðgerðir. Ég held, að það sé alltaf að koma betur og betur í ljós, að af hálfu hæstv. ríkisstj. er ekki hér fyrst og fremst um fjárhagsatriði að ræða, að það sé rétt, sem Alþýðusambandið hefur haldið fram, að það væri engin fjármálaleg nauðsyn á því að leysa málið með þeim hætti, sem hér hefur verið gert, og það sé í raun og veru viðurkennt af ríkisstj. og ekki sízt þykir mér þetta líklegt, eftir að hæstv. fjmrh. hafði talað hér í dag og lýst þeirri alveg nýgerðri ætlan ríkisstj., að fresta a. m. k. aðalkaupskerðingunni um þrjá mánuði. Þetta verður líka nokkuð ljóst af því, að nú blasir við fjárlagagerð, þar sem tekjur og gjöld verða nálægt 11 milljarðar kr., og það sýnist mér vera auðsætt, að upphæðin, sem þarf til þess að ná saman endum, til þess að geta eytt þessum 7.5 vísitölustigum af verðlagsbótum án breytinga á samningum atvinnurekenda og verkalýðssamtaka, getur ekki ráðið neinum örlögum eða úrslitum. Þau 3–4 stig, eða hvað það nú er nákvæmlega, sem erfitt er að henda reiður á, sem tekin eru af launþegum, ef frv. verður að l., eru auðvitað ekkert verulegt fjárhagsatriði, eins og sérfræðingurinn viðurkenndi, heldur er þar fyrst og fremst um að ræða prófraun á það, hvort verkalýðshreyfingin skilur þessi kjaraskerðingaráform þeim rétta skilningi, sem hæstv. ríkisstj. örugglega hefur sjálf, þ. e. a. s. að hér sé ekki í raun og veru um fjárhagsatriði að ræða, heldur fyrst og fremst sé verið að prófa sig áfram með það að venja launafólk og þá sérstaklega verkamenn við þá aðferð að skipa launakjörum þeirra að meira eða minna leyti með harðri hendi löggjafarvalds og ríkisvalds og svipta þá sjálfsákvörðunarrétti í þeim málum, sem þeim eru mikilsverðust. Ég ætla ekki að spá hér miklu um það, hvort slík áform takast eða ekki, en ég segi það aðeins, að mjög er þá brugðið verkalýðshreyfingunni, ef hún sér ekki í sjónhendingu alla dýrð þess réttlætis gagnvart launamönnum í þessu landi, sem þetta frv. færði, þegar það á að bera upp á sama daginn, að því er ætlað er, að þeir eiga að láta af hendi um 4% af umsömdum launum og ríkisstj. færir öllu embættismannakerfinu og sjálfri sér um leið margfaldar launahækkanir við þær, sem verkafólk hlaut við samningsgerð sína við atvinnurekendur á s. l. sumri. Myndin af því, sem nú er fram undan í launamálum, er ekki að fullu dregin, nema þetta sé haft í huga, og þá líka það, að það er allur almenningur, sem er hinn raunverulegi launagreiðandi embættismannanna, sem taka sjálfir laun sín, en hann verður sjálfur að taka laun sín úr hendi atvinnurekendastéttarinnar.