16.11.1970
Efri deild: 16. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (98)

101. mál, atvinnuöryggi

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Mig langar til að koma hér á framfæri nokkrum hugleiðingum, fyrst um efni þessa frv., en síðan um það, hvaða afleiðingar lögfesting vissra ákvæða þess kann að hafa. Ég get nú farið fljótt yfir sögu, því að þeir hv. alþm., sem hér hafa talað á undan mér núna í dag, hafa rakið efnið. En í stuttu máli er efni frv. það að gera ráðstafanir til þess, að kaupgreiðsluvísitalan geti til 31. ágúst 1971 verið hin sama og hún var 1. sept. s. l. eða 4.21 %. Til þess þarf tvennt. Það er annars vegar að koma í veg fyrir verðhækkanir frá gildistökudegi l., 1. nóv. s. l., út tímabilið, og í öðru lagi þarf að eyða þeim hækkunum, sem orðið hafa frá því að kaupgreiðsluvísitalan var síðast reiknuð. Þessu takmarki skal samkv. frv. náð með eftirfarandi hætti: Í fyrsta lagi skal banna með l. hækkun verðs á hvers konar vöru frá því, sem það var 1. nóv. s. l., og það er 1. gr. frv., sem fjallar um þetta. Ennfremur er bannað að hækka seida þjónustu og framlag í hvaða formi, sem er, þar á meðal frá ríki, sveitarfélögum og stofnunum þeirra.

Um verðlagsmál gilda nú ákvæði l. nr. 54 frá 1960. Þar segir í 3. gr., að verðlagsnefnd geti ákveðið hámarksverð á vöru og verðmæti, þ. á m. hámark álagningar, umboðslauna og annarrar þjónustu, er máli skiptir um verðlag í landinu. Þessi heimild hefur þegar verið notuð. Hún var notuð óháð flutningi þessa frv. Öll hækkun á því, sem l. taka til, hefur verið bönnuð frá 1. nóv. s. l. Það er vissulega rétt, að hluti verðmyndunar í landinu fellur ekki undir verksvið verðlagsnefndar. Þar er aðallega um að ræða innlendan iðnaðarvarning, sem á í samkeppni við innfluttar vörur, og því má segja, að heimild vanti til þess að banna hækkanir á þessum vörum. Ástæðan til þess, að þær eru undanþegnar afskiptum verðlagsnefndar, er vafalaust sú, að samkeppninni erlendis frá er ætlað að veita þeim nauðsynlegt aðhald. En trú manna á æðri stöðum á þetta aðhald er ekki meiri en svo, að hér er farið fram á heimildir til að banna allar hækkanir, einnig á þessum vörum, og það er auðvitað rétt, að að svo miklu leyti vantar lagaákvæðin. En það eru undanþágur frá þessari verðstöðvun, sem talað er um í 1. gr. Í sömu gr. er hlutaðeigandi yfirvöldum gefin heimild til þess að fallast á hækkanir þrátt fyrir bannið, og í 7. gr. er það sett á vald ríkisstj. að veita sveitarfélögum leyfi til að hækka útsvör og aðstöðugjöld, svo og ýmisleg opinber gjöld önnur, þannig að í heild virðist þessi gr. ekki boða verulegar breytingar frá þeim verðhækkunarhömlum, sem unnt er að beita með stoð í gildandi l. og án þess að ný lagaákvæði þurfi til. Engu að síður hafa allir, sem hér hafa þessi mál rætt, tjáð sig sammála því, að þessi þáttur frv. sé a. m. k. skaðlaus og í smáatriðum jafnvel til bóta, og því er engin andstaða gegn honum hér á Alþingi.

Um það, hvernig eigi að koma í veg fyrir, að vísitöluhækkun, sem þegar er orðin, komi til útborgunar, er það að segja, að þetta er ráðgert með tvennu móti. Annars vegar á að hækka fjölskyldubætur með öllum börnum innan 16 ára aldurs upp í 8 þús. kr. og eyða þannig, eins og það heitir á máli frv., í.55 %-stigum. Á næsta ári verða samkv. þeirri áætlun, sem útreikningar þessir byggjast á, 73 þús. börn undir 16 ára aldri, 32 þús. fyrstu börn og 41 þús. síðari börn og heildarbætur því 8 þús. sinnum 73 þús. eða 584 millj. kr. á ársgrundvelli, en sú aukning, sem hér um ræðir, þ. e. hækkun fjölskyldubóta í 10 mánuði, 180 millj. kr.

Fjölskyldubætur eru nú greiddar samkvæmt ákvæðum 15. gr. l. nr. 40 frá 1963. Þar eru þær ákveðnar 3000 kr. á ári með hverju barni. Mér finnst rétt að vekja athygli á því og átta sig á því, sem ég hef ekki heyrt gert hér, að þetta ár, 1963, var vísitala vöru og þjónustu miðað við 100 árið 1945 496 stig. Þessi sama vísitala var í ágúst s. l. reiknuð með sama hætti 1237 stig. Þetta þýðir það, að til þess að halda sama hlutfalli milli fjölskyldubóta og vísitölu, ættu fjölskyldubætur að hækka frá því, sem þær voru 1963, um 160% bara til þess að halda í horfinu frá 1963. Þær ættu m. ö. o. að vera í ágúst s. l. miðað við þá vísitölu, sem ég áður nefndi, 7500 kr. með hverju barni til þess að standa í stað að verðgildi. Það má taka annan samanburð. Þegar viðreisnarstefnan hófst 1960, var ákveðið, að vísitölubætur með öllum börnum skyldu vera 2600 kr. á ári. Reiknað á sama hátt og ég var hér að gera miðað við vísitölu vöru og þjónustu, eins og ég hygg, að ég hafi miðað við, þá ættu þessar fjölskyldubætur nú án þess að taka nokkurn þátt í fyrirhugaðri verðstöðvun, bara einfaldlega til þess að halda í við verðlagið, að vera 9100 kr. Nú eiga fjölskyldubætur samkv. þessu frv. að fara í 8000 kr. Það er út af fyrir sig ágætt. Það eru allir sammála því, en það er engin bylting, sem þarna er á ferðinni. Það er alveg sanngjarnt, að menn átti sig á því. Hér er því í raun og veru ekki um annað að ræða en það að laga fjölskyldubæturnar að þeirri verðlagsþróun, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Þessi breyting gerir rúmlega að vega á móti þeirri breytingu, sem orðið hefur síðan 1963, en ekki á móti þeirri breytingu, sem orðið hefur á 10 ára tímabilinu frá 1960. Það neitar því enginn, að hækkun fjölskyldubóta út af fyrir sig sé góð hjálp til barnmargra fjölskyldna, og það er ráðstöfun, sem dregur örlítið úr því misrétti, sem hinn hái söluskattur skapar, en hann verða þeir að reiða hæstan, sem flesta munna hafa að metta. Ég hygg því, að allir hv. alþm. séu sammála þeirri ráðstöfun að hækka fjölskyldubæturnar og það beri að gera alveg án tillits til annarra ákvæða þess frv., sem hér um ræðir, þar sem það sé sanngirnismál.

Þetta var önnur leiðin til að eyða þessum vísitölustigum. Hin leiðin er að eyða áhrifum orðinna verðhækkana með því að auka niðurgreiðslur. Með því að verja 480 millj. kr. á gildistíma l. á að lækka vísitöluna um 3.55 %-stig. Um þetta atriði, aukningu niðurgreiðslna, fjalla engin ákvæði í frv., menn athugi það, enda er það raunar óþarfi, þar sem í 28. gr. l. um efnahagsmál nr. 4 frá 1960 er heimild fyrir hendi til þess að halda niðri verði á vöru og þjónustu. Það þarf því ekki ný lagaákvæði til þess að auka niðurgreiðslur vöruverðs. Það er alveg ljóst. Þessi heimild hefur verið notuð að einhverju leyti allan gildistíma þessara l., en það er athyglisvert, að þrátt fyrir þá miklu kosti, sem samkv. aths. frv. eru nú fylgjandi þessari leið, er það þó fyrst og fremst á tímum verðstöðvananna 1959 og 1966–1967, sem þessi ríkisstj. hefur farið hana að marki, eða undanfarandi ríkisstj., sem fylgt hafa sömu stefnu, væri kannske réttara að segja. En það á vafalaust alltaf við, þetta, sem segir á bls. 7 í aths. Niðurgreiðsla búvara verkar þegar í stað til að koma hagsbótum á framfæri við launþega og aðra neytendur. Neyzla þessara vara mun aukast við niðurgreiðslur þeirra, og hafa nýlegar rannsóknir varpað ljósi á sambandið milli verðstöðvana og neyzlumagns. Þetta á vafalaust alltaf við, og samkv. þessum rökstuðningi væri vafalaust alltaf rétt að greiða niður þessar búvörur. Á hinn bóginn segir í aths., að draga muni úr útflutningi og sparast útflutningsuppbætur, og annars staðar í aths. er þessi sparnaður áætlaður, og þar kemur það fram, að af þessum 480 millj. kr., sem auknar niðurgreiðslur eru taldar kosta ríkissjóð, koma hvorki meira né minna en um 100 millj. kr. aldrei til útborgunar. Þær sparast ríkissjóði sem sé í útflutningsuppbótum á tímabilinu. Þeim mun einkennilegra er, að þetta þjóðráð skuli aldrei notað, nema þegar gripið er til svonefndrar verðstöðvunar á fjögurra ára fresti og þá ævinlega í sambandi við það, að fólkið í landinu á að velja þjóðarskútunni nýja yfirmenn mjög bráðlega. Síðast þegar þetta var gert 1966–1967, heppnaðist þessi leikur í skákinni ágætlega. Stjórnin hélt meiri hl., og almenningur borgaði brúsann. Síðan svokallaðri verðstöðvun lauk 1967, hefur verðbólgan vaxið um 67% miðað við vísitölu vöru og þjónustu. Það þurfti m. a. hvorki meira né minna en tvær gengisfellingar til þess að jafna metin. Verð erlends gjaldeyris hækkaði yfir 100% á einu ári. Nú er umboð það, sem svokölluð verðstöðvun 1967 veitti ríkisstj., að renna út. Nú á að reyna sömu brögðin aftur. Ætli það hljóti ekki að vera, að allir sjái, hvað hér er að gerast? Ég trúi því. En niðurfærsluleiðin er líklega samt sem áður það, sem helzt kemur til greina til þess að fikra sig út úr þeim ógöngum, sem Íslendingar eru komnir í fyrir slælega ríkisforustu. Framsóknarmenn hafa þegar bent á ýmis atriði, sem til greina komi, svo sem niðurfellingu á söluskatti á brýnustu nauðsynjavörum, en því aðeins getur niðurfærsluleið heppnazt, að þar sé raunverulega ráðizt að rótum meinsemdarinnar. Yfirborðskennt kák og sjónhverfingar, eins og hér var sett á svið 1967 og aftur er reynt núna, gera aðeins illt verra, og sannast sagna ættum við Íslendingar að vera orðnir reynslunni ríkari í þessum efnum. Þessar niðurgreiðslur á vöruverði hafa aðeins að óverulegum hluta með afgreiðslu þessa frv. að gera. Það er aðeins að því takmarkaða leyti, sem fjáröflun samkvæmt þessu frv. á að standa undir niðurgreiðslunum. En flestir eru víst sammála um það, að það geti verið skynsamlegt að lægja dýrtíðaröldurnar með auknum niðurgreiðslum, enda verði það tóm, sem gefst þá, notað til raunverulegra verðbólguvarna.

Þriðja atriðið, sem nota á til þess að ná fram umræddu jafnvægi, er að breyta útreikningi vísitölunnar annars vegar um 0.6 stig, eins og segir í aths., sem nú eru raunar orðin 0.7 stig í dag, hvað sem þau kunna að verða á morgun, vegna fram kominnar hækkunar á útsöluverði tóbaks og áfengis og hins vegar um 0.4%-stig vegna fyrirhugaðrar hækkunar á iðgjaldi til almannatrygginga. Ríkisstj. sjálf beitti sér fyrir því, að frá ársbyrjun 1968 var tekinn í notkun nýr vísitölugrundvöllur, talsvert frábrugðinn þeim eldri, sem ég skal ekki eyða tíma í að fara að rekja hér, í hverju lá. En samkv. þessum nýja grundvelli, sem ríkisstj. hafði forgöngu um að taka í notkun, voru tóbaksvörur taldar hafa áhrif á vísitöluna að 2.68 hundraðshlutum, áfengiskaup höfðu áhrif á vísitöluna að 1.67 hundraðshlutum og iðgjald til almannatrygginga að 1.37 hundraðshlutum, eða þessir þrír liðir samtals áttu að hafa áhrif á vísitöluna að 5.90 hundraðshlutum.

Nú er það auðvitað ljóst, að vísitölugrundvöllur er aðhæfður mælikvarði á mörgum gjaldaliðum. Hann er byggður á meðaltalsneyzlu þess úrtaks, sem rannsakað var, en óháður því í einstökum tilvikum, hvort menn hafa tiltekin útgjöld í stærri eða minni mæli. Um þennan vísitölugrundvöll var samið. Hann er lagður til grundvallar. Eftir breytingum á honum á allt kaupgjald að breytast samkv. þeim samningum, sem gerðir voru í vor. En það, sem hér er gert, er það, að ríkisstj. breytir þessum grundvelli einhliða. Hún ákveður, að 1/16 hluti dýrtíðarmælisins sé gerður óvirkur, látinn hætta að mæla. Þær hækkanir, sem þessi hluti átti að sýna, koma bara einfaldlega ekki lengur fram. Þetta er auðvitað alveg fráleitt, eins og hér hefur raunar verið áður bent á, og það veit enginn, hvar þetta endar. Hvaða lið kýs ríkisstj. að taka út úr vísitölumælinum næst? Ekki skal ég svara því. En ef ísinn er brotinn, er eftirleikurinn auðveldur. Það er alveg augljóst, að hér er tekin úr sambandi þýðingarmikil hækkun, sem kemur við alla, þegar skoðuð eru almannatryggingagjöldin. Það er boðuð á iðgjöldum til almannatrygginga hækkun frá 1. jan. n. k., sem nemi um 30% eftir því sem upplýst var á sameiginlegum fundi fjhn. beggja deilda Alþ. um daginn. Þessa 30% hækkun á iðgjaldi til almannatrygginga verða allir að greiða, sem orðnir eru 16 ára, án tillits til allra annarra hluta. Samkv. kjarasamningum frá í vor eiga launþegar að fá þessa hækkun bætta með vísitölu á launin. En ríkisstj. segir nú: „Nei, þessa hækkun skuluð þið bera bótalaust.“ Og það er alveg sama, sem gildir um hækkun á áfengi og tóbaki. Ef það var rétt 1968 að taka þau útgjöld inn í vísitölugrundvöllinn, þá er það líka rétt í dag að taka tillit til þessarar hækkunar. Annað er fitl við vísitölugrundvöllinn, sem fær ekki staðizt. Ég skal nú taka það fram hér til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að mér vitanlega hefur enginn maður haft á móti því sem slíkur, að tóbak og áfengi væri hækkað í verði, og ég held því síður en svo fram, að það sé of hátt enn, enda er það staðreynd, að hækkun á þessum vörum hefur síður en svo orðið meiri og í mörgum tilfellum lægri en hækkun á brýnustu lífsnauðsynjum, í hlutfallstölum skoðað.

Og það er auðvitað lítil sanngirni í því, þó að ég viðurkenni það, að við verðlagningu þessa varnings sé á ýmislegt að líta, sem ég skal ekki fara út í nánar hér. En ég legg áherzlu á það, að það er ósanngjarnt að ætlast til þess, að launþegar beri bótalaust einhliða breytingar ríkisstj. á þeirri vísitölu, sem verkalýðsfélögin í landinu hafa staðið í löngu og hörðu verkfalli til þess að fá viðurkennda sem ákvarðandi atriði um launagreiðslur til handa meðlimum sínum. Það getur vel verið, að útgjöld þeirra, sem reykja og drekka, eigi ekki að hafa áhrif á framfærslukostnaðinn í landinu, hvernig hann er reiknaður út, en þá er bara að semja um það að taka þessa liði út úr vísitölunni, og eftir því, sem fram kom hér áðan hjá hv. 4. þm. Norðurl. e., sem er einn af forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar, verður vafalaust engin fyrirstaða á því í næstu samningum að breyta vísitölugrundvellinum og taka t. d. þennan lið út úr. En það verður bara að gera það fyrir samninga, þannig að menn viti, að hverju þeir ganga. Í aths. frv. er svo að skilja, að það sé rökstuðningur fyrir því að taka áfengis- og tóbakshækkunina undan vísitöluhækkunum, að þetta sé gert í svo göfugum tilgangi, það sé m. ö. o. gert til þess beinlínis að lækka vöruverðið á nauðsynjavörum, skulum við nú segja. Ég minnist þess, að ég hef hlýtt á hæstv. fjmrh. oftar en einu sinni, að ég held, og þó alveg sérstaklega á landsþingi Sambands íslenzkra sveitarfélaga ræða um þá skattheimtu, sem hann nefndi eyrnamarkaða skatta, og mér heyrðist á honum þá, að hann væri svona mátulega hrifinn af því, að haldið yrði áfram á þeirri braut, að sérhver gjaldaliður hefði sína tilteknu skattheimtu. Ég segi, að hækkun á áfengi og tóbaki sé í þessu sambandi sem öllu öðru aukning ríkistekna. Það er svo annað mál, til hvers ríkistekjunum er varið, og það á að hætta þessum sífelldu eyrnamörkunum á sköttunum. Ég er alveg sammála hæstv. fjmrh. í því. Því miður finnst mér hann nú ekki framkvæma þá löngun sína rétt vel með þessu frv., þar sem bæði þessi hækkun og nýr launaskattur eru einmitt sérstaklega tiltekin í ákveðnu augnamiði. En ég undirstrika það, að það á ekkert að hafa um það að segja, til hvers þessum tekjum er varið, það réttlætir það ekki að breyta vísitölugrundvellinum, þeim, sem um var samið. Það er allt annars eðlis.

Ég vil þá leyfa mér með örfáum orðum að nefna það atriði 4. gr. frv., sem fjallar um reikningsdaga kaupgreiðsluvísitölunnar, en breytingin, sem af þeim ákvæðum leiðir, er sú, að vísitala, sem bar að reikna 1. nóv. s. l., verður ekki reiknuð, heldur verður hún reiknuð frá 1. des. n. k., og hún tekur þá tillit til þeirra breytinga, sem orðið hafa í nóv. Þær breytingar, sem orðið hafa í nóv., eru auðvitað fyrst og fremst þær verðlækkanir, sem verða fyrir opinberar aðgerðir, eins og t. d. sú verðlækkun á smjöri, sem tilkynnt hefur verið, þar sem kg á að lækka um rúmar 60 kr., eða því sem næst þriðjung. Mönnum ber ekki alveg saman í þessum umr. um það, hvaða tjón launþegar hafi af þessum breytingum, en það er þó augljóst, að það hlýtur að vera talsvert, þar sem þær lagfæringar, sem gerðar eru eftir 1. nóv., eiga ekki að takast til greina eftir gildandi samningum, þegar verið er að reikna þá hækkun, sem orðin er á vísitölu vegna verðlagsbreytinga, frá því að vísitala var síðast útreiknuð. Ég skal ekki hætta mér út í neinar ágizkanir um það, hvaða tölur hér séu í veði, en þetta er augljóst óhagræði fyrir launþega. Því hygg ég, að verði tæpast á móti mælt, enda líta þeir þannig til. Þetta tjón launþega getur endurtekið sig. Samkv. frv. er sama heimild til að rétta vísitöluna af eftir á á síðari útreikningstímum. Og ég hygg, að menn efist nú ekki almennt um, að sú heimild verði notuð á þann hátt, sem hagkvæmt verður fyrir ríkissjóðinn. Það mun hæstv. fjmrh. áreiðanlega sjá um. Það láir honum það enginn. Það er hans hlutverk að gæta hagsmuna ríkisins, en þeim mun varhugaverðari eru lagaákvæði í þessum dúr, sem meiri líkur eru á því, að þau verði samvizkusamlega framkvæmd af hálfu ríkisvaldsins. Þess vegna er það hv. þm. að setja undir þann leka.

Þá vil ég loks koma að því atriði, sem mestum deilum hefur valdið. Þau vísitölustig, sem orðið hafa á tímabilinu og ráðgert er að eyða, eru um 7.5 %-stig. Þegar búið er að framkvæma allt, sem ég hef nefnt, hækka fjölskyldubætur, auka niðurgreiðslur, breyta vísitölugrundvelli, breyta reikningsdegi vísitölunnar, þá teljast samt vera eftir 2 %-stig, sem einnig þarf að sjá fyrir. Það er samkv. frv. gert á þann einfalda hátt að ákveða, að þau falli bara hreinlega niður, þau komi ekki til útborgunar, launþegarnir skulu bera þau, bæta þeim á sig til viðbótar við hitt. Fyrir þessi stig eiga þeir ekkert að fá. Það eru blekkingar, sem því miður sjást allt of víða í málgögnum, að niðurgreiðslur og fjölskyldubætur eigi að koma á móti þessum vísitölustigum. Það er alrangt. Þær mæta öðrum, eins og margsinnis hefur verið sýnt fram á í þessum umr. og ég var seinast að greina frá hér áðan. Niðurgreiðslur og fjölskyldubætur mæta 5.10 vísitölustigum, öðrum en þessum 2. Nú hefur hæstv. fjmrh. tilkynnt það, að um helgina hafi hæstv. ríkisstj. komizt að þeirri niðurstöðu, að ríkissjóður geti tekið þessi 2 stig á sig, a. m. k. eitthvað ótiltekið fram í framtíðina. Það ber að fagna þessu undanhaldi vissulega, því að þetta er sá liður frv., sem mestri mótspyrnu hefur mætt. En þeim, sem hafa tekið alvarlega, svona upp að vissu marki a. m. k., útreikningana í aths. með frv. og raunverulega trúa því, að það væri um leið verið að gera grein fyrir því, hvernig ætti að greiða þau vísitölustig niður, sem um er rætt, verður á að spyrja: „Hvað gerist, þegar ríkissjóður er búinn að greiða þessi 2 vísitölustig niður og búinn með þær tekjur, sem hann ætlar til þess? Hvað á þá að taka við?“ Hæstv. fjmrh. sagði, ef ég tók rétt eftir, að sú breyting, sem ætti að gera hér, væri þannig, að hlutur ríkissjóðs kæmi fyrst til greina. Það skil ég svo, að ríkissjóður muni fyrst nota sitt fjármagn til þess að greiða niður vísitöluna, svo verði að skoða málið upp á nýtt. Ég fullyrði ekki, að þessar tölur séu réttar, en nú skulum við segja, að það stæði svo af sér, að næst þegar vísitala verður reiknuð eftir 3 mánuði, hittist nákvæmlega þannig á, að ríkissjóður væri búinn með allar þær tekjur, sem hann samkv. þessu frv. hefur til þess að mæta hækkununum á öllu tímabilinu. Hvað á þá að gera? Mér finnst, að þm. verði að fá að vita þetta og að launþegar verði að fá að vita þetta. Á þá að afla nýrra tekna til þess að halda áfram að greiða niður vísitöluna, þannig að til engrar kauplækkunar komi? Það getur vel verið. Á að skerða hlut launþega um 2 vísitölustig, eða verður hann skertur meira? Alla vega verður að breyta ákvæðum þessa frv. með hliðsjón af þeirri tilkynningu, sem hæstv. fjmrh. gaf, og þetta mál er vitanlega ekki hægt að ræða, fyrir mig eða okkur, fyrr en við sjáum, hvernig sú breyting verður orðuð. Mér þætti vænt um, ef hæstv. fjmrh. sæi sér fært að gefa okkur einhverjar skýringar á þessu. Um þetta atriði hafa orðið mestu umr. hér á Alþ. og utan Alþ., enda hafa þessi ákvæði frv. orðið til þess, að miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur sent ríkisstj. sérstaka orðsendingu, þar sem mótmælt er skerðingu á launum samkv. samningum verkalýðsfélaganna frá 19. júní s. l. og talið, eins og þar segir, að með þessum hætti sé grundvelli samninganna frá 19. júní s. l. og síðar kippt brott og þeir því úr gildi fallnir, hvað öll kaupgjaldsákvæði áhrærir, verði þessi frv.-ákvæði lögfest. Þetta eru alvarleg tíðindi, er menn verða að gefa gaum, og ég sé það nú, sem betur fer, að hæstv. ríkisstj. eða a. m. k. hæstv. fjmrh. gefur þessu gaum þrátt fyrir þær stóru og margorðu ræður, sem aðrir hæstv. ráðh. hafa séð sóma sinn í að halda til andsvara svona ályktana frá mönnum úti í bæ, eins og ég hygg, að þeir hafi verið kallaðir í hv. Nd. Það er vel, að hæstv. ríkisstj. ætlar, þó að seint sé, að sjá sig um hönd, að einhverju leyti a. m. k., að draga úr þeirri ögrun, sem launþegasamtökunum var sýnd með þessu ákvæði frv. Þetta bréf, sem ég vitnaði til, frá miðstjórn Alþýðusambands Íslands, var samþ. með öllum atkv. viðstaddra miðstjórnarmanna, þar á meðal stuðningsmanna hæstv. ríkisstj. í röðum verkalýðsforingjanna, og þessir verkalýðsforingjar tilheyra báðum stjórnarflokkunum. Þeir hafa og áréttað þessar skoðanir sínar í blaðaviðtölum.

Mig langar til þess að segja þessu næst örfá orð um tekjuöflunina samkv. frv. Þessar niðurfærsluráðstafanir, sem ég hef drepið á, eiga að kosta samkv. aths. frv. þetta: Fjölskyldubætur í 10 mánuði, 180 millj. kr. Niðurgreiðslur á tímanum samkv. aths. frv., — það verður kannske eitthvað meira núna, mér heyrist það, það er verið að gefa það í skyn, — 480 millj. króna eða samtals 660 millj. kr. á gildistíma l. Í aths. frv. er líka greint frá því, hvernig ráðgert er að afla fjár til þessara ráðstafana. Tekjurnar eru þessar: Launaskattur, 245 millj., hækkun áfengis og tóbaks, 143 millj., og framlag ríkissjóðs, 256 millj. eða samtals 644 millj., og það er sjálfsagt minni háttar atriði, sem ekki ber að súta svo mikið í aths. með lagafrv. sem þessu, að hér ber 16 millj. á milli tekna og gjalda, svoleiðis smámuni verðum við nú ekki í vandræðum með. Ég vil aðeins segja um þetta það, sem ég raunar sagði áðan, að það hafa engar aths. verið uppi, og ég á ekki von á, að þær verði uppi, um það að hækka verðið á tóbakinu og áfenginu. Það kemur þessu frv. raunar ekkert við, ríkisstj. hefur heimild til þess að verðleggja þessar vörur, eins og henni sýnist, hér er einkasala á áfengi og tóbaki, og það er raunar þegar búið að gera þetta, og það er ekki nema í mjög lauslegum tengslum við frv. Það er heldur ekkert óeðlilegt við það og ekkert nema gott um það að segja, að 150 millj. kr., sem voru geymdar samkv. frv. til fjárl. fyrir 1971 til þess að mæta vísitöluhækkunum, sem verða áttu á árinu, að þær gætu gengið til annarra hluta, þær geti gengið í hinn endann á dæminu, það er til þess að halda vísitölunni niðri, það er eðlilegt. Þannig er það eðlilegt, að útflutningsuppbætur sparast, ef áætlun um aukna innanlandsneyzlu á búvöru stenzt. Það er ekkert ólíklegt. Þessir sérfræðingar halda, að það sparist 100 millj. kr. á gildistíma l. fyrir það, að útflutningsuppbætur falli niður, vegna þess að við þurfum að borða meira af innlendri búvöru, af því að verðið getur lækkað. Þetta er gott. Auðvitað á að búa að okkar fremur en að borga með því, til þess að útlendingar geti fengið það á undirverði. Það merkilega er hvorki 150 millj. né 100 millj., heldur það, að síðan fjárlagafrv. var lagt fram þann 10. okt. eða fyrir rúmum mánuði, þá hefur það komið í ljós, að auðið mun að ná drýgri tekjum en reiknað er með í fjárlagafrv. án þess að auka skattbyrðar og jafnvel þótt þær séu ákveðnar léttari en nú. Hér er ekki um neina áætlun að ræða, hér er ekki um neina ágizkun að ræða, hér er ekki neinn vonarpeningur. Hér er beinlínis sagt, að það muni auðið að ná meiri tekjum á næsta ári en í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir. Þessi tekjuauki er áætlaður 56 millj. kr. Það eru 256 millj., sem ríkissjóður ætlar að leggja í olíuna að frádregnum 150 millj. kr. sparnaði á vísitölugreiðslum og 100 millj. á lækkunum útflutningsbóta. Þetta eru góð tíðindi, en það er vissulega alls óvíst, að öll kurl séu komin til grafar. Í aths. segir, að þessi hlið málsins verði til meðferðar í sambandi við afgreiðslu fjárlaga fyrir 1971. Málið er ekki fullkannað. Vonandi kemur þá í ljós, að ríkissjóður sé svo vel stæður, að hann geti borið þær greiðslur, sem hér um teflir, án þess að leggja á nýja skatta. En þetta sýnir, svo að ekki verður um villzt, það, sem framsóknarmenn hafa haldið fram og lagt áherzlu á, að það væri réttara að gera dæmið upp í heild, þegar séð verður, hver endanleg niðurstaða á fjárlagaafgreiðslunni verður.

En það er ekki leið hæstv. ríkisstj., heldur vill hún nú þegar láta lögleiða 1½% viðbótarlaunaskatt, sem lagður verði á sama stofn, sem l. nr. 14 frá 1965 taka til. Út af fyrir sig er sjálfsagt ekkert athugavert við það, að vinnuveitendur láti eitthvað á móti, þegar vísitölugreiðslum að upphæð nálægt 1060 millj. kr., sem þeir hafa samið um að greiða launþegum, er létt af þeim. Það er þess vegna ekki fjárhæðin, sem lögð er á vinnuveitendur, sem veldur því, að við framsóknarmenn fellum okkur ekki við launaskattinn, enda höfum við þá í huga, að vinnuveitendur hafa með bréfi til fjhn. Nd. fallizt á greiðslu helmings hans. Við teljum hins vegar réttara, að skipa málum þannig, að vinnuveitendum verði gert að greiða svipaða fjárhæð og launaskattinum nemur í vísitöluformi, enda minnumst við þá þess, að óháð þessum skatti er búið að verja um 400 millj. kr. til lækkunar vísitölu í formi fjölskyldubóta og niðurgreiðslna, samkv. frv. og aths. þess, og afla fjár til þess með öðrum hætti, með hækkun á áfengi og tóbaki og með fjármunum, sem að hluta til losna til ráðstöfunar vegna þeirra ráðstafana, sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Þessi niðurgreiðsla sparar atvinnurekstrinum einhvers staðar nálægt 3 vísitölustigum. Ég hef fundið þetta út með einföldum prósentureikningi, ég játa, að það má deila um hann, en það skeikar aldrei miklu, og ég skal rökstyðja það, ef þurfa þykir. Ástæðan fyrir því, að ég leggst gegn launaskattinum, er fyrst og fremst sú, að ég viðurkenni ekki þörf nýrrar skattlagningar, fyrr en dæmið er gert upp. Eyrnamarkaðir skattar eru þegar orðnir allt of margir. Launaskattur er í mörgum tilfellum óheppileg tekjuöflunarleið, sem kemur mjög illa við þá, sem hafa tekjur af útseldri vinnu, og fleira má að honum finna, t. d. það, sem L. Í. Ú. hefur ritað Alþ. um, þ. e. greiðsla skattsins af aflahlut sjómanna. Að öllu athuguðu þá sýnist mér því réttara á þessu stigi, að halda þessum hluta vísitölunnar, en sleppa launaskattinum. Það bíði svo athugunar í sambandi við fjárlagaafgreiðslu, hvort ekki reynist unnt að auka niðurgreiðslur enn frá því, sem hér er ráðgert, í sambandi við það, sem áður segir um endurskoðun tekjubálksins í ljósi nýrra upplýsinga, og þær breytingar á framkvæmd frv., sem hæstv. fjmrh. hefur nú boðað, að sé vilji ríkisstj. Ég vona, að það komi í ljós, þegar dæmið er gert upp, að hagur ríkissjóðs sé þannig, að hann geti létt af atvinnurekstrinum þeim útgjöldum, sem af umræddri vísitöluhækkun leiðir, a. m. k. þeim hluta, sem þeir telja sig ekki geta borið. Sannarlega væri það ánægjulegt, ef hægt væri að hlúa þannig að atvinnurekstri landsmanna og treysta atvinnuöryggið, en það má hins vegar ekki gerast á kostnað launþeganna í landinu með þeim hætti, sem hér er lagt til í frv. og forvígismenn þeirra samtaka líta svo alvarlegum augum, sem raun ber vitni og hér var verið að lýsa síðast fyrir nokkrum mínútum.

Að síðustu skal ég svo reyna að gera grein fyrir því, hvaða afleiðingar það kann að hafa fyrir vinnufriðinn og sambúð stéttanna í landinu, að þetta frv. fái lagagildi. Menn hafa viljað velta vöngum yfir því, hvort sá skilningur miðstjórnar Alþýðusambands Íslands, að lögfesting frv. kollvarpi grundvelli samninganna frá því í vor, fengi staðizt gagnvart þeim dómstóli, félagsdómi, sem mál þetta mundi heyra undir, ef til kæmi. Ég hef leitað álits viðurkenndra lögfræðinga á þessu atriði. Þeir hafa verið tregir til svars. Þeir hafa ekki viljað kveða upp dóm um þetta atriði, og það virðist því a. m. k. ekki of mikið sagt, að hér sé álitamál á ferðinni. Þeir lögfræðingar, sem ég hef rætt við um þetta, hafa ekki viljað kveða upp þann úrskurð a. m. k., að verkalýðsfélögin hlytu að tapa slíku máli, það er þess vegna álitamál, vafaatriði. En í rauninni er það e. t. v. ekkert aðalatriði. Aðalatriðið er hitt, að sá skilningur er ríkjandi meðal forustumanna, bæði í Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og þeim verkalýðsfélögum, sem hér hefur verið vitnað til í umr., að ákvæðin gangi í berhögg við það, sem um var samið. Ég skal ekkert segja, hvaða áhrif yfirlýsing hæstv. fjmrh. um breytingar á frv. kann að hafa á þennan skilning verkalýðsfélaganna. Ég hygg þó, að þau telji þá breytingu ekki fullnægjandi. Í fyrsta lagi vegna þess, að eftir sem áður er vísitölugrundvellinum breytt, og í öðru lagi þá verður ekki séð, að svo stöddu a. m. k., nema sú skerðing, sem þessi samtök hafa mest haft við að athuga, komi til framkvæmda, þó að síðar verði. En þetta álit verkalýðsfélaganna þýðir m. a. það, að þau verða tregari til að gera kjarasamningana, það þykir mér líklegt, til lengri tíma. Það hefur oft verið kvartað um það hér og vafalaust með réttu, að eitt það erfiðasta í sambúð vinnuveitenda og verkafólks sé það, hversu samningar gilda yfirleitt stuttan tíma, þannig að í rauninni má segja, að það séu alltaf einhverjir samningar lausir, sé alltaf einhver stétt, sem þarf að sækja rétt sinn jafnvel með verkföllum, til ómælds tjóns fyrir sjálfa sig og þjóðarheildina. Þetta er þeim mönnum, sem við þessi mál fást báðum megin við samningaborðið, vitanlega alveg ljóst, og þeir hafa sýnt þennan skilning sinn í verki t. d. í vor með því að gera tilraun til þess að lengja samningstímann. Samningarnir, sem gerðir voru í vor, giltu til hálfs annars árs, ef ég man rétt, lengur a. m. k. en tíðkazt hefur um nokkurt skeið, með örfáum undantekningum þó. En það er augljóst, að slíkar aðgerðir, sem hér um ræðir, torvelda eða hindra áframhald þessarar þróunar, og ég tek undir það með hv. 4. þm. Norðurl. e., að það er ólíklegt, að samningar hefðu tekizt í vor í óbreyttu formi, ef það hefði þá legið fyrir, að skerða skyldi verðlagsuppbót launþega með einhliða stórfelldum ráðstöfunum, eins og þeim, sem hér eru ráðgerðar, og það gildir jafnt um þau vísitölustig, sem kunna að verða felld niður á tímabilinu, og þau, sem reiknuð eru af launþegunum með vafasömum aðferðum.

Einhverjir stuðningsmanna stjórnarinnar og frv. hafa viljað rökstyðja réttmæti þessara ráðstafana með því, að það sé kaupmáttur launanna, sem máli skiptir, en ekki það, hvort verðlagsuppbót sé hærri eða lægri. En kaupmáttur er hlutfallið milli vísitölu tímakaups og vísitölu neyzluvöruverðlags, eins og þetta er á hverjum tíma. Það má vissulega færa þetta sjónarmið til sanns vegar. Og það er sjálfsagt að athuga þetta dálítið nánar. Áður en sá samanburður er gerður, verður þó að geta þess, að reynsla okkar Íslendinga í því að tosa þennan kaupmátt upp hefur verið ákaflega dapurleg á undanförnum árum. Ég hef hér töflu, þar sem reiknað hefur verið út, að frá 1945 hefur aðeins í örfáum undantekningartilfellum þessi kaupmáttur komizt yfir hundrað, en langflest ár hefur hann verið undir 100 og stundum langt fyrir neðan 100. En 100 var hann auðvitað settur fyrsta árið, sem reikningurinn tekur til, eða 1945. Á sama tíma sem kaupmáttur hefur aukizt mjög hjá öðrum þjóðum og það þeim þjóðum, sem við berum okkur oftast saman við og eigum kannske að bera okkur saman við, eru skyldastar okkur og með svipaðar þjóðfélagsaðstæður, höfum við staðið í stað. Það væri því í fyllsta máta eðlileg krafa vinnandi fólks, að hér yrði ekki aðeins haldið í horfinu, heldur sótt eitthvað í átt til þess, sem gerzt hefur með öðrum þjóðum, t. d. s. l. áratug. Og hvenær ætti að vera betra tækifæri til þess að rétta af þennan kaupmátt en einmitt núna, þegar framleiðsluvörur okkar eru seldar við hærra verði en við höfum áður kynnzt? Pundið í freðfiskblokkinni í Bandaríkjunum selst á 36 cent, annað verðlag er mjög eftir því, og aflabrögðin hafa verið góð. Reynslan kennir okkur, að í viðskiptalífi íslenzku þjóðarinnar skiptast á skin og skúrir. Við erum núna ofarlega á öldunni, kannske á toppnum, ég veit það ekki, ég vona ekki, en ef við getum ekki lagað til núna í þessum málum, þá er hætt við, að sú lagfæring kunni að dragast. Og jafnvel þótt áframhald verði á góðærinu, þá er nauðsynlegt að glata ekki þeirri lagfæringu, sem tókst í vor, því að hún er samkv. þeim tölum, sem hér hafa verið fluttar, lítið meiri, ef nokkuð meiri en sú lækkun kaupmáttar, sem átti sér stað undanfarin tvö ár þar á undan, 1968 og 1969, þannig að í aðalatriðum, hygg ég, að rétt sé að lagfæring kaupsins í vor hafi dugað til þess að vega upp skerðingar undanfarandi tveggja ára, kannske eitthvað örlítið betur, ég vil ekki slá því föstu, að svo geti ekki verið. En kaupmáttinn frá því í vor þarf að verja og það er spurningin um þennan kaupmátt, sem ræður því, hvort sumir hv. stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. telja sig geta fylgt þessu frv. eða ekki. Þessar tölur liggja enn ekki fyrir. Vísitala, sem reikna átti 1. nóv., lá ekki fyrir fyrr en þá í dag, að hún liggur fyrir sem leyndarmál, við megum ekki vita, hver hún er ennþá. Það er búið að reikna hana, en samkv. því, sem hæstv. fjmrh. sagði, þá getum við þó farið nærri um hana, því að ég held ég hafi tekið þannig eftir, að hann teldi hækkunina hafa orðið hálfu %-stigi minni en frv.-ákvæðin gera ráð fyrir, svo þá er þetta nú einfaldur frádráttur, sem ég skal láta þm. reikna hvern fyrir sig.

En fleira þarf að vita en þetta eitt, til þess að geta gert þetta dæmi upp. Og ég leyfði mér það þann 12. þ. m. að skrifa Hagstofunni svo hljóðandi bréf, sem ég er með hér afrit af.

„Ég undirritaður, sem á sæti í fjhn. Ed. Alþ., óska upplýsinga Hagstofunnar um eftirfarandi:

Hver hefði kaupmáttur launa orðið 1. des. 1970, a. ef ekkert af ráðstöfunum þeim, sem um ræðir í stjórnarfrv. um verðstöðvun, kæmi til framkvæmda,

b. ef lagafrv. yrði samþ. óbreytt?

Þar sem mál þetta kemur líklega til afskipta fjhn. n. k. mánudag, væri æskilegt, að umbeðnar upplýsingar gætu legið fyrir þann dag.“

En það var nú ekki unnt, og hagstofustjóri útskýrði það fyrir mér, að hann gæti ekki í dag látið þennan samanburð í té, vegna þess, sem hæstv. fjmrh. gat um, að vísitalan er svo nýlega reiknuð og eftir er að staðfesta hana á þar til bærum stað. Og ég skal þess vegna láta allar bollaleggingar um kaupmáttinn og áhrif þessara ákvæða á hann bíða betri tíma, enda er náttúrlega augljóst, að þau ráð, sem ríkisstj. komu í hug yfir helgina, draga auðvitað verulega úr þeirri skerðingu kaupmáttarins, sem samkv. frv. hefði ella orðið. Ekki er ég nú að segja það, að þessi upplýsingabeiðni hafi neitt með það að gera, en staðreynd er það engu að síður, að dæmið er breytt frá því, að ég setti fsp. fram. Samt er gott að vita það, hvaða breyting verður á kaupmætti tímakaupsins við það, að frv.-ákvæðin taka gildi, jafnvel þó að þeim sé breytt á þann veg, sem hæstv. fjmrh. hefur lýst, en ég skal á þessu stigi láta aðeins nægja að segja þetta: Ég vona að það gefist tækifæri til þess að ræða þessar upplýsingar hér, áður en málið fer frá hv. deild. Ég læt nægja að segja það nú, að ef um lækkun á kaupmættinum er að ræða vegna þessara ráðstafana, þá sýnist mér augljóst, að skilningur verkalýðsfélaganna sé réttur. Þá er búið að raska grundvelli þeirra samninga, sem gerðir voru í vor, líka út frá því sjónarmiði, að kaupmátturinn sé það, sem mestu máli skiptir. Ég held, að það væri hyggilegast fyrir hæstv. ríkisstj., og ég vildi nú leyfa mér að mega beina því heilræði til hæstv. ráðh., sem viðstaddir eru, að draga út úr frv. þau ákvæði, sem hníga að því að skerða vísitöluuppbót launþega, ekki bara að tilkynna það, að þau skuli ekki notuð 1. des., heldur draga það bara hreinlega út úr frv. og sjá svo til, hvað kemur út úr fjárlagadæminu, og athuga þá, hvort ekki sé hægt að standa undir þessu dæmi þennan mjög svo takmarkaða tíma, sem verðstöðvuninni hvort eð er er ætlað að gilda. Það er ekki um þá fjárhæð að ræða hér, það er ég sannfærður um, að hún skipti sköpum um afgreiðslu fjárlaga, enda kannske ekki fjárhæðir, sem mestu máli skipta í þessu sambandi. Það er miklu fremur hér um að ræða leið stríðs eða friðar, og ég held, að ríkisstj. Jóhanns Hafstein ætti fremur að láta það verða sitt fyrsta verk að auka samheldni hinna stríðandi aðila á vinnumarkaðinum heldur en að blása í glæður þess elds, sem fyrr en varir getur orðið henni gersamlega ofviða að slökkva. Ég sé ekki, að hún búi yfir þeim slökkvitækjum, sem mikið dugi í því báli, sem af þessu getur orðið.

Ég skal svo, herra forseti, ljúka máli mínu að þessu sinni með eindreginni ósk um það, að hæstv. Ed. beri gæfu til þess að afstýra því óhappaverki að stofna vinnufriðnum í landinu í hættu. Það er enn tækifæri til að breyta frv. þannig, að verðstöðvun megi verða án þess að ráðizt sé á þá kaupsamninga, sem gerðir voru í vor. Það stormahlé, sem þannig myndaðist, ber svo skýlaust að nota til raunhæfra niðurfærsluráðstafana, sem væru varanlegar ráðstafanir til lækningar verðbólgumeinsemdarinnar.