01.11.1971
Efri deild: 8. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

11. mál, stöðugt verðlag

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég stend hér ekki upp til að andmæla þessu frv. á einn eða annan veg. Ég hygg, að það sé sannmæli, sem hæstv. forsrh. sagði hér áðan, að um frv. sjálft er ekki deilt. Hins vegar stendur yfir vinnudeila í landinu og nú er liðinn rúmur mánuður frá því, að samningar runnu út, og það hefur vitnazt frá þessum viðræðum, að um tvö stór atriði er þar deilt.

En bæði þessi atriði eru með nokkuð ljósum hætti í málefnasamningi hæstv. núverandi ríkisstj. eða stjórnarsáttmálanum, og ég vildi þess vegna koma fsp. hér að, áður en hæstv. forsrh. tekur aftur til máls. Hvað líður afskiptum ríkisstj. af vinnutímastyttingar- eða vinnuvikustyttingarmálinu og lengingu orlofsins?