02.02.1972
Neðri deild: 37. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1370 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)
11. mál, stöðugt verðlag
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Í sambandi við meðferð þessa máls, sem í sjálfu sér er enginn ágreiningur um, eins og hæstv. forsrh. sagði, langar mig til þess að beina til hans fáeinum fsp.
Þetta frv. er í dagskrá kallað stöðugt verðlag. Það er hins vegar kunnara en frá þurfi að segja, að á Íslandi ríkir nú í dag ekki stöðugt verðlag. Það hafa orðið mjög verulegar verðhækkanir á undanförnum vikum. Umtalsverðastar eru þær verðhækkanir, sem urðu á öllum búvörum öðrum en mjólk og kartöflum um s.l. áramót, auk þess sem t.d. má nefna, að bifreiðatryggingar hafa hækkað, þannig að bifreiðaeigendur verða nú að bera tjón, sem nemur 7500 kr., án þess að tryggingaiðgjöld lækki eða vísitala hækki af þeim sökum. Fleiri dæmi væri auðvitað hægt að nefna um verðhækkanir, sem orðið hafa, en umtalsverðastar eru þó verðhækkanirnar á landhúnaðarafurðunum. Og þær eru umtalsverðar, vegna þess að þær hafa orðið, eftir að gerðir voru allsherjar kjarasamningar á milli launþegasamtaka og vinnuveitendasamtaka 4. des. s.l. Ef ég, með leyfi hæstv. forseta, má nefna helztu dæmi um þá gífurlegu verðhækkun, sem orðið hefur á landbúnaðarvörum síðan samið var við launþega, þá ber að geta þess, að súpukjöt, I. flokkur, kostaði kílóið 4. des., þegar launasamningar voru undirritaðir, 124.50 kr. Í dag kostar þetta sama súpukjöt 144 kr. Skyr kostaði 4. des. 24.50 kr., nú kostar það 38 kr. Ostur 45% kostaði þá 142.50 kr., en nú kostar hann 167 kr., hækkar úr 142.50 kr. upp í 167 kr. Og aðrar landbúnaðarvörur hafa hækkað með svipuðum hætti, aðrar en mjólk og kartöflur, eins og ég gat um áðan.
Ég nefni þetta til þess að undirstrika, að í landinu ríkir ekki stöðugt verðlag. En spurning mín til hæstv. forsrh. er sú, hvort það sé enn stefna hæstv. ríkisstj., að launþegar eigi að bera þessa hækkun á búvörum ásamt öðrum hækkunum, sem orðið hafa, svo sem hækkanir á bifreiðatryggingum, án þess að fá það bætt í hækkaðri kaupgreiðsluvísitölu. Með þessu á ég auðvitað við þá stefnuyfirlýsingu, sem kom fram af hálfu hæstv. ríkisstj. í fjárlagaumr., að sú breyting á skattkerfinu, sem í því felst að fella niður svonefnda nefskatta, almannatryggingagjald og sjúkrasamlagsgjald, yfir í það að innheimta sömu tekjur, sömu krónutölu, með tekjusköttum eða öðrum sköttum, að þessi breyting á skattheimtu ríkisins eigi að lækka vísitölu framfærslukostnaðar um sem nemur 3.7 stigum, og að þess vegna þýði sú hækkun á búvörum, sem ég nefndi áðan, í raun og veru ekki aukinn framfærslukostnað launþega.
Mér er ekki grunlaust um, að hæstv. ríkisstj. hafi á sínum tíma haldið, að þetta væri hennar mál. Hún réði þessu. Hún gæti ráðið því, hvort þessi umrædda breyting skattkerfisins hefði áhrif á vísitölugrundvöllinn eða ekki. Ég veit, að henni er nú ljóst, að þetta var rangt, enda benti ég þegar á það hér í umr. um þetta mál, að þetta væri rangt. Þetta var ríkisstj. allsendis óviðkomandi. Það er opinber nefnd, kauplagsnefnd, þar sem oddamaður er skipaður af Hæstarétti, sem kveður á um það, hvernig reikna skuli grundvöll vísitölu framfærslukostnaðar. Ég veit, að á það hefur ekki reynt enn þá, hver skoðun kauplagsnefndar í þessu efni er, ég efast ekki um, að úrskurður hennar á sínum tíma muni verða rökstuddur og réttlátur. En það, sem mér leikur forvitni á að vita, er: Hver er skoðun og stefna ríkisstj. í þessu máli? Er hún enn sú sama sem lýst var af hæstv. fjmrh. í fjárlagaumr., að þessi kerfisbreyting á skattheimtunni eigi að lækka vísitölu framfærslukostnaðar, eins og þar var getið um, þannig að launþegum sé virkilega ætlað að bera þá hækkun, sem orðið hefur á búvörum eða varð á búvörum um s.l. áramót bótalaust og þar með þola þá kjaraskerðingu, sem af því hlauzt? Ég hlýt að minna á það, að stjórn Alþýðusambands Íslands hefur gert ályktun um þetta mál. Í þeirri ályktun felst alger andstaða við þá skoðun, sem kom fram hjá hæstv. fjmrh. í fjárlagaumr. í des. s.l. Ég leyfi mér að vænta þess, að hæstv. ríkisstj. taki það tillit til skoðana miðstjórnar stærstu launþegasamtaka landsins, að hún breyti eða hafi breytt þeirri skoðun, sem hæstv. fjmrh. lýsti í fjárlagaumr. í des. En mér leikur forvitni á að fræðast um þetta og veit, að ekki aðeins mér leikur forvitni á því, heldur mörgum fleiri, öllum launþegum í landinu leikur forvitni á því.