14.02.1972
Efri deild: 46. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (1068)
169. mál, lagmetisiðja ríkisins í Siglufirði
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Hér er hreyft í sjálfu sér miklu máli, þó að það sé bundið við eitt fyrirtæki, sem er staðsett norður á Siglufirði, og get ég strax lýst því yfir, að ég er í grundvallaratriðum sammála frv. Hins vegar langar mig til þess í tilefni þess, að hæstv. iðnrh. er staddur hér í d. hjá okkur, að fara um frv. nokkrum orðum og kannske spyrja hæstv. ráðh. nokkru nánar í því sambandi.
Mér virðist í aths., sem eru mjög stuttar, gæta þess misskilnings miðað við reynslu undanfarinna ára, eins og hæstv. ráðh. drap þó aðeins á, að mikillar bjartsýni gæti, kannske svolítið óraunhæfrar bjartsýni í ljósi þess, sem gerzt hefur, bæði hjá þessu fyrirtæki og öðrum fyrirtækjum í niðursuðuiðnaði, að þau hafa, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, verið olnbogabörn, og það er alveg rétt. Þau hafa átt við ýmsa örðugleika að etja og sjálfsagt ýmislegt, sem hefur stuðlað að því. Nú væri á döfinni stórmikið frv., sagði ráðh., sem muni efla sölustarfsemina a.m.k. Hvað framleiðsluþættinum viðvíkur, skal ég engu spá á þessu stigi, en mér skilst, að tilgangur þessa stóra frv. sé a.m.k. að tryggja raunhæfa og duglega sölustarfsemi, og er það vel. Engu að síður ætla ég aðeins að hlaupa á greinum frv. og vil þá um leið taka undir orð síðasta ræðumanns um það, að ég hallast helzt að því að orða þetta um forustuhlutverkið í þeim anda, sem hann lýsti. Ég tel það raunhæfara og nær sanni, miðað við það, sem er á döfinni, að gera átak til eflingar almenns niðursuðuíðnaðar eða lagmetisiðnaðar á síld og öðrum afurðum úr sjónum í framtíðinni hér á Íslandi. Og samkv. þessum lögum, sem eru í gildi enn um Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, þá er eðlilegt, að forustan sé þar. En hins vegar getur verið um beina samvinnu að ræða um ákveðna þætti úti um landið.
Síðan er 3. gr., að ráðh. skipar þriggja manna yfirtökunefnd. Mér finnst þetta kannske fullstutt sagt. Ég er ekki nógu kunnugur þessu, en veit ekki, hvaðan þessir fulltrúar kæmu. Þetta er að vísu millifærsla á ríkisfyrirtækjum, en einu sinni er nú svo, að fjvn. fjallar oft um þá þætti, sem varða fjármál ríkisins meira og minna, og væri ekki óeðlilegt, að einn maður fylgdist með úr fjvn. eða sama sem frá Alþ„ það væri ekki óeðlilegt, heldur en þetta væru bara aðilar utan Alþ. Þetta er ábending.
4. gr. gerir ráð fyrir framlagi af hálfu ríkisins og er það eðlilegt og nauðsynlegt, óhjákvæmilegt, til þess að gera þetta raunhæft, sem frv. stefnir að.
5. gr. er ég nokkuð ósammála og vildi vekja athygli á því, að ég held, að það sé yfirleitt venjan, að þegar svona er málum háttað, eins og frv. gerir ráð fyrir, þá kjósi a.m.k. Alþ. þrjá menn í stjórn, jafnvel alla. En hérna skilst mér, að iðnrh. einn muni skipa í stjórnina eftir ákveðnum ábendingum, en ég held, að þar sem um mikið fjármagn er að ræða beint frá Alþ., þá væri ekki óeðlilegt, að það væri athugað, hvort Alþ. ætti að kjósa í stjórnina, eins og tíðkast um mörg önnur ríkisfyrirtæki. Hitt vil ég þakka ráðh. fyrir, og er það í anda þess frv., sem ég flutti hér á síðasta þingi, að starfsfólk verksmiðjunnar hafi möguleika á að tilnefna einn mann í stjórnina. Það finnst mér mjög þakkarvert, að skuli vera tekið hér upp núna, sem yrði þá vonandi að lögum.
Í sambandi við önnur atriði í þessu finnst mér gæta verulegrar bjartsýni. Það er sagt hér í aths., að verulegur hagnaður verði á s.l. ári. Nú er ekkert gefið meira í skyn í því sambandi, þannig að mig langar til að spyrja, á hverju það mat byggist, hvernig er sú áætlun, gætum við fengið að vita eitthvað um þá áætlun, sem sýnir þetta. Ég held, að ég muni það rétt, að flestöll árin hafi verið meira og minna tap og jafnvel komið á annan tug millj. um tíma, en verið jafnað út 1967 og 1968 með sérstöku ákvæði í sambandi við gengisbreytingarnar þá. Þetta var held ég eina fyrirtækið, ef ég man það rétt, sem fékk að njóta gengishagnaðarins óskerts. Og ég held, að ríkissjóður hafi lagt fram 10 millj. kr. til að þurrka út það tap, sem var rúmlega 10 millj. Hvort það var 11–12 millj., man ég nú ekki nákvæmlega, en mig minnir, að ríkissjóður hafi lagt fram eða fengið að njóta gengisávinnings, sem var rétt um 10 millj., til þess að þurrka tapið þá út, þannig að ég vil bara undirstrika það, að bæði hjá þessu fyrirtæki og ýmsum öðrum hafa verið erfiðleikar, og þó að við vonum, að bjartari tímar séu fram undan, þá skulum við ekki vera óraunsæir, ekki óraunsæari en það, að hér þarf að gera mikið átak til að tryggja mikla framleiðslu hjá þessu fyrirtæki, eins og við gerum okkur vonir um, að muni takast.
Annað atriði er það, að þegar gefin er upp heildartala, 80 millj., annaðhvort meira eða minna, þá skulum við muna það, að umbúðirnar eru nokkurn veginn þriðjungur af þeirri tölu og þær koma erlendis frá. Vinnulaunin eru nálægt 1/3, og svo er hráefnið yfirleitt lægri þáttur en þessir tveir, yfirleitt verulega lægri. Nú er mikið vandamál með hráefnið. Búið er að lýsa yfir friðunarráðstöfunum hér á Íslandsmiðum til haustsins 1973. Auðvitað getur hæstv. sjútvrh. upphafið þetta bann og leyft sérstakar undanþágur í þágu þessara verksmiðja, en fari svo, að við verðum að fá alla síldina úr Norðursjónum, þá kostar það mikið og það kostar verulega aukna erfiðleika, bæði fyrir þessa verksmiðju og aðrar, sem þurfa að treysta á síldarniðursuðu. Ég vil aðeins vekja athygli á þessu, vegna þess að þetta kann að verða raunhæft mjög fljótlega, þegar á komandi sumri, í sambandi við hráefnisöflun handa þessari verksmiðju og jafnvel fleirum. Þess vegna er nauðsynlegt, að við gerum okkur nú grein fyrir því, að þó að bjartsýni sé nokkur í dag, þá kann það að vera óraunhæft vegna annarra aðstæðna, sem steðja að þessum iðnaði. Einnig er það, að vegna síldarskorts í Vestur-Evrópu ætti að vera möguleiki á að selja þessar afurðir betur en verið hefur, ekki eingöngu til Rússlands, þó að ég sé ekki að lasta þann markað. En samt sem áður er mér ekki kunnugt um, að verksmiðjan hafi komið neinu magni að ráði á þennan markað í Vestur-Evrópu, og væri fróðlegt að vita um það, hvort slíkt hefði tekizt núna við ríkjandi aðstæður, því að sé það ekki hægt við ríkjandi aðstæður í dag, þá er varla hægt að vænta þess, að okkur takist betur til, þó að um aukna sölustarfsemi verði að ræða, ef friðunarráðstafanir á síldinni bera þann árangur, að aukið framboð verði á norðurhafssíldinni, aukið framboð verði eftir 2–3 ár. Við ættum þess vegna að reyna að nota tækifærið nú í dag og koma okkar vöru, niðursuðuvöru, á þennan erfiða markað í Vestur-Evrópu, sem sennilega mun greiða hærra verð en fæst í Rússlandi.
Hæstv. ráðh. sagði frá því, að Siglósíld hefðu verið tryggðar 12 þús. tunnur. Ég held, að enn hafi ekki verið teknar í umsjá verksmiðjunnar nema tæplega 5 þús. tunnur. Hins vegar mun ríkissjóður hafa borgað eða tryggt greiðslu á öllu magninu. Kristján Jónsson tók að sér nærri 5 þús. tunnur, en því miður, ég veit ekki hvers vegna, treysti Norðfjörður sér ekki til að kaupa neitt eða tryggja sér neitt af saltsíld, og ég held, að ég fari rétt með það, að þeir hafi enn ekki getað fullunnið úr því, sem þeir áttu á lager allt frá árinu 1970. Ég vil þannig aðeins vekja athygli á því, að þó að grg. sé mjög bjartsýn í eðli sínu, þá eru erfiðleikar í þessari atvinnugrein og þeir kunna að halda áfram a.m.k. fyrir sum fyrirtæki. Þau munu örugglega þurfa á fjármagnsaðstoð að halda, og þó að það komi fram kannske í öðru frv. frá hæstv. ríkisstj.
Þetta er sérmál út af fyrir sig, Siglósíld, og skal ég ekki orðlengja það meira almennt séð. En það væri fróðlegt, ef n. gæti a.m.k. fengið nánari upplýsingar um möguleikana, hvað þetta breytta rekstrarform tryggi raunverulega í afgang, af því að það er gefið í skyn í aths. við frv., og hvaða úrbætur, sem frv. felur í sér, muni vera það góðar, að við getum raunverulega verið svo bjartsýnir, eins og mér finnst aths. gefa í skyn, að hægt sé að vera. Þess vegna hef ég leyft mér að gera þessar aths. við frv., en eins og ég sagði áðan, heildarstefnuna í því styðjum við allir.