14.02.1972
Efri deild: 46. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)
169. mál, lagmetisiðja ríkisins í Siglufirði
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Ég get verið sammála hv. þm. Steingrími Hermannssyni um það, að það væri eðlilegt að breyta orðalagi 2. gr. þannig, að verksmiðjan annaðist tilraunastarfsemi undir leiðsögn Rannsóknastofnunar fiskíðnaðarins, og vildi ég biðja hv. n. að líta betur á það atriði. Það er einnig rétt, sem fram hefur komið hér í umr., að það er mjög óeðlilegt, að það er tiltekið í 5. gr., að það yrði skipuð stjórn án þess að hún hafi tiltekinn starfstíma, og þessu þarf að sjálfsögðu að breyta.
Hitt getur svo verið matsatriði, hvort það er eðlilegt, að stjórn við slíka stofnun þurfi endilega að kjósa pólitískri kosningu hér á þingi. Ég er ekki viss um, að sú regla sé rétt í öllum tilvikum. Þarna koma til aðilar, sem mér finnst, að eðlilegt sé, að tilnefni fulltrúa, — þar á ég við bæjarstjórn Siglufjarðar og ekki sízt Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, — og það eru líkur á því, að það sé hægt að fá þarna samhentari stjórn og menn, sem hafa meiri sérþekkingu, með því fyrirkomulagi, sem hér er lagt til, en þetta er að sjálfsögðu á valdi Alþ.
Ég tel það alveg sjálfsagt mál, að fjvn. verði látin fylgjast með því, hvernig háttað verður samningum við stjórn Síldarverksmiðja ríkisins um eignir fyrirtækisins, sérstaklega var rætt um skuldajöfnun milli ríkissjóðs og síldarverksmiðjanna, og mun, ef frv. verður samþ., gera ráðstafanir til þess að fjvn. geti fylgzt með því máli.
Hér var spurt um það, hver afkoma fyrirtækisins hefði orðið á s.l. ári. Eins og ég greindi frá í framsöguræðu minni, hefur mér verið tjáð, að hagnaður af rekstrinum hafi orðið 4–5 millj. kr., en sú hv. þn., sem fær málið til meðferðar, mun að sjálfsögðu geta fengið aðgang að öllum gögnum um það efni.
Hér hefur nú komið fram annars vegar það sjónarmið, að í þessu frv. væri ótímabær bjartsýni um möguleikana á því að framleiða og selja jafnmikið magn og þarna er talað um. Og jafnframt hefur verið á það bent, að það gæti orðið erfitt að afla hráefnis, vegna þess að nú sé bann við síldveiði fram til næsta hausts. Sú ákvörðun ríkisstj., að tryggja verksmiðjunni 12 þús. tunnur af hráefni, var m.a. miðuð við þetta, vegna þess að það er talið, að hægt sé að geyma slíkt hráefni alllangan tíma og það þyrfti að tryggja það, að nægilegt hráefni gæti þarna verið til fram yfir næstu áramót. Það er rétt, að sala á framleiðslu verksmiðjunnar hefur ekki hafizt eða ekki jafnlangt fram gengið eins og vonir stóðu til. Sovétríkin reyndust ekki reiðubúin til að kaupa jafnmikið magn og vonir stóðu til í upphafi, en ég vil benda á það, að það er gert ráð fyrir því, að hægt verði að selja Sovétríkjunum annað eins magn á síðari hluta ársins. Jafnframt er mér kunnugt um það, að stjórn verksmiðjunnar hefur sent menn utan til þess að reyna að afla markaða í Svíþjóð, Bandaríkjunum og Danmörku. Á s.l. ári var selt allmikið magn til Svíþjóðar og til Bandaríkjanna og Svíar hafa hreinlega beðið eftir því, hvort þeir fengju að kaupa hér á Íslandi kryddsíld í tunnum til niðurlagningar hjá sér. Þau fyrirtæki, sem þar er um að ræða, standa í samkeppni við okkur á þessu sviði, og ég vil vænta þess, að það muni takast að tryggja markaði í Svíþjóð fyrir okkar eigin framleiðsluvörur, vegna þess að Svíar munu búa við hráefnisskort á þessu sviði ekki síður heldur en við.
Ég vil geta þess í sambandi við það, sem hv. þm. Jón Árnason sagði, að þarna sem stendur í 4. gr., að ríkisstj. sé heimilt að leggja fram nauðsynlegt fjármagn til stækkunar verksmiðjunnar, þá er þarna um að ræða stefnumörkun af hálfu ríkisstj., en að sjálfsögðu munu till. um framkvæmd þessarar stefnumörkunar verða markaðar í sambandi við afgreiðslu fjárl. hverju sinni.