09.02.1972
Neðri deild: 39. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)

159. mál, lífeyrissjóður bænda

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Hv. þm. hefur sömu skoðun á þessum lögum um lífeyrissjóð bænda eins og þegar þau voru hér til umr., áður en þau voru lögfest, og segir, að þetta sé sú vitlausasta löggjöf, sem hafi verið sett. Hv. þm. talaði einnig um aðra lífeyrissjóði, að verkamenn þyrftu að greiða 10% o.s.frv. Hann segist samt sem áður, þessi þm., vera með tryggingum, og það er út af fyrir sig ágætt. En það eru nú flestir, sem gera sér grein fyrir því, að ef menn kaupa sér tryggingar, þarf að leggja eitthvað fram. Og það eru allir nú, sem vilja gera það, á meðan þeir eru hraustir og geta aflað fjár og unnið fyrir sér, kaupa sér tryggingu til þess að eiga hana vísa, þegar heilsuleysi kemur eða til ellidaganna, ef menn skyldu verða gamlir.

Og bændur áttu ekki að verða út undan í þessu efni. Þess vegna voru þessi lög sett. Og það er rétt, sem ég sagði áðan, að þau voru sniðin eftir því bezta, sem um þetta gildir á Norðurlöndum. Það er lífeyrissjóður bænda í Finnlandi, það eru lífeyristryggingar bænda í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Og hvort sem menn kalla þetta lífeyrissjóði eða lífeyristryggingar, þá er það stígsmunur, en ekki meiningarmunur. Og ég hef fyrir mér orð Guðjóns Hansen tryggingafræðings, sem vann með nefndinni að samningu frv., að tekið var það úr þessari tryggingalöggjöf á Norðurlöndum, sem talið var að passaði bezt fyrir okkur.

Hv. þm. lýsti því, að það væri miklu betra fyrirkomulag á tryggingalöggjöf um þetta efni í Finnlandi. Þar væri helmingurinn greiddur af ríkinu og helmingurinn tekinn af fasteignum. Það væri miklu verra hér, vegna þess að hér væri þetta ekki tekið af fasteignum heldur af framleiðslu. Ég held, að það sé miklu heppilegra að taka þetta af framleiðslunni, vegna þess að sá, sem framleiðir vöru, hefur greiðsluþol, en það er engan veginn víst, að þótt maður eigi fasteign, gefi hún nokkuð af sér. En svo má líka segja það, að sá, sem framleiðir mikið, hljóti einnig að hafa nokkuð miklar fasteignir. A.m.k. þarf hann að hafa hús yfir fénaðinn.

Hv. þm. á eftir að átta sig á þessu máli. Það er alveg víst, að enda þótt í byrjun hafi verið unnt að gera þessa löggjöf tortryggilega í augum hænda, þá eru margir bændur nú farnir að átta sig á því, að þessi lög eru mikils virði fyrir þá. Og þeim bændum mun fjölga með hverju ári, sem líður, sem sannfærast um það, að þessi löggjöf er ein sú merkasta og ein sú bezta trygging, sem er til fyrir bændastéttina. Og ég vona það, að hv. 3. þm. Norðurl. v., sem talaði hér áðan, lifi það lengi að sjá í reynd fullan árangur af þessari löggjöf. Og ég er sannfærður um það, að í framtíðinni verður honum ekki þakkað fyrir það að hafa spyrnt fæti gegn því, að þessi merka löggjöf var sett.