03.05.1972
Neðri deild: 68. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (1135)
159. mál, lífeyrissjóður bænda
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. við frv. þetta á þskj. 663. Meðflm. mínir að brtt. eru þeir hv. 2. þm. Sunnl., Ágúst Þorvaldsson, og hv. 8. landsk. þm., Benedikt Gröndal.
Till. fjallar um það, að nema brott úr lögunum takmarkanir á því, hvað sjóðfélagi í lífeyrissjóði bænda þurfi að hafa greitt iðgjöld til sjóðsins í langan tíma til þess að hann eigi rétt á örorkubótum. En eins og í lögunum segir, þarf sjóðfélagi að hafa greitt iðgjöld til sjóðsins í 18 mánuði til þess að hann eigi rétt þessara bóta. Eigi verður annað skilið en starfsmenn sjóðsins túlki þetta á þann veg, að örorka, sem myndast áður en 18 mánaða tímabilið líður, veiti ekki rétt til bóta. Ef sá skilningur er lagður í þetta lagaákvæði, þá er um enn meira ranglæti að ræða en mér virðist að mætti lesa út úr þessari lagagrein.
Rétt er að vekja athygli á því, að þrátt fyrir það að þessi brtt. okkar þremenninganna verði samþ., þá eru þó verulegar takmarkanir á örorkubótum til sjóðfélaga. Í fyrsta lagi þær, að örorkutapið sé a.m.k. metið 40% til langframa. Í annan stað, að örorkan miðist við það, að sjóðfélagi geti eigi stundað landbúnaðarstörf. Í þriðja lagi, að aldrei verði um hærri bætur að ræða en sem nemi tekjutapi þess, er fyrir skerðingu verður á starfsorku sinni, og svo í fjórða lagi, eins og er um allar örorkulífeyrisbætur, að þær falla niður, þegar að ellilífeyri kemur.
Ég lít svo á, að hér sé um fullkomið réttlætismál að ræða, og vænti þess, að hv. þd. sjái sér fært að samþykkja þessa brtt.