03.05.1972
Neðri deild: 68. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (1136)
159. mál, lífeyrissjóður bænda
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég gerði grein fyrir því í framsögu fyrir áliti fjhn. við 2. umr. þessa máls, að n. taldi óeðlilegt að færa þær breytingar, sem nú er verið að gera á lögum um lífeyrissjóð bænda, út fyrir það svið, sem í frv. er stefnt að, en að vísu áskildu tveir nm. sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.
Þetta frv., sem liggur hér fyrir og nú til 3. umr., fjallar eingöngu um breytingu á II. kafla lífeyrissjóðslaganna. Sá kafli er algjör hliðstæða við lög um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum, eins og áður hefur verið bent á, og er alveg sérskilinn hér í lögunum. Hann er um það, hversu brúa skuli með tilliti til eftirlauna það bil, sem verður, frá því að lögin taka gildi og þangað til sjóðurinn er búinn að byggja sig upp, þannig að hann geti tekið til starfa sem fullgildur lífeyrissjóður.
Hér er um algjöra hliðstæðu að ræða við þessi lög. Brtt. sú, sem hér liggur fyrir og hv. 5. þm. Norðurl. v. kynnti þá nokkuð, er aftur á móti við I. kafla laganna, nánar tiltekið við 10. gr. laganna. Nú er það þó svo, eins og kom þá einnig fram, að í brb.-ákvæðum er kveðið svo á, að lög þessi skuli endurskoðuð fyrir árslok 1972. Og þar sem nú er þegar komið nokkuð fram á þetta ár, þá verður a.m.k. að vera mjög brýn ástæða til þess að fara að hreyfa við ákvæðum þess hluta laganna, sem tekinn verður til endurskoðunar nú á næstu mánuðum, og þá því síður sem bein fyrirmæli eru í lögunum sjálfum, að þeirri endurskoðun skuli lokið fyrir næstu áramót.
Það kann að vera, að menn greini á um það, hvort þannig sé ástatt, og vilji kannske ekki alveg binda sig við þetta sjónarmið, en ef menn líta á efnislega hlið þessa máls, sem brtt. fjallar um, þá sýnist mér það enn augljósara, að það beri ekki að samþykkja þessa brtt.
Ef við lítum á það, hvernig tekjuöflun er upp byggð í I. kafla laganna, sem brtt. er við, þá er þar um að ræða þessa venjulegu uppbyggingu lífeyrissjóðanna, að það eru iðgjöld hinna tryggðu, iðgjöld sjóðfélaganna og mótframlög, venjuleg mótframlög. Aftur á móti er sjóðnum samkv. þessum ákvæðum ekki ætlað að taka til fullra starfa fyrr en eftir svona og svona mörg ár. Aftur á móti í II. kaflanum eru ákvæði um það, hversu með skuli fara, að því er varðar eftirlaunin fram að þeim tíma. En í honum eru engin ákvæði um örorku fremur en lögum um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum. Það er þess vegna enginn fjárhagslegur grundvöllur fyrir því að taka upp bætur samkv. þessum kafla á þessu árabili. Og þess vegna, þegar af þeirri ástæðu, er þessi tillöguflutningur óeðlilegur.
Þá er einnig á það að líta, að það ákvæði, sem í till. felst, er í algjöru ósamræmi við tilsvarandi ákvæði í reglugerðum um aðra lífeyrissjóði, t.d. Dagsbrúnar og Framsóknar í Reykjavík, sem stofnaður var um líkt leyti og lífeyrissjóður bænda. Í reglugerðum um þann sjóð segir þannig um örorkulífeyri, með leyfi hæstv. forseta: „Hver sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins undanfarin þrjú almanaksár og a.m.k. sex mánuði á undanfarandi 12 mánuðum, á rétt á örorkulífeyri, ef hann verður fyrir orkutapi, er tryggingayfirlæknir metur 40% eða meira.“
Hér er um sambærilega sjóði að ræða, að því leyti m.a., að þeir eru stofnaðir um líkt leyti og eru álíka langt komnir að byggja sig upp.
Það vill svo til, að nýlega hefur verið lagt fram stjfrv. til I. um lífeyrissjóð sjómanna, og ef við lítum á ákvæði þess frv. um sama atriði, þá segir hér einnig í 13. gr.: „Hver sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins undanfarin þrjú almanaksár og a.m.k. sex mánuði á undanfarandi 12 mánuðum, á rétt á örorkulífeyri, ef hann verður fyrir orkutapi, er tryggingayfirlæknir metur 35% eða meira.“
Þetta eru alveg samsvarandi ákvæði í þessu stjfrv. og er að finna í reglugerðinni um lífeyrissjóði Dagsbrúnar og Framsóknar, enda segir í aths. með þessu brt., sem er eins og ég sagði stjfrv., en samið af Guðjóni Hansen tryggingafræðingi, að ákvæðin um örorkulífeyrinn „eru í samræmi við ákvæði hjá hinum nýju lífeyrissjóðum verkalýðsfélaga.“ Þess vegna sýnist mér það skjóta ákaflega skökku við að fara nú að taka upp í lög um lífeyrissjóð bænda ákvæði um örorkubætur, sem ekki einasta eru tengdar við I. kaflann, þar sem engin tekjuöflun kemur á móti, heldur einnig í algjöru ósamræmi við ákvæði skyldra lífeyrissjóða um örorkubætur.
Ég skal ekki fjölyrða um þetta miklu frekar, en ég víl aðeins koma að því, sem kom fram í ræðu hv. 5. þm. Norðurl.v., þegar hann boðaði þessa brtt. við 2. umr. málsins, að hann sagði eitthvað á þá leið, að hann ætlaðist til þess, að þeir, sem fyrir orkutapi yrðu, yrðu metnir öryrkjar eftir þeim ákvæðum, sem í lögum eru, þá fengju þeir sín réttindi án tillits til þess, hvað þeir væru búnir að greiða lengi iðgjöld til sjóðsins, og án tillits til þess, hvenær þeir yrðu fyrir þeim áföllum, er skerðing á starfsorku veldur. Miðað við þessi ummæli virðist það vera ætlun flm., að þeir, sem hefðu orðið fyrir orkutapi áður en lögin öðlast gildi, gætu komið inn á full réttindi nú þegar. En eftir því sem ég hef getað kynnt mér þetta mál með viðtölum við tryggingafróða menn, þá er þetta alveg fráleitur skilningur og jafnvel till. eins og hún er orðuð mundi varla af lögskýrendum verða túlkuð á þá lund, sem ummæli flm. við 2. umr. gáfu tilefni til að skilja hana.
Ég get engan veginn mælt með þessari till., heldur legg til, að hún verði felld. Vísa ég enn til þessara þriggja atriða: Að endurskoðun laganna fer fram í ár og henni skal ljúka fyrir áramót, að till. rímar engan veginn við I. kafla laganna, því að í henni er gert ráð fyrir fullum réttindum strax, en I. kaflinn fjallar um það, hvernig réttindum verði varið, þegar sjóðurinn hefur byggt sig upp, og í þriðja lagi og ekki sízt vegna þess, að hún er efnislega í algjöru ósamræmi við tilsvarandi ákvæði í reglugerð fyrir sjóði Dagsbrúnar og Framsóknar og væntanlega einnig hjá öðrum slíkum sjóðum, sbr. sjóð verkalýðsfélaganna, sbr. ummæli tryggingafræðingsins í grg., og á sama hátt í algjöru ósamræmi við stjfrv. um lífeyrissjóð sjómanna, sem hér liggur fyrir. Ég legg því til, að þessi till. verði felld.