20.10.1971
Neðri deild: 4. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)

9. mál, sameining Borgarfjarðarhrepps og Loðmundarfjarðarhrepps

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Meginefni þessa frv. er í 1. gr. þess, sem er svo hljóðandi:

„Borgarfjarðarhreppur og Loðmundarfjarðarhreppur í Norður-Múlasýslu skulu vera einn hreppur, sem heitir Borgarfjarðarhreppur.“

Í 2. gr. frv. er svo kveðið á um, hvernig kvaðir þær, sem slíkri sameiningu sveitarfélaganna mundu fylgja eða leiða af sameiningunni, skuli skiptast og í hvaða hlutföllum.

Tilefni málsins er það, að á seinustu árum hefur, eins og sums staðar annars staðar á landinu, að heita má lagzt af byggð í Loðmundarfjarðarhreppi á Austfjörðum, og er nú svo komið, að í því sveitarfélagi er aðeins einn búandi maður, bóndinn að Sævarenda, sem mun búa þar einn. Málið hefur verið tekið upp og þeim tilmælum beint til félmrn., að það gerði ráðstafanir til að sameina Loðmundarfjarðarhrepp einhverju öðru sveitarfélagi. Sökum þessara tilmæla til félmrn. hefur málið áður komið fyrir Alþ. og var þá lagt til í því frv., sem þá var flutt, að Loðmundarfjarðarhreppur yrði sameinaður Seyðisfjarðarkaupstað. Um lögfylgjur af þeirri sameiningu voru sams konar ákvæði eins og í þessu frv. En það frv. um sameiningu Loðmundarfjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar mætti andstöðu og frv. fékk ekki afgreiðslu á Alþ., og hefur því setið við hið sama um þetta enn sem komið er.

Síðan hefur það gerzt, að hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps hefur gert samþykkt um að óska þess eða bjóða það fram, að Borgarfjarðarhreppur taki við Loðmundarfjarðarhreppi, á sömu forsendum og áður var rætt um að gerðist með Seyðisfjarðarkaupstað. Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps hefur tvívegis ítrekað þetta tilboð sitt með einróma samþykktum í hreppsnefnd.

Á þessa hugsun, að sameina Loðmundarfjarðarhrepp Borgarfjarðarhreppi, er fallizt af félmrn., og teljum við það eðlilegt, með því að sýslunefnd Norður-Múlasýslu hefur einnig látið í ljós, að slík sameining væri að hennar dómi eðlilegust lausn á þessu máli. Það er því í samræmi við samþykktir hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps og sýslunefndarinnar, sem þetta frv. er flutt.

Um það hef ég því ekki fleiri orð og legg til, að frv. verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.