03.05.1972
Neðri deild: 68. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)

9. mál, sameining Borgarfjarðarhrepps og Loðmundarfjarðarhrepps

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég átti tal um það við einn nm. hv. heilbr.- og félmn., sem hafði þetta mál til meðferðar, að gerðar yrðu verulegar breytingar á þessu frv. Ég trúi, að það hafi aðeins verið skoðað í n., en menn hafi ekki getað á það fallizt. Er ég þó ekki alveg viss um, hvort það var nú þannig eða hvort það var á hinn veginn, að þessi hv. nm. taldi sjálfur ekki fært að fara út í svo miklar breytingar sem þar var um að ræða, og sýndi aldrei hugmyndir mínar í hv. nefnd. En burt séð frá því, þá hefði mér fundizt ástæða til, að breytt hefði verið tveimur atriðum í þessu frv. Þar er í hvorugu tilfelli um stór atriði að ræða, en þó þannig, að ég tel, að betur mætti á þeim fara.

Ég skal aðeins gera grein fyrir þessum atriðum og mun svo leyfa mér að leggja fram skriflega brtt. um þau. Þá er það í fyrsta lagi við 2. gr., að ég legg það til, að við gr. bætist ný mgr., svo hljóðandi: Sýslumaður Norður-Múlasýslu annast innheimtu á framlögum til greiðslu fjallskilakostnaðarins.

Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta. Það. sem fyrir mér vakir, er einfalt. Þar sem hagar til eins og í Loðmundarfirði. að allir íbúar staðarins eru farnir að einum undanskildum og raunar allir landeigendur, því að ég trúi, að hann sé leiguliði, þá er ákaflega erfitt fyrir hreppsnefndaroddvita að innheimta gjöld af þessum landeigendum, sem dreifðir eru víðs vegar um landið. Mér virðist það sé miklu viðráðanlegra fyrir sýslumanninn og í sjálfu sér eðlilegra, að hann annist um það, m.a. með tilliti til viðeigandi ákvæða í lögum um fjallskil, þar sem gert er ráð fyrir afskiptum sýslumanna af smölun í löndum, þar sem á stendur eins og hér.

Annað atriði er brtt. við 3. gr. Í henni segir, að kostnaður við grenjaleitir í Loðmundarfirði endurgreiðist næstu fimm árin úr ríkissjóði, enda verði framkvæmd grenjaleitar hagað í samráði við veiðistjóra ríkisins. Mér virðist það vera fyllra og um leið eðlilegra orðalag, að tilgreina þarna kostnað við eyðingu refa og minka. Grenjaleit er aðeins hluti af eyðingu refa og það spannar ekki yfir minkamálið, en minkur er nú einmitt að ljúka hernámi landsins og er kominn niður í fjarðarbotnana, a.m.k. á undanrás. Ég veit ekki til, að hann hafi tekið sér þar bólfestu, en það liggur alveg fyrir, að hann geri það. Ég tel því eðlilegra að orða þetta þannig: „Kostnaður við eyðingu refa og minka í Loðmundarfirði samkv. l. nr. 52 5. júní 1957 endurgreiðist Borgarfjarðarhreppi næstu fimm árin úr ríkissjóði, enda verði framkvæmd við eyðingu refa og minka hagað í samráði við veiðistjóra ríkisins.“ Ég vil svo afhenda hæstv. forseta brtt. og vænti þess, að hann leiti afbrigða.