05.05.1972
Neðri deild: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)

222. mál, læknaskipunarlög

Frsm. (Jónas Árnason):

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál., þá mælir heilbr.- og félmn. með samþykkt þessa frv., en með nokkrum semingi þó, má kannske segja.

Einstakir nm. hafa ýmislegt við frv. að athuga og einnig vissir aðilar, sem leitað var umsagnar hjá í sambandi við frv. Landlæknir mælir að vísu með samþykkt þess eða kemst svo að orði, að hann hafi ekkert við frv. að athuga og telji það til bóta. Stjórnarnefnd ríkisspítalanna mælir með samþykkt þess. Deildarforseti læknadeildar eða læknadeild mælir einnig með samþykkt þess, en gerir við það nokkrar aths. Læknafélagið gerir einnig við það nokkrar aths. og þá sérstaklega 3. gr. frv. Í bréfi læknafélagsins er komizt svo að orði, með leyfi forseta:

„Varðandi 3. gr. frv. vill Læknafélag Íslands taka fram, að það er mótfallið því sjónarmiði, að læknastúdentar skuldbindi sig, eins og þar er gert ráð fyrir, til starfa í héraði, og telur allar slíkar kvaðir í eðli sinu neikvæðar og sízt til þess fallnar að örva læknanema til starfa í héraði. Telur félagið vænlegra, að í læknanámi svo og að því loknu sé unnið að því að skapa áhuga á læknisstarfi í héraði. Verður það bezt gert með því að kenna í læknanámi undirstöðuatriði heimilislækninga og gera læknanemum kleift að starfa með læknum í heilsugæzlustöðvum og kynnast á þann hátt læknisþjónustu í dreifbýli.“

Ég vil taka það fram, að í n. kom það fram hjá, að ég hygg, flestum nm., að þeir taka undir þessi sjónarmið. Þá er þess að geta, að frá hjúkrunarkvennafélaginu kom umsögn, sem fól í sér þá till., að héraðshjúkrunarkonum yrðu boðin svipuð hlunnindi eins og læknastúdentum eru boðin með þessu frv., en þau eru í stuttu máli sagt, að þeir eiga að fá kost á styrk, sem nemur 200 þús. á ári í þrjú ár, gegn því að þeir skuldbindi sig þá til að starfa sem læknar í héraði síðar.

Eins og ég hef þegar sagt, þá kom fram í n., þótt hún mæli með samþykkt frv., nokkur vantrú á því, að þetta frv. leysi þann vanda, sem því er ætlað að leysa. Sá vandi er, eins og við öll vitum, mjög mikill. Það kom fram af hálfu viðkomandi rn., að það leggur mikla áherzlu á að fá tækifæri til að gera þessa tilraun til nokkurrar lausnar á þessum mikla vanda og n. sér ekki ástæðu til að beita sér gegn því. Hún mælir þar af leiðandi með samþykkt frv.