10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)
222. mál, læknaskipunarlög
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa hér um mörg orð. Öllum er ljóst, að okkar vandamál í hinum dreifðu byggðum varðandi læknaskortinn er gífurlega stórt og viðamikið og erindi mitt einvörðungu við það bundið að lýsa því yfir, að ég mun fylgja öllum þeim tilraunum, sem mér sýnist að gerðar séu til þess að ráða þar á bót.
Fyrir því lýsi ég stuðningi mínum við það frv., sem hér liggur fyrir, og andstöðu við þá brtt. á þskj. 711, sem flutt er af hv. 3. landsk. þm. Ég játa, að ég er ekki í aðstöðu til að meta, að hve miklu leyti má vænta, að þessi aðferð verði til úrbóta, sem hæstv. heilbrmrh. vill þarna nota með heimildinni til þess að veita þessa fjármuni til styrktar og láns til læknanema. En eins og ég segi, þegar manni sýnist, að verið sé að brjóta upp á nýjum leiðum til þess að mæta þessum mikla vanda, sem við eigum við að stríða, þá mun ég ekki láta hendi óveifað til að styðja slíkar tilraunir.