04.05.1972
Efri deild: 75. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1454 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)
222. mál, læknaskipunarlög
Frsm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Eins og fram kom við 1. umr. frv. þessa hjá hæstv. landbrh., þá er frv. samið af mþn., er Búnaðarþing 1971 kaus. Nefnd þessi skilaði áliti fyrir síðasta Búnaðarþing og það frv., er hér er til umr., er í meginatriðum eins og nefndin lét það frá sér fara. En helztu breytingar, sem frv. þetta felur í sér frá gildandi lögum, eru þessar:
1. Lagt er til, að Vélasjóður verði lagður niður frá og með næstu áramótum, þar sem talið er, að hlutverki hans sé nú lokið, en það var einkum það að hafa í þjónustu sinni stórvirkar vélar, skurðgröfur og aðrar ræktunarvélar. Nú hafa ræktunarsamböndin og búnaðarsamböndin eignazt sjálf nauðsynleg jarðræktartæki og sjá þau um framræslu og jarðvinnslu og þar af leiðir, að upphafleg verkefni Vélasjóðs eru ekki lengur fyrir hendi. Önnur verkefni Vélasjóðs, svo sem leiðbeiningar um val véla og verkfæra og meðferð þeirra, þurrkun lands, áveitur o. fl. fellur undir leiðbeiningarþjónustu Búnaðarfélags Íslands.
2. Lagt er til að aukaframlag til jarðræktar, það er Landnám ríkisins hefur borgað allt frá árinu 1957, að ég ætla, verði nú innifalið í framlagi jarðræktarlaga. Í þessu er vinnuhagræðing, þar sem það er sama vinna fyrir Búnaðarfélag Íslands, sem lætur reikna út jarðræktarframlögin, hvort upphæðin, sem miðað er við, er 10 þús. kr. eða 14 þús. kr., svo að eitthvað sé nefnt.
3. Framlag til ræktunar miðað við ha. verður jafnhátt án tillits til hektarafjölda. Í gildandi lögum er hámarksframlag bundið við 25 ha. túnstærð, en þá lækkaði framlagið mikið á þá ræktun, sem þar var yfir. Í þeim breytingum, sem gerðar voru á lögum um Landnám ríkisins á s. l. ári, var upp tekin þessi regla, að borga sama framlag miðað við ha. án tillits til túnstærðar. Hér er sporið stigið til fulls og skal borga sama framlag á ha. til allra, án tillits til túnstærðar.
4. Tekið er upp framlag til hagaræktar, þegar vissum skilyrðum er fullnægt varðandi sléttun, sáningu og áburðarþörf.
5. Sú breyting er gerð á framlagi til girðinga, að það nær jafnt til girðinga um ræktunarlönd og heimahaga. Bæði hagaræktun og girðingar um heimalönd munu létta beit af túnum sums staðar og einnig mun auðveldara reynast að græða upp sanda og mela, sem nauðsynlegt er að friða með girðingum.
6. Tekið er upp framlag til kölkunar ræktunarlands. Flestir munu hafa heyrt þess getið, að kal í mýrlendum túnum stafi frá því, að jarðvegurinn sé of súr til þess að túngrösin þrifist. Erlendis er víða þekkt, að borgað er framlag á kölkun lands. Vonandi verður kölkun landsins til þess, að bæði túngrösin þrifist og búfénaðurinn líði ekki fyrir kalkskort, eins og því miður á sér allt of oft stað.
7. Tekin er upp sú heimild að borga 30% hærra framlag á félagsræktun, ef hlutaðeigandi bændur hafa ekki viðunandi ræktunarlönd, en jarðir þeirra eru góðar bújarðir að öðru leyti.
8. Sú breyting er gerð á framræslu, að framlag ríkis nær einnig til uppmoksturs úr eldri skurðum, kílræsa og ræsa úr plaströrum, sem dregin eru í jarðveginn og haldast opin þá betur við en ella. Nokkur reynsla er fengin fyrir plaströrum og spáir hún góðu um þurrkun lands á þennan hátt.
Þá er ræktunarsamböndum ekki gert að skyldu að bjóða út skurðgröft, ef þau eiga sjálf gröfur til að annast verkið. Í þess stað eru þau háð samþykki Búnaðarfélags Íslands um þann taxta, er þau grafa fyrir.
9. Tekinn er upp nýr liður um framlag til vatnsveitna á sveitabæi. Ríkissjóður hefur í áratugi stutt vatnsveitur til borga, bæja, kauptúna og sveitabæja, ef fleiri bændur mynda með sér félag og geta notað sömu vatnsveituna, en flestir bændur hafa þó orðið hingað til hjálparlaust að leiða vatnið heim, hvað sem það hefur kostað. Hér er um réttlætismál að ræða, þar sem misræmi hefur verið allmikið í þessum efnum á milli hinna einstöku þegna þjóðfélagsins. Kröfur um heilnæmt neyzluvatn eru meiri nú en áður. Auk þess þarf einnig miklu meira vatn, bæði til íbúðarhúsa og meira hreinlætis verður að gæta í hvívetna og ekki sízt í sambandi við kælingu mjólkur.
10. Tekið er upp framlag til vélgeymslna. Vélar og verkfæri eru á flestum bæjum mikið að verðmæti og því þýðingarmikið að geta geymt þau inni í góðum húsum.
Framlagið á að tryggja það annars vegar, að geymslurnar verði vandaðar, og hins vegar að glæða áhuga manna fyrir þýðingu þess að geyma vélar í góðum húsakynnum, þar sem einnig á að vera auðvelt að gera við þær og koma þeim í nothæft ástand, ef þess þarf með yfir vetrarmánuðina.
Þá er síðast en ekki sízt samkv. frv. þessu rýmkaður hlutur búnaðarsambandanna, þar sem þau eiga eftirleiðis að fá 65% af ferðakostnaði héraðsráðunauta borgaðan ásamt 65% af launum þeirra, eins og verið hefur í jarðræktarlögum. Búnaðarsamböndin fá einnig í sinn hlut 2% af jarðabótaframlaginu, og hreppabúnaðarfélögin fá eftirleiðis 4% í stað 5% áður. Kostnaður búnaðarsambandanna við þjónustu sína hefur aukizt mikið hin síðari ár, einkum vegna hækkaðra launa. Mál þessi hafa talsvert verið rædd á meðal bænda, og eru menn á einu máli um það að bæta aðstöðu búnaðarsambandanna með framangreindum ráðstöfunum.
Þá má að lokum benda á, að jarðræktarlagafrv. verður að ýmsu leyti auðveldara í framkvæmd en gildandi löggjöf. Út frá fenginni reynslu eru færðir saman liðir, tekið er tillit til vandamála þeirra, sem skapazt hafa í sambandi við kalið. Framlög til endurræktunar túna, grænfóðurræktar, votheysverkunar og súgþurrkunar eru talsvert aukin frá því, sem þau eru í gildandi lögum. Það er von mín og trú, að frv. þetta, þegar að lögum verður, megi þjóna þeim megintilgangi að auka gróður landsins og á grundvelli þess geti bændur að mestu orðið sjálfum sér nógir með fóðurframleiðslu og tryggt sér birgðir heyja til harðari ára. En því miður hefur ræktun á undanförnum árum heldur gengið saman. Árið 1968 voru ræktaðir 5162 ha., en 1969 4123 ha. og árið 1970 3242 ha. En líkur eru til þess, að ræktun á s. l. ári hafi verið mjög svipuð og hún var árið 1970. Þróun þessi er óhagstæð og á hún rætur að rekja til kuldatímabilsins.
Endurræktun túna hefur aukizt með hverju ári, og var hún 865 ha. árið 1970 eða um 100 ha. meiri en árið áður. Alls hafa verið endurræktaðir 3588 ha. í túnum síðan árið 1964, og gefur það nokkra mynd af því ástandi, sem verið hefur á því kuldatímabili, sem við höfum búið við.
Landbn. mælir einróma með frv. þessu ásamt breytingum þeim, sem eru á þskj. 643, en í þeim breytingum felast engar efnislegar breytingar, en orðalag gert skýrara til að taka af tvímæli. Ég vænti þess, að hv. þm. samþykki frv. ásamt þeim breytingum, sem fyrir liggja.