04.05.1972
Efri deild: 75. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1495 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)
209. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Í tilefni af ummælum hv. þm. Þorv. Garðars Kristjánssonar, 5. þm. Vestf., á þá leið, að samstarfsmenn mínir hafi haft þau áhrif á mínar skoðanir, að ég telji nú eðlilegast, að framleiðendur fái meiri hl. í stjórn þessarar stofnunar eftir fimm ár, þá sé ég mér ekki annað fært en að leiðrétta þessa missögn. Þetta hef ég aldrei sagt. Þvert á móti sagði ég áðan, að ég teldi eðlilegast, að samtök, sem ríkið hefur byggt upp að öllu leyti fjárhagslega, verði áfram undir stjórn opinberra aðila. En hitt er allt annað mál. að ég hef fallizt á það, að þessi tilhögun verði viðhöfð. Það er allt annað mál.