10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1505 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)

209. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins

Björn Pálsson:

Herra forseti. Í 3. gr. frv. þessa er gert ráð fyrir því, að atvinnurekendur séu frjálsir að því, hvort þeir taka þátt í þessari stofnun eða ekki, ef þessi lög verða samþ. Byrjunin hljóðar svo:

„Atvinnurekendur í niðursuðuiðnaði, sem vilja eiga aðild að Sölustofnun lagmetisiðnaðarins, þurfa að gefa um það skriflega yfirlýsingu og eru þeir þá bundnir af aðild sinni í a. m. k. eitt ár og geta ekki slitið henni nema með eins árs fyrirvara miðað við áramót.“

Þessi ákvæði fela það í sér, að þeir, sem stunda niðursuðuiðnað og starfrækja hann nú, eru alls ekki skyldugir að standa að þessari stofnun. Og ef lög eru samþ., sem þeir eru óánægðir með, þá gera þeir það sennilega ekki, heldur mynda bara annað félag, önnur sölusamtök á frjálsum grundvelli, svo framarlega sem ekki er barin úr þeim öll dáð.

Svo eru ýmis ákvæði í 4. gr., sem ég er ekki sérlega hrifinn af. 2. mgr. byrjar þannig:

„Ráðh. skipar stofnuninni 5 manna stjórn til þriggja ára í senn og skulu tveir tilnefndir af aðalfundi fulltrúaráðs, einn samkv. tilnefningu viðskrn., einn samkv. tilnefningu fjmrn. og einn án tilnefningar og er hann jafnframt formaður stjórnarinnar.“

Fulltrúaráðið á að hafa rétt til að tilnefna tvo menn og ráðh. eða rn. eiga að tilnefna þrjá. Og þar að auki eiga þessir atvinnurekendur rétt til þess að kjósa sér fulltrúa á fund, sem árlega á að halda, en þeir hafa aðeins ráðgefandi vald. Þó eru það eigendur framleiðslunnar, sem kjósa þessa fulltrúa og verða sennilega oft sjálfir mættir, en þeir hafa aðeins ráðgefandi vald. Það er stjórnin, sem hefur allt framkvæmdavaldið. Þeir mega nefnilega ekki ráða þessari starfsemi, þó að þeir eigi hana og þeirra hagsmunir séu við hana bundnir. Þeir hafa aðeins tillögurétt. Þetta finnst mér of langt gengið. Við vitum t. d. um Sölusamband ísl. fiskframleiðenda og við vitum um sölusamtök hraðfrystiiðnaðarins. SÍS hefur sín samtök og hinir hafa sín samtök, og ég held, að það sé óhætt að segja, að a. m. k. í flestum tilfellum hefur þetta gefizt vel og í sumum tilfellum mjög vel. Og þetta hafa þeir starfrækt, án þess að fá beinan ríkisstyrk, a. m. k. ekki nema þá aðeins í byrjun. Og þetta eru orðin öflug fyrirtæki. Satt að segja held ég, að það sé eðlilegast og bezt, að menn vinni sig sjálfir upp, hafi ábyrgðartilfinningu, en þeim séu ekki fengnir allt of miklir fjármunir fyrirhafnarlaust upp í hendurnar, sem eru þá misvel notaðir. Í öðru lagi er það venja, ef þing kýs í eitthvað eða ráðh. skipar, að þá er það ákaflega oft pólitískur gæðingur, sem þar er valinn, og oft er það af því að hann hefur of lítið til að lifa af. Það er í mörgum tilfellum af því, að hann er þá ekki meiri ráðdeildarmaður en það, að hann þarf að fá einhverja viðbót til þess að geta komizt af persónulega, og ég held, að þetta geti þá farið svo, að meiri hl. stjórnarinnar yrði skipaður mönnum, sem ekki hefðu vit á þessum málum, þarna væru einhverjir pólitískir gæðingar. Það má vera, að þessir tveir, sem framleiðendurnir tilnefndu eða hafa rétt til að tilnefna, yrðu valdir með einhver þekkingarsjónarmið fyrir augum, en það er alltaf minni hl.

Svo er ákvæði um það í 5. gr., að ríkið leggi fram 25 millj. óendurkræfar árlega í fimm ár og þar að auki eiga þeir að fá útflutningsgjöldin, og reikna má með, að þetta verði samtals 35 millj. Ég held nú satt að segja, að ríkið hafi nóg að borga, þó að það sé ekki að kasta þarna 25 millj., og ég mundi hallast að því að láta atvinnurekendurna hafa þarna meiri hl., en ekki nema 5 millj. á ári. Ég held satt að segja, að í fjármálunum verði að taka upp allt aðra stefnu en ríkt hefur undanfarin ár, sífelldar hækkanir og endalaus eyðsla. Og ef eitthvað ber út af, held ég, að það gangi heldur illa að skrapa saman í það, sem ríkissjóður þarf.

Ég gæti talið upp mörg atriði, þar sem ríkisstj. gæti sparað, ef hún vildi gera það. Við 1. umr. fjárlaga var ekki tækifæri til að segja neitt. Það eru einhverjir, sem tala fyrir hönd flokkanna, einn maður, og það er aðallega lýðskrum, en ekki raunhæft talað um fjárlög eða hvað hægt væri að gera til umbóta á því sviði. Ég á yfirleitt við allan rekstur þessara mála síðan ég kom á þing. Það er ekkert sérstaklega verið að hyllast til að tala af einhverju viti, þegar verið er að tala við útvarpshlustendur. Þetta er áróður. Það er hægt að spara hundruð millj., ef rétt væri á öllu haldið í fjármálum þjóðarinnar. Það er varið til að styrkja námsmenn 190 millj. nú í fjárlögum. Þetta er gert án allra skilyrða og án þess að nokkurt yfirlit sé fengið um það, hvað þjóðin hefur þörf fyrir, að margir læri í hverri grein. Vitanlega er þetta alveg skipulagslaus eyðsla. Það á að hafa eitthvert yfirlit yfir, hvað þjóðin hefur þörf fyrir marga lækna, marga lögfræðinga, marga verkfræðinga o. s. frv., svo á að styrkja þessa menn sómasamlega, en ekki ausa fé í menn, sem eru að læra það, sem þjóðin hefur ekkert með að gera, og koma svo kannske aldrei til landsins aftur. Fyrir utan þessar endalausu kröfur, sem þessir ágætu menn gera eftir alla þessa styrki, sem við sjáum í læknadeilunni og kaupkröfum þeirra. Samt er ég ekki sérstaklega að deila á iðnrh. í þessu efni. Við vitum, að hann er betur gefinn en almennt gerist um menn og í heilbrigðismálum hefur hann tekið á margan hátt skynsamlega á hlutunum. Ég er ekki sérstaklega að deila á hann fyrir þetta. Ég get nefnt mörg fleiri dæmi um óþarfa eyðslu. T. d. er gert ráð fyrir, að ríkið leggi fram 230 millj. til atvinnuleysistrygginga og svo einstaklingar eða atvinnurekendur aðrar 230 á móti. Ég ábyrgist þetta ekki upp á milljón, þó að ég sé minnugur á tölur, enda skiptir það ekki máli. Auk þess eru allir vextirnir af tryggingasjóðnum. Ég sé ekki annað en þarna sé eytt nærri 500 millj. í óþarfa, því að bara vextirnir af sjóðnum gætu algerlega staðið undir kostnaðinum og orðið mikil aukning, ef sæmilega er á öllu haldið og ekki sífellt verið að fella gengi krónunnar, eins og gert var nú hjá fyrrv. stjórn. En svona mætti lengi telja. Ég held, að það verði að taka upp aðra efnahagsstefnu, ef eitthvert vit á að vera í hlutunum. Ef við eyðum meiru heldur en við öflum, rýrnar verðgildi peninganna og þá erum við komnir í vandræði um leið og eitthvað ber út af. Ég hallast því að því að verja miklu minna fé úr ríkissjóðnum, vil ekki hafa nema 5 millj. kr., og lofa þeim þá að hafa þennan útflutningsskatt, hann er yfir 10 millj. á ári, láta svo þessa menn spjara sig sjálfa að mjög miklu leyti og lofa þeim vitanlega að ráða. En það, að ríkisstj. fari að skipa einhverja menn, sem kannske hafa ekki nokkurt vit á þessu, því að auðvitað hafa þeir bezt vit á þessu, sem fást við þetta, það væri svona ámóta og Magnús Kjartansson væri að skipa einhvern herra yfir búið hjá mér og ég ætti að vera ráðgefandi. (Gripið fram í.) Mig langar nú ekki til að fá einhvern hálfvita frá honum til þess að segja mér fyrir verkum.