10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í B-deild Alþingistíðinda. (1304)
209. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins
Pétur Pétursson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð til viðbótar. Hæstv. iðnrh. gat þess áðan, að flutt hefði verið á síðasta ári út fyrir 200 millj. kr., þ. e. a. s. ekki neitt. Þennan atvinnuveg ætti að vera hægt að efla, svo að úr yrði stórkostlegur útflutningur, ef markaður væri fyrir hendi. Það er allt annað fyrir hendi í landinu. Að vísu er kannske ekki atvinnuleysi mjög mikið þessa stundina, en það hefur verið hér. En ég lít á þetta frá atvinnulegu sjónarmiði fyrst og fremst. Það er spurningin um það, hvort menn vilja yfir höfuð byggja þennan atvinnuveg upp eða ekki. Hitt er afturhald og þröngsýni að tala um það, að það þurfi að lækka þessa upphæð niður í 5 millj. Og að þetta skuli koma frá hv. þm. Birni Pálssyni, þar sem einmitt er atvinnuleysi í hans eigin kjördæmi! Ég kann ómögulega við þessa vantrú og mér heyrðist á einhverjum áðan, að það væri eins og verið væri að taka eitthvað frá einhverjum. þessum blessuðu niðursuðuhöldum. Hvað hafa þeir gert? Hvað hafa þeir gert síðustu 30 árin? Hversu líklegt er, að þeir muni fara að standa sig allt í einu nú? Það er eins og eigi bara að leggja þeim til peningana og svo sé því treyst, að þeir fari allt í einu að gera það, sem þeir ættu að vera fyrir löngu búnir að gera. Ég fyrir mitt leyti vantreysti því fullkomlega. Ég held því, að það verði að taka á þessu máli af dálitlum stórhug, og ég felli mig vel við málið eins og það er lagt fyrir í trausti þess, að hér sé um framtíðaratvinnuuppbyggjandi atvinnugreinar að ræða.